Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-99/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Þorgeiri Sturlu Víðissyni

Umferðarlagabrot. Umferðarlög.

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti, en farið var með málið eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 3 mánuði.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 26. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 26. febrúar 2026, á hendur Þorgeiri Sturlu Víðissyni, […], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 18. febrúar 2026, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Austurveg við GK bakarí á Selfossi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

M: 318-2026-xxxx Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall samkvæmt lögum. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 25. febrúar 2026, var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 25. janúar 2017, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 27. september 2019 var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Þá var ákærða gert að sæta fangelsi í 45 daga með dómi Héraðsdóms Suðurlands 31. mars 2025 vegna aksturs sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga með dómi Héraðsdóms Suðurlands 23. september 2025 vegna aksturs sviptur ökurétti. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn málsins.

Í samræmi við framangreint verður við ákvörðun refsingar í máli þessu lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fimmta sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 3 mánaða fangelsi.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi.

Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Þorgeir Sturla Víðisson, sæti fangelsi í 3 mánuði.

Sigurður G. Gíslason

Heimildaskrá