Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-1681/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erlu Lind Sigurðardóttur
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Hegningarauki. Svipting ökuréttar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 31. mars 2026, á hendur Erlu Lind Sigurðardóttur, kt. […], […], Mosfellsbæ,
I.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 28. desember 2024 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 370 ng/ml, klónazepam 6,9 ng/ml og metýlfenídat 18 ng/ml) um Hæðasmára í Kópavogi, við Smáralind, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 9. janúar 2025 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist metýlfenídat 100 ng/ml) um Vesturlandsveg í Reykjavík, við Korputorg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
III.
fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 14. janúar 2025 í verslun Nettó, Sunnukrika 3 í Mosfellsbæ, stolið matvörum, samtals að verðmæti kr. 3.119.
Telst háttsemi þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 2. mars 2025 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 70 ng/ml og metýlfenídat 46 ng/ml) um Sæmundargötu í Reykjavík, við HÍ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Ákærða sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 27. mars 2026, var ákærða með dómi héraðsdóms í Noregi 25. mars 2021 dæmd í 30 daga fangelsi, meðal annars fyrir aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 17. janúar 2024 dæmd til greiðslu sektar og hún svipt ökurétti vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og aksturs svipt ökurétti. Nú síðast var ákærðu með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 22. janúar 2025 gert að sæta fangelsi í 105 daga og hún svipt ökurétti ævilangt, meðal annars vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og aksturs svipt ökurétti.
Brot ákærðu samkvæmt ákæruliðum I – III voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá 22. janúar 2025. Verður ákærðu því dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærða hafi nú og vegna ákæruliðar IV í fjórða sinn, eftir að hún varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sek um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, og í þriðja sinn gerst sek um akstur svipt ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu áréttuð frá birtingu dómsins að telja.
Ákærða greiði 530.733 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærða, Erla Lind Sigurðardóttir, sæti fangelsi í 4 mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.
Ákærða greiði 530.733 krónur í sakarkostnað.
Sigurbjörg Birta Berndsen