Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1526/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Óðni Þór Ingólfssyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Einkaréttarkrafa. Fangelsi. Fjársvik. Játningarmál. Þjófnaður. Vopnalagabrot.

Ákærði sem játaði sök var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.

Dómur

Mál þetta sem dómtekið var 21. apríl 2026 var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 25. mars 2026 „á hendur Óðni Þór Ingólfssyni, kt. […], […],

I.

Fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 18. nóvember 2023, utan við verslun Krónunnar, […] í Reykjavík, stolið rafhlaupahjóli, að óþekktu verðmæti.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Fyrir þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 18. janúar 2024, í verslun Bónus, […] í Reykjavík, stolið tveimur pakkningum af nautakjöti, samtals að söluverðmæti kr. 3.430.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

Fyrir þjófnað með því að hafa sunnudaginn 18. ágúst 2024, í verslun Bónus, […] í Reykjavík, stolið nautalund, að söluverðmæti kr. 12.352.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 20. ágúst 2024, í auðgunarskyni brotist inn í bílskúr að […] í Reykjavík, með því að brjóta upp hengilás og stolið þaðan Bose bassaeiningu, DeWault laser, málningarsprautu og tösku sem innihélt rakspíra og í kjölfarið farið inn í ólæsta bifreið sem stóð við bílskúrinn og stolið þaðan sólgleraugum, allt að óþekktu verðmæti.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V.

Fyrir þjófnað með því að hafa sunnudaginn 15. september 2024, í verslun Krónunnar, […] í Reykjavík, stolið þremur pakkningum af kjúklingi og 14 skinkubréfum, allt samtals að söluverðmæti kr. 20.215.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VI.

Fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 22. september 2024, í auðgunarskyni farið inn í ólæsta bifreiðina […], sem stóð á bifreiðastæði í bílakjallara við […] í Reykjavík, og stolið þaðan sjálfvirkri ryksugu og hleðslutæki, allt að óþekktu verðmæti.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VII.

Fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 13. september 2025, í verslun Elko, […] í Reykjavík, stolið breytikló og fjórum staðsetningartækjum, allt samtals að söluverðmæti kr. 22.690.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VIII.

Fyrir þjófnað með því að hafa að morgni mánudagsins 15. september 2025, í auðgunarskyni brotist inn í bifreiðina […], sem stóð á bifreiðastæði við […] við […] í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í bílstjórahurð og stolið þaðan verkfærum, raftækjum, lyfjum og lyklakippu, allt að óþekktu verðmæti.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. M: 007-2025-[…]

IX.

Fyrir þjófnað með því að hafa mánudaginn 13. október 2025, í verslun N1, […] í Reykjavík, stolið minnislykli, hleðslutæki og vegghleðslu, allt samtals að söluverðmæti kr. 18.970.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

X.

Fyrir þjófnað með því að hafa mánudaginn 19. október 2025, í auðgunarskyni brotist inn í bifreiðina […], sem stóð á bifreiðastæði við […] í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í afturhlera bifreiðarinnar og stolið þaðan tveimur bakpokum, sem innihéldu meðal annars dýnur, svefnpoka og útivistarfatnað, allt að óþekktu verðmæti.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XI.

Fyrir þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 23. október 2025, í verslun Bónus, […] í Reykjavík, stolið Di-fi hárgeli, að söluverðmæti kr. 1.889.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. M: 007-2025-061050

XII.

Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 11. nóvember 2025 í auðgunarskyni brotist inn í veitingastaðinn Bryggjuna Brugghús að […] í Reykjavík, með því að brjóta gler í útidyrahurð á austurhlið hússins og farið þar inn og tekið spjaldtölvur, lyklaborð, tölvuskjái, magnara og fleiri raftæki og reynt að fara út um neyðarútgang með þýfið en var stöðvaður af lögreglu eftir tilkynningu um yfirstandandi innbrot. Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XIII.

Fyrir þjófnað með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 12. nóvember 2025, í Nettó, […] í Reykjavík, stolið þremur pakkningum af nautakjöti, að söluverðmæti kr. 16.463.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XIV.

Fyrir þjófnað og fjársvik, með því að hafa mánudaginn 8. desember 2025, brotist inn í bifreiðina […] á bifreiðastæði við […] í Reykjavík, og stolið þaðan Apple air spjaldtölvu, Ray Ban sólgleraugum, heyrnartólum, húslyklum og seðlaveski sem innihélt greiðslukort og í framhaldi svikið út vörur og þjónustu, samtals að fjárhæð kr. 12.000, með því að framvísa greiðslukorti A, sem ákærði stal úr bifreiðinni, og látið skuldfæra andvirði kaupanna á reikning rétthafa í Svens búðinni, […] í Reykjavík.

Teljast brot þessi varða við 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XV.

Fyrir þjófnað með því að hafa sunnudaginn 14. desember 2025, í verslun Hagkaups, […] í Garðabæ, stolið fjórum pakkningum af ilmvatni og tveimur pakkningum af skartgripum, allt samtals að söluverðmæti kr. 65.686.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XVI.

Fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 7. febrúar 2026, í verslun Elko, […] í Reykjavík, stolið tveimur minnislyklum, verkfærasetti, fjórum staðsetningartækjum, Garmin snjallúri og ól fyrir snjallúr, allt samtals að söluverðmæti kr. 150.970.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XVII. Fyrir vopnalagabrot, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 25. febrúar 2026, haft í vörslum sínum hníf, sem lögreglan fann við öryggisleit á ákærða eftir að hann benti lögreglu á að hann væri með hníf í vasanum.

Telst þetta varða við 1. mgr. 30 gr., sbr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa:

Vegna ákæruliðar 2 gerir B, kt. […], forstjóri Haga, kt. […], þá kröfu að ákærði Óðinn Þór Ingólfsson verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 3.430 kr., auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn 18.01.2024, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati dómsins, að teknu tilliti til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

Vegna ákæruliðar 7 gerir Sölvi Davíðsson lögmaður fyrir hönd Elko ehf., kt. […], þá kröfu að ákærði Óðinn Þór Ingólfsson verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 22.690 kr. auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 13.09.2025 til 16.10.2025 og skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga sömu laga, að liðnum mánuði frá 16.10.2025 til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Vegna ákæruliðar 9 gerir Sölvi Davíðsson lögmaður fyrir hönd N1 ehf., kt. […], þá kröfu að ákærði Óðinn Þór Ingólfsson verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 18.970 kr. auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 13.10.2025 til 06.11.2025 og skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga, að liðnum mánuði frá 06.11.2025 til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“

Í þinghaldi 21. apríl sl. féll ákæruvaldið frá II. lið ákæru og þjófnaðarbroti í XIV. lið ákæru. Ákærði játaði sök samkvæmt ákæru svo breyttri. Hann mótmælti bótakröfu á þeim grunni að ekki hefði verið mætt af hálfu bótakrefjenda í þinghaldið og bæri því að vísa henni frá dómi.

Ákærði hefur játað brot sín skýlaust. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði, ákvörðun viðurlaga og einkaréttarkröfur.

Verjandi ákærða krefst þess að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst hann þess að bótakröfum verði vísað frá dómi. Hann krefst einnig málsvarnarlauna sér til handa.

Ákærði er fæddur í […]. Hann á langan sakaferil að baki. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 20. mars 2026, var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir rán með dómi 11. mars 2015. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi 18. desember 2015 fyrir þjófnað, rán, gripdeild, fjársvik, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Þá var hann dæmdur í 30 daga fangelsi 27. apríl 2016 fyrir líkamsárás, vörslur fíkniefna og tilraun til þjófnaðar. Hann gekkst undir sektargreiðslu með viðurlagaákvörðun 30. mars 2017 fyrir akstur sviptur ökuréttindum, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfjaakstur. Hann var dæmdur í 10 mánaða fangelsi 2. mars 2018 fyrir líkamsárás, rán og þjófnað. Hinn 15. maí 2019 var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökuréttindum, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, lyfjaakstur, nytjastuld, rán, þjófnað, húsbrot, líkamsárás og vopnalagabrot. Þá var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi 24. janúar 2020 fyrir þjófnað, nytjastuld, skjalabrot og akstur sviptur ökuréttindum. Hinn 12. mars 2020 var hann dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökuréttindum, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur án gildra ökuréttinda, þjófnað, hylmingu, vopnalagabrot og vörslur fíkniefna. Hann gekkst undir 286.000 króna sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni 23. maí 2022. Þá var ákærði dæmdur í 16 mánaða fangelsi 6. júlí 2022 fyrir brot gegn valdstjórninni, fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot, líkamsárás, þjófnað, fjársvik og rán. Loks hlaut ákærði sex mánaða fangelsisdóm 12. júlí 2023 fyrir fjölda þjófnaðarbrota, gripdeild, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot. Með vísan til framangreinds verður litið til 255. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar í málinu. Þá er litið til þess, honum til málsbóta, að hann játaði skýlaust brot sín fyrir dómi.

Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur setið í óslitið frá 26. febrúar sl. Bótakröfu vegna ákæruliðar II er vísað frá dómi þar sem ákæruvaldið féll frá þeim ákærulið. Aðrar bótakröfur eru hins vegar teknar til greina, en sækjandi sótti þing fyrir hönd bótakrefjenda í málinu. Bótakröfurnar voru kynntar ákærða þegar hann gaf skýrslu hjá lögreglu 29. janúar 2026 og miðast upphafsdagur dráttarvaxta við það. Þar sem bótakrefjendur sóttu ekki þing heldur ákæruvaldið fyrir þeirra hönd verður þeim ekki dæmdur málskostnaður úr hendi ákærða eins og krafist er.

Samkvæmt framangreindum málsúrslitum og með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins. Ákærði greiði samkvæmt því málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, sem þykir með hliðsjón af tímaskýrslu verjandans hæfilega ákveðin 1.100.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki verður séð að annan sakarkostnað hafi leitt af rekstri málsins.

Björn Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Óðinn Þór Ingólfsson, sæti fangelsi í sex mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 26. febrúar 2026.

Einkaréttarkröfu B, forstjóra Haga hf., fyrir hönd félagsins, er vísað frá dómi.

Ákærði greiði Elko ehf. 22.690 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 13. september 2025 til 28. febrúar 2026 en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði N1 ehf. 18.970 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 13. október 2025 til 28. febrúar 2026 en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 1.100.000 krónur.

Björn Þorvaldsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 20. gr.244. gr.248. gr.255. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 36. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 6. gr.9. gr.164. gr.176. gr.233. gr.1. mgr. 235. gr.