Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-5974/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur

(Snorri Sturluson lögmaður)

Ekki gerð refsing. Fjársvik. Hegningarauki. Hylming. Játningarmál.

Ákærða sem játaði sök var sakfelld fyrir hylmingu og fjársvik. Var henni ekki gerð refsing í málinu en um var að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómum.

Dómur

Mál þetta sem dómtekið var 17. apríl 2026 er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 28. október 2025 á hendur Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur, ótilgreindu lögheimili, fyrir eftirtalin hegningarlagabrot: „I.

Þjófnað en til vara hylmingu, með því að hafa, fimmtudaginn 14. desember 2023, farið inn í […] í Kópavogi og stolið þaðan farsíma af gerðinni Samsung og greiðslukorti í eigu A, kt. […], en lögreglan fann umrædda muni í fórum ákærðu við öryggisleit á ákærðu í verslun […] að […] síðar hinn sama dag, og þannig haldið mununum ólöglega frá lögmætum eiganda sínum þrátt fyrir að ákærða vissi eða mátti vita að um þýfi væri að ræða.

Telst brot þetta samkvæmt ákæru varða við 1. mgr. 244 gr., en til vara 1. mgr. 254. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Fjársvik, með því að hafa, fimmtudaginn 14. desember 2023, svikið út vörur í verslun […] í […] í Kópavogi, að samanlögðu verðmæti kr. 4.178 kr. með því að framvísa þar á sjálfsafgreiðslukassa verslunarinnar, í blekkingarskyni og án heimildar, greiðslukorti í eigu A, kt. […], sem ákærða hafði komist yfir og látið þannig skuldfæra andvirði varanna á greiðslukort A, án heimildar hennar.

Telst brot þetta samkvæmt ákæru varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Er þess krafist í ákæru að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Í þinghaldi 17. apríl sl. féll ákæruvaldið frá því að ákæra fyrir þjófnað í ákærulið I.

Stendur því þar eftir ákæra fyrir hylmingu. Í kjölfarið játaði ákærða sök samkvæmt ákæru svo breyttri.

Ákærða hefur játað brot sín skýlaust. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Verjandi ákærðu krefst þess að ákærðu verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Hann krefst einnig málsvarnarlauna sér til handa.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði á ákærða nokkurn sakaferil að baki. Hinn 15. júní 2021 gekkst hún undir 200.000 króna lögreglustjórasekt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna jafnframt því sem hún var svipt ökurétti í 18 mánuði frá 15. júní 2021. Þá gekkst ákærða 6. september 2021 undir 664.000 króna viðurlagaákvörðun fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptingarakstursbrot, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Var hún jafnframt svipt ökurétti í tvö ár og þrjá mánuði frá 14. desember 2022. Hinn 4. maí 2023 var ákærða dæmd í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár vegna hegningarlagabrots. Ákærða var síðan dæmd 18. júlí 2023 í 45 daga fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, slævandi lyfja og sviptingarakstursbrot. Var sá dómur hegningarauki við dóm frá 4. maí 2023. Ákærða var 3. apríl 2024 dæmd í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað og fjársvik og loks var hún dæmd, 17. desember 2025, í fangelsi í fimm mánuði fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur svipt ökurétti.

Þau brot sem ákærða er hér dæmd fyrir voru framin áður en dómar gengu í málum hennar 3. apríl 2024 og 17. desember 2025. Er refsing hennar í málinu því hegningarauki við þá refsingu sem henni var ákveðin í þeim dómum. Langt er um liðið síðan ákærða framdi þau brot sem hér er ákært fyrir og horfir það henni til refsimildunar. Þá játaði hún brot sín greiðlega fyrir dómi.

Þegar litið er til alls þess sem að framan er rakið og með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er það niðurstaða dómsins að gera ákærðu ekki frekari refsingu vegna þeirra brota sem hér er ákært vegna.

Ákærða greiðir málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, sem telst hæfilega ákveðin 350.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki verður séð að annan sakarkostnað hafi leitt af rekstri málsins.

Björn Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærðu, Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur, er ekki gerð refsing.

Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar, 350.000 krónur.

Björn Þorvaldsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 78. gr.248. gr.1. mgr. 254. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.