Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-111/2026:

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Guðríði Sigurðardóttur

Umferðarlagabrot. Umferðarlög.

Ákærða var sakfelld fyrir ýmis umferðarlagabrot, m.a. akstur undir áhrifum vímuefna og akstur svipt ökurétti. Farið var með málið eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 75 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hennar. Þá var henni gert að greiða sakarkostnað málsins.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var þann 26. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 7. mars 2026, á hendur Guðríði Sigurðardóttur, […], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 21. nóvember 2025, ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 3,05 ‰) um bifreiðastæði við Austurhóla 2 á Selfossi og þar utan í bifreiðina […] með þeim afleiðingum að vinstri hlið og afturhurð bifreiðarinnar […] beyglaðist og án þess að nema staðar og sinna lögboðnum skyldum sínum við umferðaróhapp, lagt bifreið sinni í stæði og farið af vettvangi.

Telst háttsemi þessi varða við d. lið 1. mgr. 14. gr., 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

M: 318-2025-xxxxx Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Ákærða sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall samkvæmt lögum. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 4. mars 2026, gekkst ákærða þrívegis undir greiðslu fésektar með lögreglustjórasáttum árið 2021 vegna aksturs undir áhrifum áfengis. Þann 19. janúar 2023 gekkst ákærða undir greiðslu fésekta með tveimur lögreglastjórasáttum á ný, en í öðru málinu var henni m.a. gerð sekt vegna ölvunaraksturs og í hinu málinu vegna hvoru tveggja ölvunaraksturs og aksturs svipt ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra 4. apríl 2023 var ákærðu gerður hegningarauki og henni gert að sæta fangelsi í 4 mánuði m.a. vegna aksturs undir áhrifum áfengis og aksturs svipt ökurétti. Dómurinn var skilorðsbundinn til tveggja ára. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 7. desember 2023 var ákærða dæmd í 60 daga fangelsi, til greiðslu sektar og svipt ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir ölvunarakstur og akstur svipt ökurétti. Nú síðast var ákærðu gert að sæta fangelsi í 30 daga með dómi Héraðsdóms Suðurlands 26. febrúar 2026 vegna aksturs svipt ökurétti. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærða hafi nú í fjórða sinn, eftir að hún varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sek um akstur undir áhrifum áfengis, en í þriðja sinn gerst sek um akstur svipt ökurétti.

Brot ákærðu samkvæmt ákæru voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 26. febrúar sl. Verður ákærðu því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 75 daga fangelsi.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu áréttuð.

Ákærða greiði 122.114 krónur í sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi.

Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Guðríður Sigurðardóttir, sæti fangelsi í 75 daga.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.

Ákærða greiði 122.144 krónur í sakarkostnað.

Sigurður G. Gíslason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 71. gr.77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 14. gr.3. mgr. 49. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.