Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sem játaði sök var sakfelld fyrir hylmingu og fjársvik. Var henni ekki gerð refsing í málinu en um var að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Luai Ómari Einarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hylmingu, þjófnað, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 13 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Mörtu Rybakiewicz (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmd í sjö mánaða fangelsi, en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir, og svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Helga Val Mássyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hylmingu og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, upptöku fíkniefna og sviptingu ökuréttinda í 5 ár.
Ákærðu sakfelldir fyrir hylmingu, en sýknaðir að hluta og dæmdir í 10 mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta.
Ákæruvaldið (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erlingi Einarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur m.a. sakfelldur fyrir ítrekuð auðgunarbrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Adam Piet (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elí Helga Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn hegningarlögum, fíkniefnalögum og vopnalögum.
BS var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi, sbr. 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í tvö aðgreind skipti veist að þáverandi sambýliskonu sinni A með fjölþættu líkamlegu ofbeldi sem fól í sér endurtekna ógn við heilsu hennar og olli henni líkamlegum meiðslum. Jafnframt var BS sakfelldur fyrir tilraun til hylmingar, sbr. 254. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga með því að hafa í fórum sínum illa fengið reiðhjól. Aðrir ákæruliðir voru ekki til endurskoðunar fyrir Landsrétti. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af sakaferli BS og jafnframt litið til 1. til 3. tl. og 5. til 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 78. gr., sbr. 77. gr., almennra hegningarlaga. Refsing BS var ákveðin fangelsi í 18 mánuði og honum gert að greiða A 1.800.000 krónur í miskabætur og B 978.314 krónur í skaða- og miskabætur.
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, eignaspjöll, hylmingu, líkamsárás
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Krzysztof Zielinski
Maður sakfelldur fyrir hylmingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Baldri Kolbeinssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi og til að sæta upptöku ávana- og fíkniefna og lyfja. Til frádráttar dæmdri refsingu kom gæsluvarðhald ákærða.
Héraðssaksóknari (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur (
Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldar fyrir hylmingu en sýknaðar af ákæru vegna brots á höfundalögum og hlutdeildar í broti á hagsmunum almennings. Voru ákærðu dæmdar í 30 daga skilorðsbundið fangelsi en bótakröfu var vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Geir Karlssyni (
Stefán Karl Stefánsson lögmaður)
Ákærði m.a. sakfelldur fyrir fjölmörg auðgunarbrot og húsbrot.
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. rán, eignaspjöll, þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í 3 ár.
Í málinu voru tveir karlmenn ákærðir. Annar fyrir þjófnað en hinn aðallega fyrir peningaþvætti en til vara hylmingu. Báðir sýknaðir og þá var kröfu varðandi peningaþvætti sem og einkaréttarkröfu vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Ísmari Erni Steinþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga- og hegningarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi, gert að sæta upptöku fíkniefna og sviptingu ökuréttar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aron Romanik (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur án ökuréttinda, ítrekuð þjófnaðarbrot og hylmingu.
Ákæruvaldið (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björgvin Sigmari M. Ómarssyni (
Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Sakfellt fyrir ofbeldi í nánu sambandi, tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, tilraun til hylmingar, fíkniefnabrot, þjófnað, húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, brot gegn lögreglulögum, brot gegn sóttvarnarlögum o.fl. Sýknað af hluta af ákæru eða háttsemi felld undir vægari refsiákvæði eða tilraun. Refsing var ákveðin 18 mánaða fangelsi og var um að ræða hegningarauka við eldri dóm.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Raimund Levarovski (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 7 mánuði. Svipting ökuréttar. Fíkniefni gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Breka Berglindarsyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði, tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Gylfa Jónssyni
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna- og lyfjalagabrot og gert að sæta fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærði var sviptur ökurétti í 18 mánuði. Upptæk voru fíkniefni og lyf og ákærða gert að greiða sakarkostnað.
S var sakfelld fyrir fjögur þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, nytjastuld í fjórum tilvikum, hylmingu og fjársvik í tvígang, skjalabrot, húsbrot, tollalagabrot, tvö brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot með því að hafa alls 18 sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af 11 sinnum að auki undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hún sakfelld fyrir önnur umferðarlagabrot og brot gegn 1. mgr. 168. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en með þeirri háttsemi raskaði hún umferðaröryggi á alfaraleið og stofnaði lífi og heilsu fólks í hættu á ófyrirleitinn hátt. Með hliðsjón af framansögðu og þrátt fyrir að S hafi játað brot sín skýlaust og ekki áður sætt refsingu þóttu ekki vera efni til að skilorðsbinda refsingu hennar að hluta eða í heild. Var S gert að sæta fangelsi í átta mánuði.
X var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og hegningarlagabrot, þar á meðal líkamsárás, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 13. ágúst 2019, 26. september 2019 og 14. janúar 2020. Með dómi Landsréttar var dæmt um umferðarlagabrot X samkvæmt ákærunni 13. ágúst 2019 eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að ákæran var gefin út. Hluti af brotum X voru hegningarauki við annars vegar dóm hans frá 4. febrúar 2019 og hins vegar sátt frá 2. nóvember 2017. Var fyrrnefndur dómur X tekinn upp með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og refsing ákveðin í einu lagi með hliðsjón af 77. og 78. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar X var meðal annars litið til þess að grundvallarbreyting hefði orðið á högum hans og til 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár og ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð, auk þess sem gerð voru upptæk tilgreind fíkniefni og honum gert að greiða K ehf. tiltekna fjárhæð ásamt vöxtum og dráttarvöxtum.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Fannari Frey Jónssyni og Aroni Alex Jónssyni (sjálfir)
Annar ákærðu var fundinn sekur um þjófnað, peningaþvætti og eignaspjöll og hinn eingöngu fyrir peningaþvætti. Var báðum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingar þeirra beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason saksóknari)
gegn
Reyni Strandberg Arnarsyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
R var sakfelldur fyrir hylmingu og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk annarra umferðarlagabrota. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot R eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Refsing R var ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða sekt í ríkissjóð auk þess sem hann var sviptur ökurétti.
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.
G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í tvígang, án þess að hafa skotvopnaleyfi og í síðara skiptið jafnframt verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, haft skotvopn í vörslum sínum. Hann var auk þess sakfelldur í síðara skiptið fyrir hylmingu umrædds skotvopns með því að hafa haldið því með ólögmætum hætti frá lögmætum eiganda þess. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Þau brot sem G var sakfelldur fyrir framdi hann í október og nóvember 2017, fyrir uppsögu héraðsdóms í nóvember 2018, sem staðfestur var með dómi Landsréttar í nóvember 2019. Því var honum gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. sömu laga og sakaferils G. Refsing hans var ákveðin fangelsi í átta mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn
Theodóri Hertervig Línusyni I (008-2020-2336)
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og hylmingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ölmu Lind Smáradóttur (
Ragnar Björgvinsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir ýmis hegningarlagabrot, þjófnaður, fjársvik og hylming, og fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Hluti þeirra brota sem ákærða var sakfelld fyrir voru hegningarauki við fyrri dóm og ákærða því dæmdur hegningarauki í samræmi við 78. gr. laga nr. 19/1940. Ákærða rauf skilorð fyrri dóms með hluta af þeim brotum sem hún var sakfelld fyrir og var skilorðsrefsingin því tekin upp og ákærðu gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940. Þá var ákærðu gert að sæta upptöku á fíkniefnum og hníf sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X og Y (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefna- og umferðarlagabrot, brot í nánu sambandi, nytjastuld, hylmingu, fjársvik, tilraun til fjársvika, skjalafals og vopnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Emil Frey Júlíussyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur m.a. fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og dæmdur í tveggja ára fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttur og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum og vopnum.
Ákærði sakfelldur fyrir hegningarlaga-, umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot. Refsing fangelsi í 10 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svavari Þór Georgssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði og hylmingu.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum, hilmingu, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og vopnalagabrot. Deilt um hegningarauka og ítrekunaráhrif.
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, hylmingu og umferðarlagabrot, nánar tiltekið fyrir að hafa í samtals átta skipti ekið sviptur ökurétti, þar af í sex skipti einnig óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 20 mánuði.
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (
Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Agli Má Magnússyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, umferðarlagabrot o.fl.og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi auk sviptingar ökuréttar.
Ákæruvaldið (
Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Óðni Frey Valgeirssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lofti Karli Magnússyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, skjalabrot, fíkniefnalagabrot, hylmingu og tilraun til þjófnaðar. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rúnari Bjarna Bjarnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur m.a. fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, auðgunarbrot, ofbeldisbrot. Hann játaði brot sín að stærstum hluta. Refsimildandi ástæður.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ingólfi Ágústi Hjörleifssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg hegningar-, vopna- og fíkniefnalagabrot. Refsing ákærða ákveðin 18 mánaða fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir margvísleg hegningarlagabrot
Í var sakfelldur í héraði fyrir tólf þjófnaðarbrot, hylmingu, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Fyrir Landsrétti var meðal annars deilt um það hvort Í hefði brotið gegn 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa neitað að gefa þvagsýni við rannsókn málsins hjá lögreglu. Þá krafðist hann sýknu af þjófnaði á reiðhjóli sem hann hafði verið sakfelldur fyrir í héraði. Í dómi Landsréttar kom fram að ákærði losnaði ekki undan refsiábyrgð vegna synjunar sinnar af þeirri ástæðu að honum hafi ekki verið veittar leiðbeiningar um hvaða viðurlögum það kynni að varða ef hann léti ekki í té þvagsýni til rannsóknar, samanber dóm Hæstaréttar í máli nr. 304/2009. Enn fremur þótti sannað að Í hefði gerst sekur um að hafa stolið reiðhjólinu. Var héraðsdómur því staðfestur um sakfellingu Í. Við ákvörðun refsingar Í var litið til sakarferils hans auk þess sem tekið var tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing Í ákveðin fangelsi í tólf mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.
Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot og dæmdur í fangelsi í átta mánuði.
Ákærðu sakfelld fyrir fjölmörg brot gegn hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Braga Þorkelssyni (
Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði og hylmingu.
Játningarmál. Maður dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir þjófnað, gripdeild og hylmingu.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kristni Helga Eiríkssyni (
Þórdís Bjarnadóttir hrl)
Ákærði var sakfelldur fyrir hylmingu og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Katrínu Gestsdóttur (313-2016-18987)
K var dæmd í 8 mánaða fangelsi fyrir að aka undir áhrifum áfengis svipt ökurétti og hylmingu.