Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 8. júní 2026.
Mál nr. S-114/2026:
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Jóni Þór Gíslasyni
(enginn)
Lykilorð
Umferðarlagabrot. Umferðarlög.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Farið var með málið eftir 161. gr. laga nr. 88/2008. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 28. maí sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 7. mars 2026, á hendur Jóni Þór Gíslasyni, […] fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 26. febrúar 2026, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Eyrabakkaveg við Stokkseyrarveg í Sveitarfélaginu Árborg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall samkvæmt lögum. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 3. mars 2026, hefur ákærði sex sinnum áður sætt refsingu vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 23. febrúar 2022 gekkst ákærði undir greiðslu sektar með sátt lögreglustjórans á Suðurlandi vegna aksturs sviptur ökurétti. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar með sátt lögreglustjórans á Suðurlandi vegna aksturs sviptur ökurétti. Með dómi Landsréttar 16. júní 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í sex mánuði m.a. vegna aksturs sviptur ökurétti, en þar af voru þrír mánuðir bundnir skilorði til tveggja ára. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 4. júlí 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í tíu mánuði m.a. vegna aksturs sviptur ökurétti, en þar af voru sjö mánuðir bundnir skilorði til tveggja ára. Var ákærða þar að hluta dæmdur hegningarauki, en að hluta var um að ræða rof á skilorði eldri dóms sem dæmt var upp í málinu. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 11. apríl 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í 14 mánuði, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í átta mánuði með dómi Héraðsdóms Suðurlands 21. janúar 2026, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Var sá dómur hegningarauki að hluta við framangreindan dóm frá 11. apríl 2024. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.
Í samræmi við framangreint verður við ákvörðun refsingar í máli þessu lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Margrét Harpa Garðarsdóttir aðstoðarsaksóknari Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Jón Þór Gíslason, sæti fangelsi í 4 mánuði.
Sigurbjörg Birta Berndsen