Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-174/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jón Gunnþórsson

(Enginn)

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fíkniefnalagabrot. Hegningarauki. Umferðarlagabrot. Umferðarlög.

Ákærði var sakfelldur fíkniefnalagabrot, nytjastuld, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, en brotið var hegningarauki við fyrri dóm.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 7. maí 2026, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 1. apríl sl., á hendur Jóni Gunnþórssyni, […],

I.

fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 27. október 2026, ekið bifreiðinni […] án heimildar eiganda, sviptur ökurétti ævilangt og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 620 ng/ml og metamfetamín 100 ng/ml) um Suðurlandsveg skammt frá Hveragerði, og þar utan í vegrið svo bifreiðin skemmdist og brak úr henni varð eftir víða á veginum og nærumhverfi hans. Enn fremur með því að hafa, í kjölfar framangreinds, eigi numið staðar og sinnt lögboðnum skyldum sínum við umferðaróhapp heldur ekið bifreiðinni að Kotströnd í Sveitarfélaginu Ölfusi og yfirgefið þar bifreiðina og farið fótgangandi af vettvangi, en lögregla kom þar að bifreiðinni mannlausri skömmu síðar.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og d. lið 1. mgr. 14. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: 318-2025-015789

II.

fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, á sömu stundu og stað sem greinir í ákærulið I. að framan, haft í vörslum sínum 11,23 g af amfetamíni sem ákærði geymdi innanklæða og framvísaði á lögreglustöð að Hörðuvöllum 1 á Selfossi, í kjölfar afskipta af honum umrætt sinn og lögregla haldlagði.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

M: 318-2025-015789

III.

fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, á sömu stundu og stað sem greinir í ákærulið I. að framan, haft í vörslum sínum 29,40 g af amfetamíni sem ákærði skildi eftir í plastpoka skammt frá Bakkárholtsá við Suðurlandsveg í Sveitarfélaginu Ölfusi, en lögregla fann fíkniefnin þar í kjölfar atvika er greinir í ákærulið I. að framan og haldlagði.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

M: 318-2025-015789

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Enn fremur til að sæta upptöku á samtals 40,63 g af amfetamíni, sbr. efnaskrár lögreglu nr. 57371 og 57380, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll þrátt fyrir lögmæta birtingu en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið því dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. mars 2026, á ákærði langan sakaferil að baki fyrir ýmis brot. Þannig hefur hann ítrekað gerst sekur um nytjastuld og hefur ítrekað verið sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti.

Nú síðast var hann með dómi Landsréttar, dags. 19. febrúar 2026, dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir m.a. nytjastuld, þjófnað, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Var sá dómur hegningarauki við dóm Héraðsdóm Norðurlands Eystra, dags. 24. júlí 2023.

Brot þau sem ákærði er sakfelldur fyrir nú voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms Landsréttar frá 19. febrúar 2026 og því ber að dæma ákærða hegningarauka í samræmi við 78. gr. laga nr. 19/1940, líkt og dæmt hefði verið um brotin öll í einu lagi með framangreindum dómi. Við ákvörðun refsingar í þessu máli verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 71. gr. laga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í sjöunda sinn ekið sviptur ökurétti.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefnis þessa máls, sakaferils ákærða, dómvenju og 77. og 78. gr. laga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fjórir mánuðir. Ekki þykir efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til hegningaraukasjónarmiða verður ákærða ekki gerð frekari ökuréttarsvipting.

Ákærði greiði 144.938 krónur í annan sakarkostnað.

Gerð eru upptæk samtals 40,63 g af amfetamíni, sbr. efnaskrár lögreglu nr. 57371 og 57380.

Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins.

Birgitta Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Jón Gunnþórsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Gerð eru upptæk samtals 40,63 g af amfetamíni, sbr. efnaskrár lögreglu nr. 57371 og 57380.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, samtals 144.938 krónur.

Birgitta Kristjánsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 71. gr.77. gr.78. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 14. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 94. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.