Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-87/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Jóni Erni Guðmundssyni

Umferðarlagabrot. Umferðarlög.

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum vímuefna og sviptur ökuréttindum, en farið var með málið samkvæmt a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans. Var honum þá einnig gert að greiða allan sakarkostnað málsins.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið þann 26. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 24. febrúar 2026, á hendur Jóni Erni Guðmundssyni, […], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 17. janúar 2026, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist kókaín 430 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 9,2 ng/ml) um Sunnumörk í Hveragerði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: 318-2026-000814

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall samkvæmt lögum. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 11. febrúar 2026, gekkst ákærði undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt þann 11. janúar 2019, meðal annars vegna aksturs undir áhrifum vímuefna. Þá gekkst ákærði aftur undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasátt 11. júní 2021 vegna aksturs undir áhrifum vímuefna. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness þann 1. júní 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga fyrir hvoru tveggja akstur undir áhrifum vímuefna og akstur sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 15 daga með dómi Héraðsdóms Reykjaness fyrir akstur undir áhrifum vímuefna og aksturs sviptur ökurétti, en sá dómur var hegningarauki við framangreindan dóm frá 1. júní 2023. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn málsins.

Í samræmi við framangreint verður við ákvörðun refsingar í máli þessu lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum vímuefna, en í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.

Ákærði greiði 199.257 krónur í sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi.

Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Jón Örn Guðmundsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Ákærði greiði 199.257 krónur í sakarkostnað.

Sigurður G. Gíslason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 71. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.