Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-7124/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Luai Ómari Einarssyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Hylming. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir hylmingu, þjófnað, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 13 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 13. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. desember 2025, á hendur Luai Ómari Einarssyni, kt. […], […],Reykjavík, „I. fyrir [hylmingu] með því að hafa laugardaginn 13. júlí 2024 haft í vörslum sínum AirPods heyrnatól, Macbook Air fartölvu, Playstation 4 leikjatölvu, Playstation 5 leikjatölvu og iPhone farsíma, þrátt fyrir að ákærða hafi verið ljóst að um þýfi væri að ræða og þannig haldið mununum ólöglega fyrir eigandanum, en mununum var stolið úr innbroti í geymslu að […] í Reykjavík föstudaginn 12. júlí 2024. Lögregla hafði afskipti af ákærða 13. júlí 2024 í íbúð […] í Reykjavík þar sem hann framvísaði AirPods heyrnatólum, Macbook air fartölvu, Playstation 4 leikjatölvu og síðar sama dag framvísaði hann iPhone farsíma að […] í Reykjavík, en Playstation 5 leikjatölvuna hafði ákærði selt áður en lögregla hafði afskipti af honum.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 254. gr., en til vara 263. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum.

II.

fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 10. ágúst 2024 að […] í Reykjavík stolið rafmagnshlaupahjóli af gerðinni Xiaomi. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 23. febrúar 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 110 ng/ml) á bifreiðastæði við […] í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og haft í vörslum sínum 5,72 g af amfetamíni og 0,91 g af maríhúana, sem lögreglumenn fundu við leit í úlpu ákærða.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

IV.

fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 6. mars 2025 í verslun Nettó, Mjóddinni, Reykjavík, stolið vörum samtals að verðmæti kr. 2.659.

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V.

fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 14. júní 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1270 ng/ml, metýlfenídat 29 ng/ml og oxýkódon 60 ng/ml) norður Lönguhlíð í Reykjavík, gegn rauðu umferðarljósi við Flókagötu, en lögregla stöðvaði aksturinn við Háteigsveg. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

VI.

fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 1. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 87 ng/ml og oxýkódon 95 ng/ml) norður Álfabakka í Reykjavík, við Olís, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

VII.

fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 2. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 115 ng/ml og oxýkódon 95 ng/ml) um Stíflusel í Reykjavík, við hús nr. […], þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

VIII.

fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 21. september 2025 í verslun Bónuss, Smáratorgi, Kópavogi, stolið sólgleraugum að verðmæti kr. 1.598.

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 5,72 g af amfetamíni og 0,91 g af maríhúana, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.“

Við þingfestingu málsins hinn 28. janúar sl. var af hálfu ákæruvaldsins upplýst að láðst hafði að tilgreina í upphafi ákæruliðar I að ákærða væri gefin að sök hylming. Hefur ákæra verið leiðrétt að þessu leyti, án athugasemda af hálfu ákærða.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. janúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2009, en frá þeim tíma hefur ákærði í nokkur skipti gerst sekur um meðal annars auðgunarbrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Þannig var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 3. maí 2012 gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til 3 ára, fyrir fíkniefnalagabrot og þjófnað. Þá var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 30. ágúst 2012 gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til 3 ára, fyrir þjófnað, en dómur þessi var hegningarauki við áðurnefndan dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. maí sama ár. Með viðurlagaákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 28. maí 2013 gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar vegna fíkniefnalagabrots og aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 7. febrúar 2015 vegna aksturs undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna og aksturs sviptur ökurétti. Þá var ákærða á árunum 2015 og 2016 þrívegis gert að greiða sekt með sáttum lögreglustjóra vegna fíkniefnalagabrota. Með dómi Landsréttar 15. júní 2018 var ákærða gert að sæta fangelsi í 12 mánuði, þar of voru 9 mánuðir skilorðsbundnir í 2 ár, fyrir meðal annars þjófnað, fíkniefnalagabrot og akstur sviptur ökurétti. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 20 mánuði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 14. desember 2019 fyrir meðal annars þjófnað, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Með dóminum var skilorðsbundin refsing tekin upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, en dómurinn var hegningarauki við áðurnefndan dóm Landsréttar frá 15. júní 2018. Var ákærða veitt reynslulausn 2. júlí 2020 í 2 ár af eftirstöðvum refsingarinnar. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 18. júní 2021 dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti, en með dóminum var framangreind reynslulausn dæmd upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fimmta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti og í fjórða sinn gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 13 mánuði. Með vísan til dómvenju sem og sakaferils ákærða þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna að nokkru leyti.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Þá eru með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk 5,72 g af amfetamíni og 0,91 g af maríhúana.

Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnað, en til hans telst þóknun skipaðs verjanda hans, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, bæði á rannsóknarstigi málsins og hér fyrir dómi, sem þykir með hliðsjón af eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 318.060 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og annar sakarkostnaður að fjárhæð 813.912 krónur samkvæmt framlögðu yfirliti.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Sigurbjörg Birta Berndsen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Luai Ómar Einarsson, sæti fangelsi í 13 mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði sæti upptöku á 5,72 g af amfetamíni og 0,91 g af maríhúana.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefán Karls Kristjánssonar lögmanns, 318.060 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 813.912 krónur í annan sakarkostnað.

Sigurbjörg Birta Berndsen

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.77. gr.244. gr.1. mgr. 254. gr.263. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.