Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-6678/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Helgu Þorkelsdóttur

(Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fjársvik. Skilorðsbundnir dómar. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Útivist.

Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fjársvik. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, ásamt því sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 7. nóvember 2025, á hendur Helgu Þorkelsdóttur, kt. […], […], 112 Reykjavík,

I.

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 15. maí 2024, ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist oxazepam 260 ng/ml og zópíklón 15 ng/ml) um Suðurhellu í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

Fyrir fjársvik með því að hafa, föstudaginn 2. ágúst 2024, tekið tvær snyrtivörur í verslun […], í Kópavogi, farið með snyrtivörurnar að þjónustuborðinu í versluninni til að fá þeim skilað og þannig blekkt starfsmann verslunarinnar og með því svikið út inneignarnótu í staðinn fyrir vörurnar að samtals fjárhæð 11.798 kr., sem ákærða notaði svo til að greiða fyrir vörur sem ákærða sótti eftir að hafa farið aftur inn í verslunina stuttu síðar.

Telst háttsemi þessi varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Mál þetta var þingfest 17. desember 2025. Í þinghaldi þann dag óskaði verjandi ákærðu eftir frest til að ná ákærðu fyrir dóminn og var málinu ítrekað frestað til þess til þess, allt til dagsins í dag. Þingsókn féll svo niður í dag án þess að tilkynnt hefði verið um lögmæt forföll og verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 4. nóvember 2025, á ákærða nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. apríl 2016 var ákærðu gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 5. júní 2020, gekkst ákærða undir greiðslu fésektar og að sæta sviptingu ökuréttinda meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Ákærða gekkst undir greiðslu fésektar með tveimur sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 23. október 2020, fyrir akstur svipt ökuréttindum. Þá gekkst ákærða undir greiðslu fésektar og að sæta sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 26. apríl 2021, fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur svipt ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. júní 2022 var ákærðu gert að sæta fangelsi í 90 daga, gert að greiða fésekt og að sæta sviptingu ökuréttinda ævilangt meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja og akstur svipt ökuréttindum. Nú síðast var ákærðu með dómi Héraðsdóms Reykjaness 18. júlí 2024 gert að sæta fangelsi í 30 daga vegna aksturs svipt ökuréttindum.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærða hafi nú í fjórða sinn, eftir að hún varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sek um akstur svipt ökurétti og í fjórða sinn gerst sek um akstur undir áhrifum áfengis og/ ávana- og fíkniefna.

Brot ákærðu samkvæmt ákærulið I. var framið fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 18. júlí 2024. Verður ákærðu því dæmdur hegningarauki vegna þess brots nú.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju, 77. gr. og 256. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu eins mánaðar af refsingunni er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu áréttuð.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 106.020 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 110.940 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sonja Wiium saksóknarfulltrúi.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Helga Þorkelsdóttir, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu 1 mánaðar af refsingunni er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorði 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 106.020 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 110.940 krónur í annan sakarkostnað.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.71. gr.77. gr.1. mgr. 244. gr.248. gr.256. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.