X var ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa tekið samtals 4.785.252 krónur í reiðufé úr hraðbönkum með greiðslukorti A, og fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út vörur og þjónustu með framvísun á greiðslukorti A, fyrir samtals 1.699.256 krónur. Með dómi héraðsdóms var ákærði sakfelldur fyrir alla þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Fyrir Landsrétti var ákærði sýknaður að hluta en sakfelldur að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, eða sem nam þjófnaði að fjárhæð 4.515.993 króna og fjársvikum að fjárhæð 1.567.625 króna. Var X dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins. Þá var X gert að greiða A samtals 6.083.618 krónur í skaðabætur með vöxtum og dráttarvöxtum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgars (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Mindaugas Pekorius (
Ágúst Karl Karlsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Marcin Pawel Zielinski
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. nauðgun og sifskaparbrot og dæmdur í þriggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óðni Þór Ingólfssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sem játaði sök var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Toader Cantaragiu (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik, fíkniefna- og útlendingalagabrot en sýknaður af ákæru fyrir brot á áfengislögum og lögreglusamþykkt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Erlu Lind Sigurðardóttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Luai Ómari Einarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hylmingu, þjófnað, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 13 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Ástþóri Tómassyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar-, vopna- og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga ásamt því að áréttuð varævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Steini Gíslasyni (
Grímur Már Þórólfsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga-, fíkniefnilaga og þjófnaðarbrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Joost Haandrikman (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Sakfellt fyrir 16 þjófnaðarbrot og ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið í tvö ár. Einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Osama Abdalkader (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og minniháttar líkamsárás. Einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Danival Guðjóni Stefánssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Mörtu Rybakiewicz (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmd í sjö mánaða fangelsi, en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir, og svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásu Elínardóttur (
Sveinn Andri Sveinsson)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld og þjófnað. Var henni gert að sæta fangelsi í 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Árnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og vopnalögum og dæmdur til að sæta fangelsi í 22 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Thi Oanh Pham
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnaðarbrot. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Graciano Vicente Mendonca Abreu og Paulo André S. Santana Afonso (sjálfir)
Tveir menn sakfelldir fyrir þjófnað og peningaþvætti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Loventa-Sonia Chiroaica (
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 30 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Florin-Cristian Burcea (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Maður, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnaði og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 45 daga. Skaðabótakröfu vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rafal Ryszard Kottlewski (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.
Ákæruvaldið (
Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sýknuð af því að hafa neitað að gangast undir öndunarpróf og gefa blóðsýni og ákæru um þjófnað og peningaþvætti
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásgeiri Hrafni Ólafssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og fíkniefnilagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Óskari Mána Atlasyni (
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar, umferðar-, fíkniefnalaga-, og vopnalagabrot. Rauf ákærði skilorð og var honum dæmdur hegningarauki. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt ásamt upptöku fíkniefna og vopna.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Roksana Teresa Golabiewska (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða dæmd fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bogumil Staszkiewicz (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Danila Alexandre De Sousa
Ákærða var sakfelld fyrir fjársvik og þjófnað og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Tönju Eydísi Oliver
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnað og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eimantas Dumcius (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Maður, sem játaði sök fyrir dómi, sakfelldur fyrir sjö þjófnaðarbrot og brot gegn vopnalögum. Eldri dómur tekinn upp þar sem um skilorðsrof var að ræða að hluta til. Dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða af þessum sex frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ísexi gerð upptæk.
Ákæruvaldið (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ionut-Daniel Vlad og Nicolae Stoica (
Jón Jónsson lögmaður)
Ákærðu voru dæmdir til skilorðsbundinna fangelsisrefsinga fyrir þjófnaði sem þeir viðhöfðu í félagi, auk þess sem þeir voru dæmdir til að greiða skaðabætur og vexti vegna háttseminnar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Gefn Geirdal Steinólfsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og
Þorkeli Diego Jónssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelld fyrir þjófnað í samverknaði, auk þess sem annar ákærðu var sakfelldur fyrir þjófnað, brot á lögum um ávana- og fíkniefni o.fl.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sæþóri Braga Sölvasyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjársvik og þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurjóni Sindra Skjaldarsyni (
Eldjárn Árnason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 11 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daniel Vareika (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir þjófnaði, líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar og dæmdur til þess að sæta fangelsi í þrjá mánuði og til að greiða brotaþola miskabætur, bætur vegna fjártjóns og málskostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aron Þóri Hafþórssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, þjófnað og umferðarlagabrot. Þá var hann dæmdur til greiðslu bóta og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Tudor Chiroaica (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Smára Óskari Hólmarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða var gerð refsing fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku að hluta á vopnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Arnari Jóel Sigdórssyni og X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða var gerð refsing fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Einnig var hann sviptur ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Helga Kristóferssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað. Voru brot hans rof á reynslulausn og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Þór Stefnissyni (
Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár enda gangist ákærði undir sérhæfða lyfja- og geðræna meðferð hjá yfirlækni á réttargeðdeild.
H var sakfelld fyrir ýmis þjófnaðarbrot, nytjastuld í tvígang og önnur brot er varða sýnileg sönnunargögn, tvö umferðarlagabrot, tvær líkamsárásir og tilraun til þjófnaðar. Við ákvörðun refsingar H var litið til þess að umferðarlagabrotin töldust hegningarauki við nánar tilgreindan dóm. Með vísan til þess og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en að öðru leyti með vísan til sjónarmiða héraðsdóms að baki refsiákvörðun var refsing H ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hún svipt ökurétti í 18 mánuði en um tímalengd ökuréttarsviptingarinnar var tekið mið af meginreglu 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur P og V og H því gert að greiða P 250.000 krónur og V 350.000 krónur.
S voru gefin að sök þjófnaðar-, gripdeildar- og umferðarlagabrot. S játaði háttsemina í héraði og var honum meðal annars gert að sæta fangelsi í fimm mánuði en fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði um fangelsisrefsingu S. Rakið var í dómi Landsréttar að S hafi í ákæru meðal annars verið ákærður fyrir þjófnað í verslun í apríl 2023. Háttsemin hafi verið heimfærð til gripdeildar í hinum áfrýjaða dómi en hvorki S né ákæruvaldið gert athugasemdir við heimfærsluna. Í samræmi við þetta hafi S verið sakfelldur í héraði fyrir fjögur gripdeildarbrot og tvö þjófnaðarbrot auk umferðarlagabrotsins. Við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til þess sem rakið var í héraðsdómi, S til refsiþyngingar, að þau auðgunarbrot sem hann var sakfelldur fyrir voru framin innan ítrekunartíma þjófnaðarbrots sem S hlaut dóm fyrir 1. apríl 2022. Einnig var horft til þess að S hafi játað brot sín skýlaust, honum til refsimildunar. Enn fremur var fallist á að ekki væru efni til að skilorðsbinda refsingu S en með þeim brotum sem hann var ákærður fyrir hafi S rofið skilorð. Með framangreindum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
Allir ákærðu sakfelldir fyrir fjárkúgun, rán og brot á barnaverndarlögum eða fyrir hlutdeild í þeim brotum. Einnig sakfellt fyrir minniháttar líkamsárás, eignaspjöll, þjófnað o.fl.
Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Kristjáni Vali Kristinssyni (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um þjófnað og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Modestas Ciesna (
Snorri Sturluson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir þjófnað, skjalafals og umferðarlagabrot.