Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

I

Mál þetta, sem þingfest var 24. júní 2019 en dómtekið 23. september sama ár, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 14. maí 2019 á hendur Ragnari Ólafssyni, 000000-0000, Digranesheiði 2, Kópavogi, fyrir eftirtalin hegningar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot;

I.

„1. Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 29. janúar 2017, ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 55 ng/ml af amfetamíni, 20 ng/ml af kókaíni og 0,40‰ vínandi, í þvagi mældist amfetamín og kókaín) frá bifreiðastæði við Hamraborg 11 í Kópavogi, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Mál nr. 007-2017-4507

Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

  1. Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 6. mars 2017, ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 435 ng/ml af amfetamíni og í þvagi mældist amfetamín) um Bæjarbraut í Garðabæ, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

    Mál nr. 007-2017-10508

    Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

III.

  1. Þjófnað með því að hafa, laugardaginn 13. maí 2017, stolið úr verslun Elko, að Fiskislóð 15 í Reykjavík, Sonos hátalara að söluverðmæti 51.895 kr.

    Mál nr. 007-2017-27421

IV.

  1. Hylmingu með því að hafa, um nokkurt skeið og fram til þriðjudagsins 5. september 2017, tekið við og haft í vörslum sínum, í félagi við A, kt. 000000-0000, tölvu- og myndavélabúnað, að áætluðu verðmæti 2.581.364 kr., sem fannst við húsleit lögreglu á heimili þeirra að Háteigsvegi 2 í Reykjavík, en munum þessum hafði verið stolið úr húsnæði að [...] í Reykjavík laugardaginn 2. september 2017 og eftirtalda muni að samtals áætluðu verðmæti 2.480.000 kr., sem fundust við sömu húsleit, en munum þessum hafði verið stolið úr íbúð að Þingholtsstræti 6 í Reykjavík mánudaginn 4. september 2017:

    Mál nr. 007-2017-52012 og 007-2017-52144

Munanúmer: Lýsing munar: Fjöldi: Áætlað verðmæti:
448568 Macbook pro fartölva 1 stk. 300.000 kr.
448567 Lenovo Ideapad fartölva 1 stk. 130.000 kr.
448564 Silfurhringur 3 stk. 250.000 kr.
448569 Cartier armbandsúr 1 stk. 1.800.000 kr.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 5. september 2017, haft í vörslum sínum, í félagi við A, kt. 000000-0000, 65,18 g af maríhúana, sem fannst við húsleit sem greinir í 5. tl., og lagt var hald á. Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

V.

  1. Umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 13. september 2018, ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 215 ng/ml af amfetamíni) um Háaleitisbraut í Reykjavík, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar við Háaleitisbraut nr. 58-60.

    Mál nr. 007-2018-61884

    Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Þess er jafnframt krafist að gerð verði upptæk framangreind fíkniefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

    Við þingfestingu málsins kom ákærði kom fyrir dóminn og játaði háttsemi sem lýst er í I. og II. lið ákærunnar, en telur sakir fyrndar og því verði honum ekki gerð refsing vegna þeirra brota. Þá játaði hann fíkniefnalagabrot sem lýst er í 5. tölulið IV. liðar ákærunnar. Að öðru leyti neitaði hann sakargiftum. Við fyrirtöku málsins 23. september 2019 féll ákæruvaldið frá ákæruliðum í 3. tölulið III. liðar, 4. tölulið IV. liðar og 6. tölulið í V. lið. Við sama tækifæri féllst ákærði á upptökukröfu ákæruvaldsins.

    Þar sem ákærði játaði skýlaust brot sín, að teknu tilliti til framangreindra breytinga á ákæru, og dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans sé sannleikanum samkvæm, var ákveðið að fara með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. og 4. mgr. 183. gr. sömu laga. Að því búnu reifuðu sækjandi og verjandi sjónarmið hvors um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

II

Eins og áður segir játaði ákærði þá háttsemi sem lýst er í I. og II. lið ákærunnar, en telur þær sakir fyrndar og því verði honum ekki gerð refsing, enda geti refsing fyrir þau brot ekki varðað annað en sektum þar sem líta beri svo á að um fyrsta brot sé að ræða. Að auki játaði hann fíkniefnalagabrot sem lýst er í 5. tölulið IV. liðar ákærunnar. Krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa og að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð.

Ákærði framdi fyrra umferðarlagabrotið samkvæmt ákæru 29. janúar 2017, en hið síðara 6. mars sama ár. Í 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 er mælt svo fyrir að brot gegn þeim þeim lögum eða reglum, sem settar eru samkvæmt þeim, varði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Þá segir í 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að þegar ekki liggi þyngri refsing við broti en eins árs fangelsi, eða refsing sú sem til er unnið fer ekki fram úr sektum, þá fyrnist sök á tveimur árum. Hins vegar fyrnist sök á fimm árum þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en fjögurra ára fangelsi.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann tvisvar hlotið refsingu sem skiptir máli við mat á refsingu hans nú. Annars vegar gekkst hann undir greiðslu sektar að fjárhæð 140.000 krónur með sátt hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 24. febrúar 2012 vegna brota á umferðarlögum, þar á meðal fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Jafnframt var hann frá sama degi sviptur ökurétti í 24 mánuði. Hins vegar var hann með dómi Hæstaréttar 22. apríl 2015 dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 100.000 krónur vegna brota á umferðarlögum, þar á meðal fyrir sömu brot og hann er nú ákærður fyrir, auk brota á lögreglulögum. Að auki var hann sviptur ökurétti í tvö ár frá 9. maí 2014. Með vísan til þessa hefur ákærði með brotum þeim sem lýst er í ákæruliðum I. og II. gerst sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og er háttsemi hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Vegna þeirra brota, og að teknu tilliti til þess að brot hans eru ófyrnd samkvæmt ofansögðu, verður hann í samræmi við dómvenju dæmdur til fangelsisrefsingar, auk ævilangrar ökuréttarsviptingar, sbr. 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Fram er komið að ákærði játaði þá háttsemi sem lýst er í 5. tölulið IV. liðar ákærunnar. Í ljósi skýlausrar játningar ákærða og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga, auk þess sem svipta ber hann ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Þá verður ákærða í samræmi við tilvitnuð ákvæði í ákæru gert að sæta upptöku á 65,18 g af maríhúana, sem fundust við húsleit lögreglu.

Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins, en þar er um að ræða sakarkostnað lögreglu að fjárhæð 232.867 krónur, auk þóknunar til skipaðs verjanda ákærða, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 295.120 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Ragnar Ólafsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Upptæk skulu gerð til ríkissjóðs 65,18 g af maríhúana. Ákærði greiði alls 527.987 krónur í sakarkostnað, þar af 295.120 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns.

Ingimundur Einarsson

Heimildaskrá