Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 8. apríl 2026.
Mál nr. S-888/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Steini Gíslasyni
(Grímur Már Þórólfsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga-, fíkniefnilaga og þjófnaðarbrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 11. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. febrúar 2026, á hendur Pétri Steini Gíslasyni, kt. […], 101 Reykjavík,
I.
fyrir umferðar- og fíkniefnlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 27. október 2024 ekið létta bifhjólinu […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna því örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 935 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 4,1 ng/ml) um Ásbraut við Haukatorg í Hafnarfirði, og fyrir að hafa í vörslu sinni 2,93 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
II.
fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 13. júní 2024 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 780 ng/ml og metýlfenídat 39 ng/ml) um Hagasmára á bifreiðastæði við Smáralind í Kópavogi, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
III.
fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 25. september 2024 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 355 ng/ml, kókaín 6 ng/ml, MDMA 1200 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 3,2 ng/ml) um Kringlumýrarbraut við N1 í Reykjavík, þar sem lögreglastöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
IV.
fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 25. september 2024 brotist inn í Reykjavík Foto, Laugavegi 178, Reykjavík og stolið þaðan drónum og töskum með ýmis konar búnaði að óþekktu verðmæti.
Telst háttsemi þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
V.
fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 12. október 2024 brotist inni í geymslu í fjölbýlishúsi að […] í Reykjavík og stolið verkfærum, fatnaði oghleðslutæki fyrir rafmagnshlaupahjól að óþekktu verðmæti, og fyrir að hafa í vörslu sinni 0,47 g af amfetamíni sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
VI.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 31. janúar 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Suðurbraut við Holtanesti í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Jafnframt er krafist upptöku á samtals 3,40 g af amfetamíni skv. ákæruliðum 1 og 5, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 6. október 2025, gekkst ákærði undir sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 28. júlí 2023 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 6. desember 2023 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, vörslu fíkniefna og vopnalagabrot. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Undir meðferð málsins lagði verjandi ákærða fram vottorð, til staðfestingar á því að ákærði hefði sætt meðferð eftir að síðasta brotið átti sér stað. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tl. sama ákvæðis.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
Þá er með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk 3,40 g af amfetamíni.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gríms Más Þórólfssonar lögmaður, 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 503.944 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Pétur Steinn Gíslason, sæti fangelsi í þrjá mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði sæti upptöku á 3,40 g af amfetamíni.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gríms Más Þórólfssonar lögmanns, 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 503.944 krónur í annan sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir