X var ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa tekið samtals 4.785.252 krónur í reiðufé úr hraðbönkum með greiðslukorti A, og fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út vörur og þjónustu með framvísun á greiðslukorti A, fyrir samtals 1.699.256 krónur. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur fyrir alla þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Fyrir Landsrétti var ákærði sýknaður að hluta en sakfelldur að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, eða sem nam þjófnaði að fjárhæð 4.515.993 króna og fjársvikum að fjárhæð 1.567.625 króna. Var X dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins. Þá var X gert að greiða A samtals 6.083.618 krónur í skaðabætur með vöxtum og dráttarvöxtum.
Ákæruvaldið (
Einar Tryggvason saksóknari)
gegn
Sinh Xuan Luu (
Björgvin Jónsson lögmaður)
S var sakfelldur í héraði fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í fyrsta lagi staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2016 til og með 2019 vegna tekjuáranna 2015 til og með 2018 með því að vanframtelja annars vegar rekstrartekjur sínar og hins vegar leigutekjur sínar. Í öðru lagi fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum fyrir sjálfstæðan rekstur sinn uppgjörstímabilin janúar/ febrúar rekstrarárið 2015 til og með nóvember/desember rekstrarárið 2018 og í þriðja lagi látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar í samræmi við kröfur laga nr. 145/1994 um bókhald. Landsréttur féllst á það með S að tekjur hans á árinu 2015 hefðu verið tvítaldar í ákæru sem næmi tiltekinni fjárhæð og að frádráttarbær kostnaður í rekstri hans hafi verið hærri en gert væri ráð fyrir í málinu. Niðurstaða Landsréttar var sú að undanskot S frá greiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts næmu samtals 14.507.731 krónu og taldi rétturinn að brot hans samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru væru stórfelld í skilningi 1. mgr. 262. gr. almenna hegningarlaga. Sakargiftum um bókhaldsbrot samkvæmt 3. tölulið ákæru var vísað frá dómi þar sem háttsemislýsing ákæruliðarins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Refsing S var ákveðin sem hegningarauki við eldri dóm. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 2., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig til þess að dráttur hafði orðið á meðferð málsins. Var refsing S ákveðin fangelsi í 10 mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einnig var S gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 29 milljónir króna en sæta ella fangelsi í 330 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Shahin Alikhil
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Breka Þór Frímannssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Vali Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jón Gunnþórsson (Enginn)
Ákærði var sakfelldur fíkniefnalagabrot, nytjastuld, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, en brotið var hegningarauki við fyrri dóm.
Lögreglustjórinn á höfuðborgars (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Mindaugas Pekorius (
Ágúst Karl Karlsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sæþóri Braga Sölvasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnilagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Marcin Pawel Zielinski
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Valdimar Halldórssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svavari Stefánssyni (
Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótunarbrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sem játaði sök var sakfelld fyrir hylmingu og fjársvik. Var henni ekki gerð refsing í málinu en um var að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Heimi Erni Haraldssyni (
Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og dæmdur í tíu mánaða fangelsi, en þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, og til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgars (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Garðari Árnasyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Helga Val Mássyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Erlu Lind Sigurðardóttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn
Aðalsteini Javí Lárusi Skúlasyni (Enginn)
Maður, sem ekki kom fyrir dóm, sakfelldur fyrir fjársvik og dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar, en um hegningarauka var að ræða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Þór Rúnarssyni (
Orri Sigurðsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Valdimar Halldórssyni
Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Dómurinn var hegningarauki við dóm frá 12. september 2025.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur án ökurréttinda. Um var að ræða hegningarauka og ákærða ekki gerð frekari refsins en ævilöng ökuleyfissvipting áréttuð.
BJC var sakfelldur fyrir kynferðisbrot, kynferðislega áreitni og barnaverndarlagabrot með því að hafa viðhaft kynferðislegt tal eða átt í kynferðislegum samskiptum við brotaþola sem voru fimmtán stúlkubörn, auk þess sem hann sendi sumum þeirra kynferðislegt myndefni og fékk þær til að senda kynferðislegar myndir af sjálfum sér. Þá var B var einnig sakfelldur fyrir brot gegn lögum um nikótínvörur o.fl. með því að hafa afhent brotaþolanum H rafrettu. Varnir BJC fyrir Landsrétti byggðu einkum á því að hann hafi ekki talið brotaþola jafn ungar og raun bar vitni og hann ekki haft ásetning til að eiga í kynferðislegum samskiptum við börn. Í dómi Landsréttar kom fram að í tilviki margra brotaþola fullyrtu þær að þær hefðu gert BJC grein fyrir aldri sínum í upphafi samskipta við hann og báru þær með svipuðum hætti um hvernig það bar á góma í samskiptum við BJC, sem auki á trúverðugleika framburðar þeirra hvað það atriði varði. Þá beri gögn málsins með sér að í mörgum tilvikum hafi í notendanafni brotaþolanna á Snapchat verið tilvísun í fæðingarár þeirra. Hluti brotaþola hafi greint frá því að BJC hafi í sumum tilvikum boðið þeim gjafir, svo sem sælgæti, og boðist til að útvega þeim rafrettur og kynlífshjálpartæki en út frá því mætti álykta að um ungmenni væri að ræða. Var því slegið föstu að BJC hefði látið sér í léttu rúmi liggja aldur brotaþolanna allra og hann hafi ekki látið aldur þeirra hindra sig í kynferðislegum samskiptum við þær, í trausti þess að þau færu leynt. Þá hefði BJC jafnframt látið sér í léttu rúmi liggja afleiðingar verknaðar síns. Var BJC dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í þrjú ár og greiða brotaþolum nánar tilgreindar fjárhæðir í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)
gegn
Benone Stan (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sunnu Guðrúnu Jensen (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 45 daga.
J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.
SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Rolandas Bakas
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Óskari Mána Atlasyni (
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar, umferðar-, fíkniefnalaga-, og vopnalagabrot. Rauf ákærði skilorð og var honum dæmdur hegningarauki. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt ásamt upptöku fíkniefna og vopna.
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 90 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Þráni Júlíussyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Roksana Teresa Golabiewska (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða dæmd fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bogumil Staszkiewicz (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Smára Hermannssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárásir og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í átta mánuði. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola skaðabætur.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Ismael Imaalitane Maali (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í 10 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Atla Þór Strange
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 45 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daniel Vareika (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir þjófnaði, líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar og dæmdur til þess að sæta fangelsi í þrjá mánuði og til að greiða brotaþola miskabætur, bætur vegna fjártjóns og málskostnað.
Ákæruvaldið (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Erni Ásdísarsyni (
Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.
H var sakfelld fyrir ýmis þjófnaðarbrot, nytjastuld í tvígang og önnur brot er varða sýnileg sönnunargögn, tvö umferðarlagabrot, tvær líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar. Við ákvörðun refsingar H var litið til þess að umferðarlagabrotin töldust hegningarauki við nánar tilgreindan dóm. Með vísan til þess og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en að öðru leyti með vísan til sjónarmiða héraðsdóms að baki refsiákvörðun var refsing H ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hún svipt ökurétti í 18 mánuði en um tímalengd ökuréttarsviptingarinnar var tekið mið af meginreglu 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur P og V og H því gert að greiða P 250.000 krónur og V 350.000 krónur.
L var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ritað nafn A undir umsókn B ehf. um leigu bílaleigubifreiðar og samþykki viðskiptaskilmála og notað skjalið til þess að stofna til viðskipta við C ehf. Í dómi Landsréttar kom fram að í málinu lægi ekkert fyrir um að L hafi haft umboð til að skuldbinda B ehf. þegar þau atvik sem lýst er í ákæru áttu sér stað. Framburður A væri trúverðugur og afdráttarlaus um að L hafi enga heimild haft frá honum til að rita nafn hans á skjalið. Þá væri framburður L um að hann hafi fengið fullt umboð A til að rita nafn hans undir skuldbindingar fyrir hönd C ehf. ótrúverðugur og ætti sér ekki stoð í gögnum málsins. Yrði að leggja til grundvallar að með því að afhenda C ehf. umsóknina hafi L af ásetningi notað falsað skjal til að koma því til leiðar að B ehf. stofnaði til viðskipta við D ehf. um leigu bifreiða. Var refsing L ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið heimildarlaust inn um glugga á sumarhúsi og þar inni kveikt eld með þeim afleiðingum að sumarhúsið brann til grunna. Varðandi þá háttsemi J að brjóta útiljós við annað sumarhús í nágrenni við hitt taldist brotið fyrnt, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. og 5. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bótaábyrgð J gagnvart einkaréttarkröfuhafa staðfest og honum gert að greiða TM tryggingum hf. 14.298.040 krónur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Loga Frey Gunnlaugssyni (
Agnar Þór Guðmundsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga skilorðsbundið til tveggja ára ásamt upptöku efna.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Mikkael Ingiberg Gunnlaugssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
M var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt inn til landsins í þrjátíu pakkningum rúm 32 kg af efni sem hafði að geyma fíkniefnið DMT með 1,8% til 2,1% styrkleika, 51,98 grömm af DMT í formi grænna laufa og 392,17 grömm af Kratom. Þá var M sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti í tvö ár. Var M gert að sæta fangelsi í átján mánuði, sem bundið var skilorði til tveggja ára og upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Anisoara Chiroaica (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærða, sem játaði sök, dæmd í60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Svani Guðmundssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Hegningarauki. Skilorðsdómur dæmdur upp.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn
Jakobi Smára Erlingssyni (sjálfur)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta fangelsi í 15 daga. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Róberti Sigurjónssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Maður sakfelldur og dæmdur til fangelsisvistar vegna þjófnaðar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Unnari Sigurði Hansen (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Maður sakfelldur og dæmdur fyrir þjófnaðarbrot, skjalafals, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og brot gegn ákvæðum umferðarlaga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Þráni Júlíussyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 45 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Nerijus Peciulaitis
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 105 daga ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.