Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

553 dómar fundust

Lykilorð: Vopnalagabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. maí 2026 kl. 15:34

S-5560/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Breka Þór Frímannssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:24

859/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Svavari Óla Ólafssyni (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og S gerð refsing í einu lagi. Var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt voru gerð upptæk nánar tilgreind fíkniefni, fíknilyf og vopn. S áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2026 kl. 10:16

S-6970/2025

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir settur saksóknari) gegn Brynjari Leó Hjartarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. nauðgun og sifskaparbrot og dæmdur í þriggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-1526/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óðni Þór Ingólfssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sem játaði sök var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. maí 2026 kl. 14:42

S-1852/2025

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Fanneyju Krummu Jensdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Grími Kolbeinssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelld fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni, auk þess sem annar ákærðu var sakfelldur fyrir vopnalagabrot og brot gegn umferðarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2026 kl. 15:56

S-995/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Ástþóri Tómassyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar-, vopna- og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga ásamt því að áréttuð varævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2026 kl. 17:26

S-7486/2025

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari) gegn Ívari Heimissyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga og vopnalagabrot en sýknaður af broti gegn 2. mgr. 218. gr. sömu laga vegna neyðarvarnar. Var ákvörðun refsingar ákærða frestað skilorðsbundið.

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

58/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður), Jónasi Shamsudin (Jón Magnússon lögmaður) og Samúel Jóa Björgvinssyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X, Y og Z voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 2943,38 grömm af MDMA-kristöllum. Z var til viðbótar sakfelldur fyrir brot gegn sama ákvæði með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 1.781 töflu af MDMA, fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum ýmis önnur fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni sem og fyrir umferðarlagabrot. Þá var Y einnig sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreind fíkniefni og vopnalagabrot. Í málinu var annars vegar deilt um sýknukröfu Y vegna fyrrgreinds brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og hins vegar ákvörðun refsingar. Með nánar tilgreindum athugasemdum staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Y. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur meðal annars til þess að úr MDMA-kristöllunum hefði mátt framleiða ríflega 23.000 MDMA-töflur og því um að ræða verulegt magn efnis sem og til nýlegra dóma réttarins í sambærilegum málum. Með hliðsjón af því var refsing allra ákærðu þyngd frá því sem ákveðið hefði verið í hinum áfrýjaða dómi og refsing ákærðu X og Y ákveðin fangelsi í þrjú ár en Z fangelsi í þrjú og hálft ár.

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

28/2025

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn Sindra Snæ Birgissyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Ísidóri Nathanssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S og Í voru ákærðir fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Þá var S einnig ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Í fyrir hlutdeild í því broti. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur meðal annars um sakfellingu ákærðu fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðdóms um sýknu ákærðu af sakargiftum um tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í því broti. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að hafna kröfu um frávísun málsins frá héraðsdómi. Rétturinn taldi á hinn bóginn að ágallar höfðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar var óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2026

S-4333/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Árnasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og vopnalögum og dæmdur til að sæta fangelsi í 22 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2026

S-4413/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Óskari Mána Atlasyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar, umferðar-, fíkniefnalaga-, og vopnalagabrot. Rauf ákærði skilorð og var honum dæmdur hegningarauki. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt ásamt upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2026

S-5830/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður), Y (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Gabríel Douane Boama (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X var sakfelldur fyrir tvö rán framin annars vegar í félagi við meðákærða Gabríel og hins vegar í félagi við meðákærða Y, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, aðra framda í félagi við meðákærða Gabríel, auk sérrefsilagabrota. Ákærði Gabríel var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og hlutdeild í ráni, framið í félagi við meðákærða X. Ákærði Y var sakfelldur fyrir rán framið í félagi með X. Var ákærði X dæmdur í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi, Gabríel var dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og Y var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærði X var jafnframt sviptur ökurétti í 18 mánuði og gert að sæta upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2026

S-1428/2025

Ákæruvaldið (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Felicia Mariana Pralea lögmaður), Donat Gubetini (Gunnar Atli Gunnarsson lögmaður), Z (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður), Y (Snorri Sturluson lögmaður) og og Þ (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður) (Leó Daðason lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelldir vegna tveggja líkamsárása en einn ákærðu sýknaður af annarri þeirra. Einn ákærðu sakfelldur samkvæmt játningu vegna fíkniefna- og vopnalagabrota.

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

546/2025

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, A, með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð hennar með líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Annars vegar var X gefin að sök kynferðisleg áreitni og húsbrot með því að hafa 13. október 2024 farið í heimildarleysi inn í hús og síðan svefnherbergi A og áreitt hana með tilgreindum hætti og eftir það neitað að yfirgefa heimilið, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir A þess efnis. Hins vegar um tilraun til manndráps með því að hafa þremur dögum síðar veist að A með tilgreindum hætti með þeim afleiðingum að hún hætti að geta andað og meðvitund hennar skertist og hún hlaut tilgreinda áverka. Einnig var X ákærður fyrir líkamsárás gegn B sem olli honum tilgreindum áverkum. Loks var X gefið að sök vopnalagabrot með því að hafa haft í fórum sínum á heimili sínu 14 skotvopn, auk fjölda skotfæra, án þess að hafa gilt skotvopnaleyfi, án þess að skotvopnin væru skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var því hafnað að X hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum eða geðrænu ástandi hans þannig háttað að refsing gæti ekki borið árangur, sbr. 15. og 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var X gert að sæta fangelsi í sex ár, auk þess sem honum var gert að greiða A skaða- og miskabætur og sæta upptöku á fyrrgreindum skotvopnum og skotfærum. Með dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að beinn ásetningur X hafi staðið til þess að svipta A lífi 16. október 2024. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X og ákvað refsingu hans fangelsi í sjö ár en til frádráttar skyldi koma vist hans í gæsluvarðhaldi og á sjúkrastofnun. Niðurstaða héraðsdóms um skaða- og miskabætur til handa A og um upptöku skotvopna og skotfæra var loks staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

S-4825/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Eimantas Dumcius (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Maður, sem játaði sök fyrir dómi, sakfelldur fyrir sjö þjófnaðarbrot og brot gegn vopnalögum. Eldri dómur tekinn upp þar sem um skilorðsrof var að ræða að hluta til. Dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða af þessum sex frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ísexi gerð upptæk.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 8. janúar 2026

S-62/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn X og Y (Pétur Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða X banaði hundi af nærliggjandi bæ þegar hann hljóp í átt að æðarvarpi í eigu ákærðu. Við það verk notaði hún byssu í eigu ákærða Y, en gildistími skotvopnaleyfa þeirra beggja var þá útrunninn. Vegna þessa voru ákærðu X gefin að sök eignarspjöll og vopnalagabrot og þess krafist að skotvopnið yrði gert upptækt. Talið var sannað að ákærða hefði skotið hundinn í þeim eina tilgangi að verja æðarvarpið gegn yfirvofandi tjóni sem hundurinn hefði getað valdið og að ekki hefði verið kostur á að beita öðrum og vægari úrræðum í því skyni. Jafnframt var talið sannað að eigendur varpsins hefðu áður verið búnir að brýna fyrir eigendum hundsins að gæta hans sérstaklega á varptímanum og að ákærða X hefði reynt að reka hundinn frá varpinu áður en hún greip til þess örþrifaráðs að skjóta hann. Enn fremur var talið sannað að þeir hagsmunir sem ákærðu verndaði með verkinu hefðu verið miklum mun meiri en þeir hagsmunir sem hún fórnaði með því að aflífa hundinn. Því var talið að uppfyllt væru skilyrði neyðarréttar, samkvæmt 13. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og ákærðu voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. desember 2025

S-53/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Smára Óskari Hólmarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var gerð refsing fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku að hluta á vopnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2025

S-2038/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Stefnissyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár enda gangist ákærði undir sérhæfða lyfja- og geðræna meðferð hjá yfirlækni á réttargeðdeild.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2025

S-7573/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ottó Frey Aðalsteinssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, lögreglulögum og vopnalögum. Var honum gert að sæta fangelsi í 10 mánuði og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð. Þá var ákærða gert að sæta upptöku haldlagðra fíkniefna og reiðufjár, auk annarra haldlagðra muna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. desember 2025

S-2243/2025

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn A (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), B (Leó Daðason lögmaður), C (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), D (Stefán Ragnarsson lögmaður), E (Sveinn Guðmundsson lögmaður), F (Páll Kristjánsson lögmaður) og G (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Allir ákærðu sakfelldir fyrir fjárkúgun, rán og brot á barnaverndarlögum eða fyrir hlutdeild í þeim brotum. Einnig sakfellt fyrir minniháttar líkamsárás, eignaspjöll, þjófnað o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2025

S-6190/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hrannari Markússyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Guðrúnu Ernu Levy (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2025

S-3441/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Ólafi Darra Sturlusyni (Snorri Sturluson lögmaður) og og Andreu Rán Jóhannsdóttur (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelld fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, vopnalögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fikniefni. Var ákærði Ólafur dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð. Ákærða Andrea var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipt ökurétti í þrjú ár. Þá var báðum ákærðu gert að sæta upptöku haldlagðra fíkniefna og reiðufjár, auk annarra haldlagðra muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2025

S-5629/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Ousmane Hawa Camara
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, gripdeild, brot gegn lögreglulögum, lögreglusamþykkt, lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum og dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sæta upptöku á fíkniefnum og hníf.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2025

S-425/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Alexander Svani Guðmundssyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Hegningarauki. Skilorðsdómur dæmdur upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2025

S-5143/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Remigijus Uzkuraitis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og vopnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað í tvö ár. Var ákærða einnig gert að greiða sekt til ríkissjóðs, sviptingu ökuréttinda í 2 ár og 3 mánuði ásamt upptöku vopns.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2025

S-5043/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Grzegorz Zbigniew Kobylecki (Þórður Már Jónsson lögmaður) og Tomasz Niescier (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði G var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar. Ákærði T var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot og dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en hann var talinn hafa rofið skilorð eldri dóms sem var tekinn upp.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. október 2025

S-1650/2025

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir líkamsárásir, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Einnig var ákærði dæmdur til að greiða brotaþolum bætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. október 2025

S-390/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Steinunni Dúu Grímsdóttur (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var fundin sek um fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot og henni gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var ákærðu gert að sæta upptöku á fíkniefnum, munum og vopni.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. október 2025

S-340/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn Tómasi Helga Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Sindra Páli Róbertssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. október 2025

S-220/2025

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir í garð tveggja einstaklinga, líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, aðra líkamsárás sem varðar við 1. mgr. 218. gr. sömu laga og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. október 2025

S-4214/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Daniel Bondarow (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, vopna- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur ökuréttindum í 18 mánuði.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 30. september 2025

S-20/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hótanir og vopnalagabrot. Hann var dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2025

S-4398/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis þjófnaðar-, skjala-, umferðar-, vopna- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur ökuréttindum í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. september 2025

S-1159/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður), Jónasi Shamsudin (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), [...] og [...] og [...] og [...] og Örvari Reyr Söndrusyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), [...] og [...] og [...] og [...] og [...] og Sergey Gaysin (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) og [...] og Róberti Óskari Friðrikssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sem játuðu brot sín dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og auðgunarbrot. Var um að ræða hegningarauka við fyrra dóma.

Landsréttur birt 26. júní 2025

637/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Ásgeiri Þór Önnusyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Breka Þór Frímannssyni (Þorgils Þorgilsson) og Hilmi Gauta Bjarnasyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður) (Hilmar Garðars Þorsteinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Á, B og H voru ákærðir í tengslum við skotárás á heimili brotaþolanna C, A og B þar sem þeir voru staddir ásamt brotaþolanum D. Á var gefin að sök tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot með því að hafa umrætt sinn ásamt B, ruðst grímuklæddur og í heimildarleysi inn á heimilið, þar sem fjórir brotaþolar voru staddir og skotið án viðvörunar samtals sex skotum úr skammbyssu í átt að D og C. B var gefin að sök hlutdeild í brotum Á með því að hafa liðsinnt honum við undirbúning og framkvæmd brotsins með nánar tilgreindum hætti. Ákærða H var gefin að sök hlutdeild í broti Á með því að hafa ekið Á og B umrætt sinn gegn greiðslu. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að fallist væri á með héraðsdómi að það hefði verið hending ein að skotin lentu ekki í C og D, sem þá voru inni í barnaherbergi, og einnig að Á hafi hlotið að vera ljóst að það sé lífshættulegt að skjóta sex skotum úr skammbyssu í átt að fólki af stuttu færi, án neinnar vissu um hvar skotin lendi, og því hafi Á hlotið að gera sér grein fyrir því að bani gæti hlotist af háttsemi hans. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu Á fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþolunum D og C og hættubrot gagnvart brotaþolunum A og B sem og vopnalagabrot. Var refsing hans ákveðin fangelsi í sex ár. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ekki yrði fullyrt að ásetningur B og H hefði staðið til að bana brotaþolunum D og C og yrðu þeir því ekki sakfelldir fyrir hlutdeild í tilraun til manndráps. Þeir voru aftur á móti sakfelldir fyrir hlutdeild í hættubroti Á og B jafnframt sakfelldir fyrir hlutdeild í vopnalagabroti Á. Niðurstaða héraðsdóms um refsingu B og H var staðfest og B gert að sæta fangelsi í 30 mánuði og H gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi í eitt ár. Þeim ákæruliðum er vörðuðu húsbrot var vísað frá héraðsdómi. Staðfest voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á skammbyssu. Loks var Á og B gert að greiða brotaþolum miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2025

S-2039/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Jhon Sebastian A. Sevillano (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsinar og sviptingu ökuréttar ævilangt fyrir fíkniefna-, vopna-, umferðar- og lögreglulagabrot.

Héraðsdómur Austurlands birt 4. júní 2025

S-4/2025

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningarlagabrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, auk líkamsárásar gegn öðrum einstaklingi og brot á vopnalögum. Var hann dæmdur í sex ára fangelsi og til greiðslu sakarkostnaðar málsins. Auk þess var hann var dæmdur til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður miskabætur og bætur vegna fjártjóns, auk vaxta, og gert að sæta upptöku á vopnum og skotfærum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. apríl 2025

S-724/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Vali Hoe Guðmundssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 13 mánuði ásmt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. apríl 2025

S-2166/2024

Málið nr. S-2166/2024 Ákæruvaldið (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Karólína Finnbjörnsdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður var sakfelldur fyrir fjölmög kynferðisbrot gagnvart barnungri frænku sinni, auk annarra kynferðisbrota og dæmdur í 3 ára óskilorðsbundið fangelsi. Horfði til refsilækkunar að ákærði var ekki orðinn 18 ára þegar hann braut gegn stúlkunni. Ákærði var jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni 4.000.000 króna miskabætur.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

717/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Anítu Ósk Haraldsdóttur (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.

Hleð fleiri dómum…