Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

489 dómar fundust

Lykilorð: Fjársvik

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

768/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður) (Gunnar Egill Egilsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa tekið samtals 4.785.252 krónur í reiðufé úr hraðbönkum með greiðslukorti A, og fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út vörur og þjónustu með framvísun á greiðslukorti A, fyrir samtals 1.699.256 krónur. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur fyrir alla þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Fyrir Landsrétti var ákærði sýknaður að hluta en sakfelldur að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, eða sem nam þjófnaði að fjárhæð 4.515.993 króna og fjársvikum að fjárhæð 1.567.625 króna. Var X dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins. Þá var X gert að greiða A samtals 6.083.618 krónur í skaðabætur með vöxtum og dráttarvöxtum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 14:10

S-6678/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Helgu Þorkelsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fjársvik. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, ásamt því sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 13. maí 2026 kl. 18:03

S-81/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Stefáni Ásgrími Sverrissyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Lykilorð: Fjársvik. Umboðssvik.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik, með því að hafa án heimildar tekið út vörur í verslunum í gegnum viðskiptareikning annars manns.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-1526/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óðni Þór Ingólfssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sem játaði sök var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-5974/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sem játaði sök var sakfelld fyrir hylmingu og fjársvik. Var henni ekki gerð refsing í málinu en um var að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. apríl 2026 kl. 13:17

S-7499/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Toader Cantaragiu (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, fíkniefna- og útlendingalagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot á áfengislögum og lögreglusamþykkt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. mars 2026 kl. 13:09

S-4830/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn Aðalsteini Javí Lárusi Skúlasyni (Enginn)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður, sem ekki kom fyrir dóm, sakfelldur fyrir fjársvik og dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar, en um hegningarauka var að ræða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2026

S-766/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2026

S-6689/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Danila Alexandre De Sousa
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var sakfelld fyrir fjársvik og þjófnað og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2026

S-5970/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sæþóri Braga Sölvasyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og þjófnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2025

S-2038/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Stefnissyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár enda gangist ákærði undir sérhæfða lyfja- og geðræna meðferð hjá yfirlækni á réttargeðdeild.

Landsréttur birt 16. desember 2025

201/2025

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn Gunnlaugi Agnari Gunnlaugssyni (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Tilraun. Skilorð.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

G var gefið að sök að hafa útbúið og skilað til vátryggingafélags rangri tilkynningu um tjón vegna bifreiðar í hans eigu í því skyni að svíkja út vátryggingabætur. Í dómi Landsréttar var rakið að framburður G væri í heild metinn ótrúverðugur og væri horft til efnis tjóntilkynningar og gagna málsins væri fallist á það með ákæruvaldinu að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að G hefði haft ásetning til þess að blekkja vátryggingarfélagið til greiðslu bóta úr vátryggingu bifreiðarinnar. Fyrir lá að engar bætur voru greiddar úr vátryggingunni en því til samræmis var ákærði sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um refsingu G, fangelsi í 30 daga en refsingin var bundin skilorði í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2025

S-6190/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hrannari Markússyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Guðrúnu Ernu Levy (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. nóvember 2025

S-6725/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hrannari Páli Róbertssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. október 2025

S-4383/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Braga Frey Helgasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir auðgunarbrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum og dæmdur í 12 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar var ítrekuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2025

S-4138/2024

Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn Agli Rúnari Erlendssyni (Björgvin Jónsson lögmaður) og Steingrími Árnasyni (Eldjárn Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Tveir menn sakfelldir sem aðalmenn í fjársvikum í tengslum við skráningu og rekstur vefsíðna á internetinu og fyrir eftirfarandi peningaþvætti með millifærslu og móttöku fjármuna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. júní 2025

S-1155/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði dæmdur fyrir þjófnað og fjársvik með því að hafa misnotað greiðslukort sambýliskonu sinnar og tekið með þeim hætti rúmar sex milljónir króna af reikningi hennar. Með hliðsjón af óhæfilegum töfum á rannsókn málsins þótti refsing ákærða hæfilega ákveðin þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2025

S-2928/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Mána Freysteinssyni (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fjársvik. Var ákærða gerður hegningarauki vegna eldri brota og dæmdur í 15 daga fangelsi og gert að sæta upptöku fíkniefna og haldlagðra muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. maí 2025

S-2491/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Aleksas Kartanas (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tólf mánuði, fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, auk greiðslu bóta.

Hæstiréttur birt 12. mars 2025

36/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Ágústi Arnari Ágústssyni, Einari Ágústssyni, Zuism, trúfélagi, EAF ehf (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) og Threescore LLC (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Á og E voru ákærðir fyrir fjársvik tengd starfsemi trúfélagsins Z, sbr. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa, einkum frá 2017 til 2019 styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórnvalda að uppfyllt væru skilyrði til að skrá trúfélagið samkvæmt lögum nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Á þeim grundvelli hefði trúfélagið fengið greidd sóknargjöld úr ríkissjóði að fjárhæð samtals 84.727.320 krónur. Ákærðu var einnig gefið að sök peningaþvætti, sbr. 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga vegna meðferðar ávinnings af fjársvikabrotunum. Ákærðu kröfðust frávísunar, heimvísunar eða ómerkingar málsins vegna ágalla á ákæru og að samningu á dómi Landsréttar hafi verið áfátt. Hæstiréttur taldi enga þá formannmarka á málinu sem stæðu því í vegi að efnisdómur yrði lagður á það og staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Á og E en þó þannig að leggja yrði til grundvallar varðandi fjársvikabrotið að ákærðu hefðu styrkt og hagnýtt sér óljósa hugmynd viðkomandi starfsmanna ríkisins fremur en beinlínis ranga hugmynd þeirra. Ákærðu hafi þannig sameiginlega markvisst hagnýtt sér þá óvissu sem hafði skapast um starfsemi hins ákærða trúfélags Z og aflað því framlaga úr ríkissjóði sem það átti í reynd engan rétt á. Var staðfest niðurstaða Landsréttar um refsingu ákærðu. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um upptöku eigna ákærðu trúfélagsins Z og félaganna E ehf. og T LLC.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2025

S-4543/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gunnlaugi Agnari Gunnlaugssyni (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2024

S-5723/2024

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Einari Braga Þorkelssyni (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Skjalafals, fjársvik, brot í nánu sambandi og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2024

S-2720/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðjóni Bergi Jakobssyni (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2024

S-4003/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigríði Guðnadóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sem játaði brot sín dæmd til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir þjófnaðarbrot, nytjastuld, fjársvik og fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. október 2024

S-374/2023

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gestur Gunnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður sýknaður af ákæru fyrir fjársvik. Einkaréttarkröfu vísað frá héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. ágúst 2024

S-6164/2023

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Evu Marý Þórönnudóttur (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir ýmis brot, m.a. brot gegn valdstjórninni, líkamsárás, auðgunarbrot og umferðarlagabrot. Hún játaði brot sín skýlaust og viðurkenndi bótaskyldu.

Héraðsdómur Austurlands birt 28. júní 2024

S-193/2023

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Skjalafals.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir skjalafalls og fjársvik. Ólögmæti. Sýkna að hluta. Sakarkostnaður.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. júní 2024

S-1201/2024

Ákæruvaldið (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jón Ólafur Þorsteinsson (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðar líkamsárásir og eignaspjöll, þjófnað og fjársvik og dæmdur í átta mánaða fangelsi auk greiðslu skaða- og miskabóta. Skilorðsdómur upptekinn.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. maí 2024

S-138/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hauki Birni Guðnasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fjársvik, þjófnaðar- og vopnalagabrot og nytjastuld og dæmdur í átta mánaða fangelsi auk sviptingar ökuréttar. Hegningarauki að hluta. Ítrekun. Upptaka.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 22. mars 2024

S-264/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Kristrún Elsa Harðardóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir og fjársvik. Hegningarauki við fjóra dóma og refsing, með hliðsjón af því, ákveðin fangelsi í níu mánuði.

Landsréttur birt 22. mars 2024

305/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Ágústi Arnari Ágústssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður, Einar Oddur Sigurðsson lögmaður, 1. prófmál), Einari Ágústssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Zuism og trúfélagi og EAF ehf. og Threescore LLC
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Á og E voru ákærðir annars vegar fyrir fjársvik tengd starfsemi trúfélagsins Z, sbr. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og hins vegar fyrir peningaþvætti þannig að varði við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga. Í dómi Landsréttar var talið sannað að ákærðu hefðu á árunum 2017 til 2019 blekkt stjórnvöld að því er varðar starfsemi trúfélagsins. Á og E hefðu haft fulla vitneskju um það að þeir meðlimir sem komu inn í trúfélagið í árslok 2015, það er þegar meðlimir félagsins fóru úr því að vera innan við fimm og upp í tæplega 3000, hefðu komið þangað á öðrum forsendum en lágu til grundvallar skráningu trúfélagsins og því ekki verið unnt að telja þá sem meðlimi í trúfélaginu í skilningi laga nr. 108/1999. Í stað þess að gera sýslumanni og Fjársýslunni grein fyrir stöðunni sem uppi var, í samræmi við þær ríku trúnaðarskyldur sem hvíldu á Á sem forstöðumanni trúfélags, styrktu ákærðu og hagnýttu sér þá röngu hugmynd stjórnvalda að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar, sem leiddi til þess að félagið fékk greiddar í sóknargjöld 84.727.320 krónur, sem það átti samkvæmt lögum ekki tilkall til. Taldi Landsréttur ljóst að sú ákvörðun Fjársýslunnar að greiða út sóknargjöldin byggðist á þeirri villu stjórnvalda að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar, sem það gerði í reynd ekki. Þá nýttu Á og E hluta þeirra fjármuna er trúfélagið fékk greidda til eigin nota, en stærstan hluta þeirra færðu þeir af reikningi trúfélagsins inn á reikning T LLC. Með því ollu Á og E íslenska ríkinu fjártjóni án þess að unnt væri að slá umfangi þess föstu í ljósi kyrrsettra fjármuna. Þá var því slegið föstu að ákærðu hefðu staðið saman að þessum brotum. Voru Á og E því sakfelldir fyrir fjársvik. Jafnframt voru Á og E sakfelldir fyrir peningaþvætti með eftirfarandi ráðstöfun hinna ólögmætu fjármuna. Við ákvörðun refsingar Á var litið til þess að Á hafði ekki áður sætt refsingu og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár. Við ákvörðun refsingar E var litið til þess að brot hans væru að hluta hegningarauki. Var refsing E hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var fallist á upptökukröfur á hendur ákærðu, Z, trúfélagi, E ehf. og T LLC.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2024

S-6751/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Geir Þorsteinssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekin auðgunarbrot og umferðarlagabrot, nytjastuldur, skjalamisnotkun og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. janúar 2024

S-7051/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Arnari Guðjónssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2023

S-6683/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Benedikt Má Ingibjargarsyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í fangelsi í 7 mánuði fyrir fjársvik og rán, nytjastuld og umferðarlagabrot, húsbrot og þjófnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2023

S-5486/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Nino Laperashvili (Kári Valtýsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var sakfelld fyrir fjársvik og þjófnað og dæmd í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. nóvember 2023

S-5103/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Svavari Stefánssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

811/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Sönnun. Sýkna.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir fjársvik samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í félagi við Y blekkt starfsmenn Á með því að samþykkja kröfu að tilgreindri fjárhæð á þeim forsendum að um væri að ræða vangoldin laun X og laun hans á uppsagnarfresti á tilgreindu tímabili vegna gjaldþrots K ehf. Í dómi Landsréttar kom fram að V, meðákærði X í héraði, sem hefði verið framkvæmdastjóri F ehf. við gjaldþrot þess, hefði lýst því við skiptastjóra að félagið hefði skuldað sölumönnum laun við gjaldþrotið. X hefði ekki verið í stjórn félagsins og verið 19 ára er hann undirritaði ráðningarsamning við félagið. Þá hefði hann alla tíð staðhæft að hafa unnið fyrir félagið í stuttan tíma og ekki fengið greitt fyrir þá vinnu. Vísaði Landsréttur til þess að ekki fengist séð að X hefði gert reka að því að fá greiddar þær fjárhæðir sem ákæra málsins tæki til. Þvert á móti lægi fyrir að það hefði verið Y, faðir X og meðákærði í héraði, sem hefði framvísað tilskyldum gögnum hjá skiptastjóra í því skyni að launakröfu yrði lýst í þrotabúið fyrir hönd X. Jafnframt hefði hann gert kröfu um að Á myndi greiða þá kröfu. Samkvæmt þessu og gegn staðfastri neitun X og í ljósi fullyrðinga hans um raunverulegt vinnuframlag í þágu F ehf., sem fengi stoð í framburði meðákærða Y, væri uppi slíkur vafi um sekt X að sýkna bæri hann af sakargiftum í málinu.

Landsréttur birt 27. október 2023

461/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Einari Ágústssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður) (Guðmundur Siemsen lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Gísli Guðni Hall lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Með úrskurði endurupptökudóms 10. júní 2022 var fallist á beiðni E um endurupptöku á máli nr. 64/2018 sem dæmt var í Landsrétti 23. nóvember 2018. Með dómi Landsréttar var E sakfelldur fyrir fjársvik samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft af brotaþolum samtals að jafnvirði 74.336.000 króna með blekkingum á árunum 2010 til 2012. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál með því að hafa í 18 tilvikum á árunum 2011 til 2013 staðið að ólögmætum fjármagnshreyfingum milli landa að jafnvirði samtals 220.004.105 króna. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brotavilji E hefði verið einbeittur, brot hans þaulskipulögð og úthugsuð. Þá hefðu brotin staðið yfir í langan tíma og varðað háar fjárhæðir. Þótti refsing E hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár auk þess sem honum var gert að greiða brotaþolum skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2023

S-5106/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Rebekku Símonar Símonardóttur (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir fjársvik en var ekki gerð sérstök refsing m.a. vegna þess að um var að ræða hegningarauka. Þá var ákærðu gert að greiða skaðabætur.

Hleð fleiri dómum…