Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-145/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ágústi Rúnarssyni

(Sjálfur)

Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Umferðarlög.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 7. maí 2026, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 23. mars sl., á hendur Ágústi Rúnarssyni, […], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 6. mars 2026, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti ævilangt og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 1,19‰) um um Akureyjarveg við Kálfsstaði í Rangárþingi eystra, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: 318-2026-002972

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorð, dagsettu 24. mars 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar í 18 mánuði með lögreglustjórasátt 30. júlí 2020 fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Hann gekkst á ný undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar í fimm ár með lögreglustjórasátt 3. febrúar 2023 fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Þá var hann með dómi Héraðsdóms Vesturlands 29. september 2025 dæmdur í 30 daga fangelsi og hann sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti. Hann gekkst undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt 15. október 2025, en sáttin var hegningarauki við framangreindan dóm Héraðsdóm Vesturlands. Loks gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt 9. febrúar 2026 fyrir akstur sviptur ökurétti. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ekið undir áhrifum áfengis og í þriðja sinn ekið sviptur ökurétti.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 90 daga fangelsi. Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Þá er með vísan til lagaákvæða í ákæru, áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dómsins að telja. Ákærði greiði 50.038 krónur í sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari.

Birgitta Kristjánsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Ágúst Rúnarsson, sæti fangelsi í 90 daga.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Ákærði greiði 50.038 krónur í sakarkostnað.

Birgitta Kristjánsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 71. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 49. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.