Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-1709/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Helga Val Mássyni
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Hegningarauki. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl 2026, á hendur Helga Val Mássyni, kt. […], Reykjavík,
I.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 16. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 120 ng/ml og kókaín 270 ng/ml) um Víkurveg í Reykjavík, við Hallsveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 1. febrúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 1,01 ‰ og amfetamín 460 ng/ml) um Reykjanesbraut í Reykjavík, við Grillhúsið, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en ákæra og fyrirkall var birt samkvæmt lögum. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a- lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 7. apríl 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 5. desember 2020 fyrir akstur undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 1. október 2021, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 28. janúar 2026 gert að sæta fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið til 2 ára, fyrir meðal annars akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna. Var ákærði einnig sviptur ökurétti í 5 ár frá 30. júní 2026 að telja. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.
Brot ákærða samkvæmt ákærulið I var framið fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 28. janúar 2026 og verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður lagt til grundvallar að ákærði hafi nú og vegna ákæruliðar II, í þriðja sinn gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og/eða áfengis, og í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti sinn, allt eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju , 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 398.123 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Helgi Valur Másson, sæti fangelsi í 60 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði 398.123 krónur í sakarkostnað.
Sigurbjörg Birta Berndsen