Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Ökutækjatrygging
Talið sannað að stefndi hafi ekið ölvaður og undir áhrifum slævandi lyfja og valdið tjóni með stórkostlegt gáleysi í skilningi umferðarlaga. Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda þá fjárhæð sem stefnandi hafði greitt í skaðabætur til tjónþola á grundvelli laga um ökutækjatryggingar.
Stefndi, tryggingarfélag, var sýknað af kröfum stefnanda sem krafðist viðurkenningu á bótaskyldu vegna afleiðinga líkamstjóns. Aðallega var krafist viðurkenningar á bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu en til vara úr lögboðinni ökutækjatryggingu.
Viðurkennd var full og óskert skaðabótaskylda hins stefnda tryggingarfélags úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns sem farþegi á léttu bifhjóli varð fyrir við árekstur bifhjólsins og bifreiðarinnar. Talið var að tjónið skyldi bætt úr ökutækjatryggingu bifreiðarinnar með vísan til 1.mgr.4.gr. laga nr. 30/2019 þar sem tjónið hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar. Ekki var fallist á að fella niður eða lækka bætur vegna tjóns farþegans enda þótt farþegi hjólsins sem fyrir tjóninu varð hefði verið hjálmlaus og þótt farþeginn hefði verið á bifhjólinu ásamt öðrum farþega og ökumanni en við mat á því að súháttsemi fæli ekki í sér stórkostlegt gáleysi kom m.a. ungur aldur farþegans sem var 14 ára þegar slysið varð.

Viðurkennd var bótaskylda stefnda, tryggingafélags, úr ábyrgðartryggingu ökutækisins, en þó aðeins vegna þriðjungs þess ætlaða líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir í umræddu umferðarslysi. Voru bætur til stefnanda þannig lækkaðar með hliðsjón af 4. mgr. 4. gr. laga um ökutækjatryggingar nr. 30/2019, þar sem að sýnt þótti vera nægilega fram á það að með háttarlagi sínu og ökumanns hefði stefnandi af stórkostlegu gáleysi verið meðvaldur að tjóni sínu með því að taka sér far með ökumanni bifreiðarinnar í greint sinn.