Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 8. júní 2026.
Mál nr. S-113/2026:
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Ismael Imaalitane Maali
(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð
Fíkniefnalagabrot. Umferðarlagabrot. Umferðarlög.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærða var dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Með vísan til hegningaraukasjónarmiða var ákærða ekki gerð frekari ökuréttarsvipting.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 28. maí sl., var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi þann 7. mars 2026, á hendur Ismael Imaalitane Maali, […]
I.
fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 30. nóvember 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 3,3 ng/ml) um Laugarvatnsveg á móts við Langarima í Grímsnesi- og Grafningshreppi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, á sömu stundu og stað sem greinir í ákærulið I. að framan, haft í vörslum sínum 1,66 g af maríhúana sem lögregla fann við leit í bakpoka sem ákærði hafði meðferðis og lögregla haldlagði.
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Enn fremur til að sæta upptöku á 1,66 g af maríhúana, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 57580, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Af hálfu ákæruvaldsins var við fyrirtöku málsins þann 28. maí sl. fallið frá ákærulið II, sem og upptökukröfu.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 20. apríl 2026, hefur ákærði ítrekað gerst sekur um brot gegn umferðarlögum nr. 77/2019. Ákærði gekkst undir greiðslu sektar sem og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á Vesturlandi 1. mars 2021 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar með sátt lögreglustjórans á Vesturlandi 23. febrúar 2023, þá fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærða með lögreglustjórasekt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 13. janúar 2025 gert að greiða sekt, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands Eystra 21. ágúst 2025 var ákærði dæmdur í fangelsi í 4 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Sá dómur var að hluta hegningarauki við framangreinda lögreglustjórasekt frá 13. janúar 2025. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Suðurlands 20. janúar 2025 dæmdur í fangelsi í 5 mánuði og ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Dómur þessi var að hluta hegningarauki við framangreindan dóm frá 21. ágúst 2025. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Norðurlands Eystra 24. mars 2026 gert að sæta fangelsi í 30 daga, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti, en dómur þessi var hegningarauki við fyrrnefndan dóm Héraðsdóms Suðurlands frá 20. janúar 2025.
Brot ákærða samkvæmt ákærulið I voru framin fyrir bæði dóm Héraðsdóms Suðurlands frá 20. janúar 2026 og Héraðsdóms Norðurlands Eystra frá 24. mars sama ár. Verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um hvoru tveggja akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju, 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem og skýlausri játningu ákærða, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi. Með vísan til dómvenju þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til hegningaraukasjónarmiða verður ákærða ekki gerð frekari ökuréttarsvipting nú.
Þá ber með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008, sbr. og 233. gr. sömu laga, að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, þar á meðal málsvarnarþóknun skipaðs verjanda hans, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, sem þykir með hliðsjón af eðli málsins og að teknu tilliti til framlagðrar tímaskýrslu lögmanns, hæfilega ákveðin 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og ferðakostnaður lögmannsins að fjárhæð 15.984 krónur. Þá greiði ákærði 135.255 krónur í annan sakarkostnað samkvæmt framlögðu yfirliti ákæruvaldsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Margrét Harpa Garðarsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Ismael Imaalitane Maali, sæti fangelsi í 60 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, 15.984 krónur vegna ferðakostnaðar lögmannsins og 135.255 krónur í annan sakarkostnað.
Sigurbjörg Birta Berndsen