Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

334 dómar fundust

Lykilorð: Umferðarlög

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. júní 2026 kl. 8:56

S-114/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Jóni Þór Gíslasyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Farið var með málið eftir 161. gr. laga nr. 88/2008. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. júní 2026 kl. 8:43

S-113/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Ismael Imaalitane Maali (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærða var dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Með vísan til hegningaraukasjónarmiða var ákærða ekki gerð frekari ökuréttarsvipting.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. maí 2026 kl. 9:40

S-174/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jón Gunnþórsson (Enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fíkniefnalagabrot, nytjastuld, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, en brotið var hegningarauki við fyrri dóm.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. maí 2026 kl. 9:40

S-145/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ágústi Rúnarssyni (Sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. apríl 2026 kl. 15:06

S-99/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Þorgeiri Sturlu Víðissyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti, en farið var með málið eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 3 mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. apríl 2026 kl. 15:06

S-87/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Erni Guðmundssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum vímuefna og sviptur ökuréttindum, en farið var með málið samkvæmt a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans. Var honum þá einnig gert að greiða allan sakarkostnað málsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. apríl 2026 kl. 15:06

S-112/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Elfari Þór Helgasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti, en hann játaði brot sitt skýlaust undir meðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. apríl 2026 kl. 15:06

S-111/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Guðríði Sigurðardóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir ýmis umferðarlagabrot, m.a. akstur undir áhrifum vímuefna og akstur svipt ökurétti. Farið var með málið eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 75 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hennar. Þá var henni gert að greiða sakarkostnað málsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. apríl 2026 kl. 15:06

S-466/2025

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Þór Magnússyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum vímuefna. Var honum gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. apríl 2026 kl. 13:37

S-542/2025

Ákæruvaldið (Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hafþór Fjalar Kristinsson (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti ævilangt og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Dæmdur í 9 mánaða fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 26. febrúar 2026

S-614/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ahmed Albayyouk (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í 60 daga.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. janúar 2026

S-600/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ismael Imaalitane Maali (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. janúar 2026

S-597/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Þormari Thomassyni (Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Þá var ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. janúar 2026

S-119/2025

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Erni Ásdísarsyni (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-590/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Valentin Pintilie (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. nóvember 2025

E-2983/2024

TM tryggingar hf (Davíð Blöndal Þorgeirsson lögmaður) gegn A (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Talið sannað að stefndi hafi ekið ölvaður og undir áhrifum slævandi lyfja og valdið tjóni með stórkostlegt gáleysi í skilningi umferðarlaga. Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda þá fjárhæð sem stefnandi hafði greitt í skaðabætur til tjónþola á grundvelli laga um ökutækjatryggingar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. nóvember 2025

S-550/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Hauki Baldvinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. nóvember 2025

S-203/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Helenu Dagmar Bjarnþórsdóttur (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur svipt ökurétti. Var henni gert að sæta fangelsi í fimm mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. nóvember 2025

S-402/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Jakobi Smára Erlingssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta fangelsi í 15 daga. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2025

S-4049/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Unnari Sigurði Hansen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur og dæmdur fyrir þjófnaðarbrot, skjalafals, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og brot gegn ákvæðum umferðarlaga.

Landsréttur birt 23. október 2025

810/2024

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn ríkislögreglustjóra (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

R höfðaði mál og krafðist bóta úr hendi S vegna tjóns sem varð á lögreglubifreið er henni var við eftirför ekið á afturhorn bifreiðar, sem tryggð var lögboðinni ábyrgðartryggingu hjá S, í því skyni að stöðva akstur bifreiðarinnar. Í dómi Landsréttar var rakið að fyrir Landsrétti hefði S meðal annars lagt áherslu á að við sakarmat samkvæmt 89. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987 bæri að horfa til árekstrarstundar en aðdragandi þess að lögregla ákvað að keyra á skipti ekki máli. Vísaði Landsréttur til þess að atburðarás hafi hafist í Reykjavík við ákvörðun lögreglu um eftirför en henni lokið þegar lögreglubifreiðinni var ekið á vinstra afturhorn bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að bifreiðin snerist og fór út af veginum. Með árekstrinum hafi endi verið bundinn á eftirför lögreglu með ökumanni bifreiðarinnar sem hafi gerst sekur um ofsaakstur og skapað stórfellda hættu fyrir almenning. Hafi ákvörðun lögreglu um að stöðva för bifreiðarinnar með því að aka á hana markað lok samfelldrar atburðarásar sem hafi hafist nokkru fyrr. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um rétt R til bóta úr ábyrgðartryggingu S vegna tjóns á lögreglubifreiðinni.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. október 2025

S-383/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Ralf Raagas Landayan (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 120 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. september 2025

S-357/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Helga Dögg Pálsdóttir (Aníta Rögnvaldsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur svipt ökurétti. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga jafnframt sekt. Þá var ákærða svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. september 2025

S-352/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Rúnari Þorsteinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sex mánuði og ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. september 2025

S-290/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Elfari Þór Helgasyni (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði auk þess sem bifreið hans var gerð upptæk.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. september 2025

S-349/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Þorgeiri Sturlu Víðissyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. september 2025

S-288/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ísaki Gunnlaugssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um rán, sem og akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ekki var fallist á að skilyrði væru til að færa refsingu niður úr því lágmarki sem 252. gr. hegningarlaga mælir fyrir um. Var ákærða því gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. september 2025

S-277/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Kjartani Þór Kristgeirssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, auk ölvunaraksturs í eitt framangreindra skipta. Voru brot ákærða ítrekuð og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem honum var gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júlí 2025

S-3357/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Helga Birgissyni (Jóhann Baldursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, um var að ræða skilorðsrof og var refsing samkvæmt fyrri dómi dæmd upp.

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. júní 2025

S-212/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Guðmundi Bjarna Arnarssyni (Ólafur Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi.

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. júní 2025

S-263/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Talið sannað að ökumaður fólksbifreiðir hefði misst athygli við akstur, með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir rangan vegarhelming og olli alvarlegum árekstri. Ökumaður talinn hafa gerst með þessu sekur um stórkostlega gáleysi og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. maí 2025

E-2185/2024

A (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sóley Ragnarsdóttir lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar miskabætur á grundvelli hlutlægrar reglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnistöku sem hann var látinn sæta er akstur hans var stöðvaður vegna hraðaksturs. Hann fékk sekt vegna hraðasktursins en lögreglumálið var að öðru leyti fellt niður. Í málinu reyndi á það hvort stefnandi hefði valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann byggði kröfu sína á, m.a. með því að skýra aðspurður á vettvangi frá neyslu sem átt hefði sér stað „síðast fyrir löngu síðan“.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. apríl 2025

S-87/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ragnari Kristjáni Skúlasyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökurétti sem og skjalabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga jafnframt sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. apríl 2025

S-82/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Agnesi Gróu Jónsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem og akstur svipt ökurétti. Var henni gert að sæta fangelsi í sex mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hennar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 31. mars 2025

S-573/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sebastian Slazyk (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt sem og sakarkostnað.

Landsréttur birt 20. mars 2025

162/2024

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Árekstur varð með tveimur ökutækjum, bifreið og bifhjóli lögreglu sem var að fylgja sjúkrabifreið í neyðarakstri með sjúkling á sjúkrahús. Bifreiðin var tryggð lögboðnum ábyrgðar- og slysatryggingum hjá S hf. en bifhjólið var tryggt með sömu tryggingum hjá V hf. S hf. greiddi bætur vegna líkamstjóns ökumanna bifreiðarinnar og bifhjólsins og vegna tjóns á bifreiðinni og endurkrafði V hf. um helming þeirra fjárhæða. Byggði S hf. á því að ökumennirnir bæru jafna ábyrgð á árekstrinum og því bæri að skipta tjóninu jafnt með vísan til ákvæðis 89. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. V hf. hafnaði greiðsluskyldu og taldi að sá lögreglumaður sem ók bifhjólinu umrætt sinn hefði ekki sýnt af sér sök með akstri sínum. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að engin umferð hefði verið á þeirri akrein sem bifhjólið ók eftir og bifreiðar á hinni akreininni hefðu verið kyrrstæðar. Þar sem skilyrði 7. gr. reglna nr. 643/2004 um neyðarakstur hefðu verið uppfyllt og engin umferð á þeirri akrein sem bifhjólið ók á hefði ökumanni þess verið heimilt að víkja frá hátternisreglum umferðarlaga við aksturinn. Ökumaður bifhjólsins hefði ekki mátt gera ráð fyrir því að kyrrstæð ökutæki á hinni akreininni myndu beygja yfir óbrotna línu inn á þá akrein þar sem hann var og í veg fyrir bifhjólið. Var það því ekki metið ökumanni bifhjólsins til sakar að hafa vikið frá hátternisreglum umferðarlaga við aksturinn. Taldist hann af þeirri ástæðu ekki hafa sýnt af sér sök. Voru skilyrði 89. gr. þágildandi umferðarlaga fyrir skiptingu tjóns þar með ekki uppfyllt. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu V hf. af kröfum S hf.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. mars 2025

S-595/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Jóni Gústafi Magnússyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um rangar sakargiftir, ítrekaðan ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var að hluta frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða og gerð sekt og ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. mars 2025

S-680/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sveinbirni Á. S. Fanndal (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Með broti sínu hafði ákærði rofið skilorðs eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, sem skilorðsbundið var að hluta. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. febrúar 2025

E-7528/2023

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Hafnað var kröfu stefnanda um bætur úr hendi stefnda vegna þvingunaraðgerða lögreglu þar sem talið var að stefnandi hefði sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum sem leiddu til þeirra.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2025

S-1683/2024

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Bjarma Gerðarsyni (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Maður sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ekið bifreið sinni aftan á bifreið brotaþola með þeim afleiðingum að brotaþoli slasaðist og lífi og heilsu hans og farþega í bifreið brotaþola var stofan í augljósan háska.Refsing ákveðin fangelsi í 45 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.Ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur og allan sakarkostnað máls.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2025

E-2285/2024

Heiðbjört Helgudóttir Sturludóttir (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda um bætur vegna aðgerðar lögreglu til að afstýra akstri stefnanda undir áhrifum fíkniefna. Var hvorki talið að stefnandi hefði sætt rannsókn vegna gruns um refsiverða háttsemi, né að aðgerðir lögreglu teldust þvingunaraðgerðir sem jafnað yrði til þvingunaraðgerða í skilningi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð

Hleð fleiri dómum…