Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. apríl 2026.
Mál nr. S-995/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Ástþóri Tómassyni
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Svipting ökuréttar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaðar-, vopna- og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga ásamt því að áréttuð varævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 25. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. febrúar 2026, á hendur Ástþóri Tómassyni, kt. […], Reykjavík,
I.
Fyrir tilraun til þjófnaðar, fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 3. ágúst 2023, brotist inn í geymslur í húsnæði við […] í Reykjavík og gert tilraun til að stela þaðan skíðum, snjóbretti, golfsettum, ísexi, veiðistöng, verkfærum, bakpoka, kajakár, tágkörfu, spennubreytum, hlaupahjóli og hjálmi og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,22 grömm amfetamíni, 0,4 grömm og hálfa töflu af Alprazolam Krka, 5,22 grömm af marihúana og hníf sem lögregla lagði hald á við leit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. gr. og 3. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
II.
Fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa mánudaginn 19. ágúst 2024, við […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,44 grömm af amfetamíni og kasthníf sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og b. lið 2. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
III.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 16. maí 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 2,40 ‰) frá Eskifirði um Norðfjarðarveg þar til hann stöðvaði aksturinn við Hólmaháls þar sem lögregla hafði afskipti af honum.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
IV.
Fyrir vopnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 3. ágúst 2025, við […] í Stykkishólmi, haft í vörslum sínum hníf sem lögregla lagði hald á við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og 21. gr. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Þá er krafist upptöku á 1,66 grömmum af amfetamíni, 5,22 grömmum af marihuana, 0,4. grömmum og hálfri töflu af Alprazolam Krka, og þremur hnífum með munanúmerum 614140, 642998 og 673132.
Við þingfestingu málsins var af hálfu ákæruvaldsins óskað leiðréttingar á ákærulið I. Þar hafði ranglega verið tilgreint að magn Alprazolam Krka sem ákærða er gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum hafi verið 0,4 grömm auk hálfrar töflu, en hið rétta er að magn þess var 0,04 grömm og hálf tafla. Þá var af hálfu ákæruvaldsins fallið frá þeim hluta ákæruliðar II er varðar vörslur á 1,44 grömmum af amfetamíni, sbr. 2. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974. Loks féll ákæruvaldið frá tilvísun til 21. gr., sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998 í ákærulið IV. Af hálfu ákærða voru ekki gerðar athugasemdir við að ákæran yrði leiðrétt með þessum hætti.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærða er í ákærulið I gefinn að sök þjófnaður, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Brot ákærða gegn 244. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga, fyrnist á 5 árum, sbr. 2. tölulið 1. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot ákærða samkvæmt lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og vopnalögum nr. 16/1998 varða eins og hér háttar aðeins sektum og fyrnast þau því á 2 árum, sbr. 1. tölulið sömu málsgreinar. Brot ákærða eru ekki samkynja eða eðlisskyld og verður fyrning þeirra því ekki metin eftir 4. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. greinargerð með frumvarpi til laga nr. 20/1981 um breyting á almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955. Ekki verður af gögnum málsins ráðið að fyrningarfrestur hafi síðar rofnað eftir ákvæði 4. mgr. 82. gr. laganna. Með vísan til framangreinds teljast fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot ákærða í ákærulið I fyrnd. Verður ákærði því sýknaður af broti gegn 2. gr. og 3. gr., sbr. 4 og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 í ákærulið I.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 13. febrúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Með sátt lögreglustjórans á Austurlandi 9. janúar 2018 gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar vegna brota á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni sem og vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á Austurlandi 29. apríl 2019 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með tveimur sáttum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, annars vegar 11. september 2020 og hins vegar 7. október 2020, gekkst ákærði undir greiðslu sekta fyrir akstur sviptur ökurétti, brots á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, sem og fyrir brot á vopnalögum nr. 16/1998. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 12. apríl 2023 gert að sæta fangelsi í 30 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá verður og til þess litið að ákærði hefur ekki áður gerst sekur um auðgunarbrot sem og þess að langt er um liðið síðan brot samkvæmt ákærulið I átti sér stað.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 75 daga fangelsi.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð frá birtingu dóms þessa að telja.
Þá eru með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk 1,66 grömm af amfetamíni, 5,22 grömm af maríhúana, 0,04 grömm og hálf tafla af Alprazolam Krka, og þrír hnífar með munanúmerum 614140, 642998 og 673132.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 176.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 197.120 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi.
Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Ástþór Tómasson, sæti fangelsi 75 daga.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði sæti upptöku á 1,66 grömmum af amfetamíni, 5,22 grömmum af marihuana, 0,04 grömmum og hálfri töflu af Alprazolam Krka, og þremur hnífum með munanúmerum 614140, 642998 og 673132.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 176.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 197.120 krónur í annan sakarkostnað.
Sigurbjörg Birta Berndsen