Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

989 dómar fundust

Lykilorð: Ökuréttarsvipting

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2026 kl. 16:23

S-3226/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Söndru Rún Raybould (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2025

S-6190/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hrannari Markússyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Guðrúnu Ernu Levy (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

987/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Mikkael Ingiberg Gunnlaugssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt inn til landsins í þrjátíu pakkningum rúm 32 kg af efni sem hafði að geyma fíkniefnið DMT með 1,8% til 2,1% styrkleika, 51,98 grömm af DMT í formi grænna laufa og 392,17 grömm af Kratom. Þá var M sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti í tvö ár. Var M gert að sæta fangelsi í átján mánuði, sem bundið var skilorði til tveggja ára og upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2025

S-969/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Rúnarssyni (Orri Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 90 daga fangelsi vegna ítrekaðs ölvunaraksturs. Hins vegar var ekki fallist á kröfu um upptöku bifreiðar þar sem talið var sýnt fram á að verulegur vafi léki á því að hann væri eigandi hennar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. júní 2025

S-263/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Talið sannað að ökumaður fólksbifreiðir hefði misst athygli við akstur, með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir rangan vegarhelming og olli alvarlegum árekstri. Ökumaður talinn hafa gerst með þessu sekur um stórkostlega gáleysi og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. maí 2025

S-2491/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Aleksas Kartanas (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tólf mánuði, fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, auk greiðslu bóta.

Landsréttur birt 15. maí 2025

640/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Erni Leó Hlynssyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið með allt að 142 kílómetra hraða miðað við klukkustund og það óvarlega að hann ók bifreiðinni út af veginum með þeim afleiðingum að hann og farþeginn A slösuðust alvarlega. Háttsemi ákærða var talin varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 1. mgr., sbr. 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Héraðsdómur taldi sannað, einkum með vísan til álitsgerðar sem lá fyrir í málinu, að hraði bifreiðar ákærða hefði ekki verið minni en 142 kílómetra á klukkustund. Jafnframt að ummerki á vettvangi og framburður B væru til marks um að ákærði hefði enga stjórn haft á bifreiðinni í umrætt sinn. Var hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru, að öðru leyti en því að 1. mgr. 4. gr. umferðarlaga taldist ekki viðhlítandi refsiheimild. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 30 daga en fullnustu frestað skilorðsbundið í eitt ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu til refsiákvæða. Fyrir Landsrétti bar ákærði því við að við ákvörðun refsingar hefði ekki verið litið til þeirra tafa sem urðu á meðferð málsins á rannsóknarstigi og að sök hans væri fyrnd. Á þetta var ekki fallist enda hefði skilorðstími refsingarinnar verið ákvarðaður eitt ár með vísan til tafanna. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um refsingu ákærða og skilorðsbindingu hennar staðfest. Af þessari niðurstöðu leiddi að ekki var fallist á þá málsvörn ákærða að sök hans væri fyrnd.

Landsréttur birt 30. apríl 2025

327/2024

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Hilmari Kristjánssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var ákærður fyrir að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna og áfengis en meðan á akstrinum stóð voru börnin A, B og C farþegar í bifreiðinni. Taldist háttsemin varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., umferðarlaga nr. 77/2019, allt sbr. 1. mgr. 95. gr. sömu laga sem og 98. gr. og 1. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Ákærði krafðist þess aðallega að málinu yrði vísað frá Landsrétti að því er varðar ætluð barnaverndarlagabrot á þeim grundvelli að ákæra málsins væri ekki nægilega skýr en ekki var fallist á kröfu hans. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um sakfellingu ákærða að því er varðar akstur undir áhrifum kókaíns og áfengis. Landsréttur rakti að gögn málsins bæru með sér að ákærði hefði verið stöðvaður af lögreglu vegna þess að bifreið ákærða „vakti athygli“ hennar. Aftur á móti yrðu af því orðalagi ekki dregnar afdráttarlausar ályktanir um aksturslag bifreiðarinnar eða stjórntök á henni að öðru leyti. Þá lá ekkert fyrir um ökuhraða bifreiðarinnar umrætt sinn. Landsréttur taldi því að ekki væri komin fram nægileg sönnun, sem ekki yrði vefengd með skynsamlegum rökum, að aðstæður hefðu verið slíkar að háttsemi ákærða hefði falið í sér vanrækslu þannig að lífi eða heilsu barnanna hefði verið hætta búin. Ákærði var því sýknaður af broti gegn 98. gr. barnaverndarlaga. Þá var háttsemi ákærða jafnframt ekki talin eiga undir 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Hinn áfrýjaði dómur skyldi því vera óraskaður.

Landsréttur birt 3. apríl 2025

526/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ragnari Heiðari Júlíussyni (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir að hafa í fjögur skipti ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af í tvö skipti óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna í eitt skipti. Með dómi héraðsdóms var R gert að sæta fangelsi í 75 daga og sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem tilgreind fíkniefni voru gerð upptæk. Í dómi Landsréttar kom fram að R hefði með dómi héraðsdóms í öðru máli verið dæmdur í fimm mánaða og 15 daga fangelsi en fullnustu fimm mánaða af refsingunni verið frestað skilorðsbundið. Landsréttur taldi rétt með vísan til heimildar 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að láta skilorðshluta þess dóms haldast og dæma R refsingu sér í lagi vegna þeirra brota sem hann var nú sakfelldur fyrir. Að þessu gættu staðfesti Landsréttur hinn áfrýjaða dóm.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. janúar 2025

S-2559/2024

Ákæruvaldið (Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hafsteini Rúnari Hjaltasyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Akærði sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot. Einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. janúar 2025

E-3837/2023

A (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Því var hafnað að meðferð opinberra starfsmanna á máli stefnanda hefði verið saknæm og ólögmæt. Stefnandi var ekki talinn hafa sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hennar. Hann var talinn verða bera sjálfur þann kostnað sem hann hefði haft af málsmeðferðinni þótt hann hefði falið lögmanni að hafa samskipti við stjórnvöld.

Hæstiréttur birt 18. desember 2024

29/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Steinunni Ósk Eyþórsdóttur (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var ákærð fyrir brot gegn 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. S játaði brot sín. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms þar sem S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt en kröfu um sviptingu ökuréttar hafnað. Ákæruvaldið byggði á því að refsing S hefði verið ákveðin of væg á lægri dómstigum og kröfu um sviptingu ökuréttar ranglega hafnað. Með dómi Hæstaréttar var staðfest niðurstaða Landsréttar um sakfellingu ákæru. Varðandi ákvörðun sektar leit Hæstiréttur til sjónarmiða að baki 97. gr. umferðarlaga, reglugerðar nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota gegn umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim og viðauka I við hana um að staðla sektir við umferðarlagabrotum svo og sjónarmiða að baki fyrirmælum 98. gr. umferðarlaga um fullkomna samlagningu sekta. Var sekt hennar fyrir bæði brotin ákveðin 220.000 krónur. Varðandi niðurstöðu um hvort svipta skyldi S ökurétti leit Hæstiréttur til þess að með játningu hennar og afdráttarlausri matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hefði verið sannað að hún hefði verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Brot hennar hafi því verið þess eðlis, óháð öðru framferði hennar við aksturinn, að varhugavert hafi verið að hún stjórnaði vélknúnu ökutæki. Samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga og með hliðsjón af dómafordæmum og sjónarmiðum um jafnræði og samræmi í viðurlögum við umferðarlagabrotum var S svipt ökurétti í sex mánuði.

Landsréttur birt 17. desember 2024

512/2024

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Emil Árna Guðmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir að hafa í fjögur tilgreind skipti ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja, þar af einnig í tvö skipti vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum með því að hafa í þrjú nánar tilgreind skipti stolið alls þremur snjallúrum úr verslunum. Með dómi héraðsdóms var E gert að sæta fangelsi í níu mánuði og var fullnustu 30 daga frestað skilorðsbundið í tvö ár. Í dómi Landsréttar kom fram að refsing E væri, að virtum sakaferli hans, rétt ákveðin fangelsi í átta mánuði. Ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna, hvorki að hluta né í heild. Þá var ævilöng svipting ökuréttar E áréttuð.

Landsréttur birt 17. desember 2024

236/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ívari Aroni Hill Ævarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Í var sakfelldur með dómi héraðsdóms fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og tilraun til ráns með því að hafa stungið A þrisvar sinnum með hnífi og reynt að taka reiðhjól hans. Þá var Í sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum fíkniefna, vörslur fíkniefna og fjársvik. Fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði hins áfrýjaða dóms um refsingu Í, þóknun verjanda hans og frádrátt gæsluvarðhalds. Við ákvörðun refsingar Í var litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig ákvæði 77. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til ákvæða 1., 2., 3., 6., og 8. töluliðar 70 gr. almennra hegningarlaga og refsilækkunarsjónarmiða 5. töluliðar. 1. mgr. 70. gr. sömu laga. Þar sem líkamsárás Í var sérstaklega hættuleg og að jafnframt var um að ræða tilraun til ráns, var litið til þess að Í hafði áður hlotið dóma fyrir ofbeldis- og auðgunarbrot. Var því horft til ákvæða 1. mgr. 218 gr. c og 255 gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Var refsing Í ákveðin fangelsi í þrjú ár og ákvæði hins áfrýjaða dóms um ævilanga sviptingu ökuréttar og upptaka fíkniefna staðfest. Þá dregst gæsluvarðhaldsvist Í frá refsingu hans.

Landsréttur birt 12. desember 2024

192/2024

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Vilhjálmi Jónassyni (Skúli Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

V var ákærður fyrir umferðarlagabrot, húsbrot og líkamsárás með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis að nánar tilteknu húsi, ruðst þar inn um glugga og ráðist með ofbeldi að húsráðanda A með þeim afleiðingum að A hlaut þreifieymsli á nefi og tvö sár innan á vörum. Með vísan til fyrirliggjandi gagna, aðstæðna á vettvangi, framburðar V og tveggja vitna sem sáu V aka bifreiðinni umrætt sinn, taldi héraðs- dómur engan vafa leika á því að V hefði á þeim stað og tíma sem í ákæru greindi gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis. Þá var V talinn hafa gerst sekur um líkamsárás og húsbrot en í þeim efnum lagði héraðsdómur einkum til grundvallar framburð A sem fékk stoð í öðrum gögnum málsins. Brot V voru talin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru og hann dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum í þrjú ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2024

S-4075/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Arnari Frey Karlssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Fíkniefna-, vopna- og umferðarlagabrot og þjófnaður.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 2. október 2024

S-194/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Erni Adolfssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis, fíkniefna og slævandi lyfja.

Landsréttur birt 21. júní 2024

888/2023

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Fannari Daníel Guðmundssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Ara Ívars (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Leó Daðason réttargæslumaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

F var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa farið grímuklæddur og vopnaður hlaðinni og afsagaðri haglabyssu inn á tilgreindan veitingastað og beint henni í átt að þremur viðskiptavinum og barþjóni, sem voru við barborð staðarins, og án viðvörunar og fyrirvaralaust hleypt af einu skoti þannig að höglin höfnuðu í innréttingu staðarins og áfengisflöskum, rétt ofan og til hliðar við fólkið, með þeim afleiðingum að flöskurnar splundruðust og glerbrotum rigndi yfir þau. Þá voru F og A sakfelldir fyrir að hafa í félagi svipt E frelsi sínu, í um fimm klukkustundir, á heimili E, og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að ná frá honum verðmætum, en þeir bundu E á höndum og fótum við rúm hans, þar sem F hótaði honum lífláti og annars konar ofbeldi og neyddi hann þannig til að gefa upp lykilorð að farsíma og heimabanka, meðan A safnaði saman tilgreindu lausafé í eigu E sem þeir báru í sameiningu út í bifreið og hurfu á braut og skildu E eftir bundinn, allt með þeim afleiðingum að E varð fyrir líkamstjóni. F var jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun og annars konar kynferðisbrot með því að hafa í framangreint sinn þar sem E lá bundinn í rúminu haft við hann önnur kynferðismök með nánar tilgreindum hætti og á sama tíma tekið athæfið upp á farsíma og hótað dreifingu þess ef hann leitaði til lögreglu. Loks var A sakfelldur fyrir margvísleg umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tilgreint þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar F og A var höfð hliðsjón af 1., 2. og 3. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og samverknaðar þeirra við hluta brotanna, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Var þeim jafnframt gerður hegningarauki, sbr. 1. mgr. 78. gr. sömu laga. Loks voru eldri skilorðsdómar teknir upp og þeim gerð refsing í einu lagi sbr. 60. gr. og 1. mgr. 77. gr. sömu laga. Jafnframt var vísað til þess að kynferðisbrot F gegn E hefði verið framið á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, sbr. c-lið 195. gr. sömu laga. Refsing F var ákveðin fangelsi í 10 ár og A fangelsi í þrjú ár. Var þeim jafnframt gert að greiða brotaþolum skaða- og miskabætur.

Landsréttur birt 21. júní 2024

317/2023

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ervinas Survila (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var ákærður fyrir að hafa þrisvar sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti og þar af í eitt skipti jafnframt undir áhrifum áfengis. Fyrir héraðsdómi játaði E þá háttsemi sem honum var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með hinum áfrýjaða dómi var E gert að sæta fangelsi í 60 daga en auk þess var hann sviptur ökurétti ævilangt. Í dómi Landsréttar var rakið að af forsendum hins áfrýjaða dóms væri ljóst að við ákvörðun refsingar hefði verið miðað við að honum hefði í þriðja sinn, innan ítrekunartíma, verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti. Af sakarvottorði var aftur á móti ráðið að E væri nú í fimmta sinn gerð refsing fyrir að aka sviptur ökurétti og í fjórða sinn fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Að því gættu, að virtum sakaferli E og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing E ákveðin fangelsi í átta mánuði. Þá var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. apríl 2024

S-623/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gissuri Karli Gunnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og vörslur fíkniefna og lyfja. Dæmdur til greiðslu sektar og frekari ökuréttarsviptingar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. apríl 2024

S-282/2024

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Páli Þór Rúnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð sekt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var einnig sviptur ökurétti tímabundið og þurfti hann að þola upptöku fíkniefna. Útivistarmál.

Landsréttur birt 22. mars 2024

9/2023

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested settur saksóknari) gegn Inga Páli Bollasyni (Björgvin Halldór Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og nytjastuld með því að hafa tvívegis tekið bifreið í heimildarleysi, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var vísað til þess að með dómi þessum væri I nú sakfelldur í sjötta sinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og í fjórða skipti sviptur ökurétti. Var jafnframt litið til þess að hann væri nú jafnframt sakfelldur fyrir nytjastuld. Með brotunum rauf I skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Horft var til þess að I hefði játað brot sín greiðlega og hefði jafnframt lagt fram gögn á báðum dómstigum sem bæru vott um viðleitni hans til að bæta ráð sitt og ná tökum á fíkn sinni. Að þessu virtu og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar var refsing I ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Loks var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Landsréttur birt 22. mars 2024

496/2023

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Steinunni Ósk Eyþórsdóttur (Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að aka henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Fyrir héraðsdómi játaði S þá háttsemi sem henni var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í niðurstöðu Landsréttar var, að virtri lögregluskýrslu og matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði um rannsókn á blóðsýni sem tekið var úr S, staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu S, heimfærslu háttsemi hennar til refsiákvæða og ákvörðun refsingar, en S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt. Fallist var á með héraðdómi að akstur S í umrætt sinn hefði ekki verið mjög vítaverður í skilningi ákvæðisins. Þá væru ekki nægar forsendur til að líta svo á að önnur skilyrði fyrir sviptingu ökuréttar samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga væru uppfyllt. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu ákæruvalds um ökuréttarsviptingu sem alfarið var reist á ákvæðinu.

Landsréttur birt 22. mars 2024

278/2023

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Kolbrúnu Gígju Björnsdóttur (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og misst stjórn á bifreiðinni. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður K um að hún hefði ekki ekið bifreiðinni, heldur ónafngreindur aðili, færi ekki saman við framburð lögreglumanna sem komið hefðu á vettvang og hefðu báðir borið um að ummerki á vettvangi hefðu ekki bent til þess að neinn annar en K hefði verið þar og að þegar þeir hefðu komið að bifreiðinni hefði K verið í ökumannssæti hennar og hallað yfir farþegasætið. Voru skýringar K á því af hverju hún hefði verið í ökumannssæti bifreiðarinnar þegar að var komið metnar óskýrar og ekki trúverðugar. Að virtum sakaferli K og í samræmi við dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 60 daga. Þá var K svipt ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 22. mars 2024

117/2023

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Runólfi Helga Ísakssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Með brotunum rauf R skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. Að virtum sakaferli R og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í fjögur ár og tvo mánuði. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Landsréttur birt 19. mars 2024

6/2018

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Guðmundi A. Ástráðssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með dómi héraðsdóms var G sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 77. gr. sömu laga. Með vísan til sakaferils G var refsing hans ákveðin fangelsi í 17 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 var héraðsdómur staðfestur. Dómur Landsréttar var staðfestur með dómi Hæstaréttar 24. maí sama ár. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 var hæstaréttarmálið endurupptekið að beiðni G. Með nýjum dómi Hæstaréttar í málinu 7. desember 2022 var dómur Landsréttar 23. mars 2018 ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Við hina endurteknu málsmeðferð var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu G. Við ákvörðun refsingar G vísaði Landsréttur til þess dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins sem G yrði ekki um kennt. Þá var litið til þess að G hefði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms margsinnis verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti þar sem við ákvörðun refsingar hefði verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa hins áfrýjaða dóms. Loks var litið til breytinga sem orðið höfðu á högum G. Var refsing G ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 2. febrúar 2024

769/2022

Ákæruvaldið gegn Magnúsi Jónssyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. M viðurkenndi að hafa ekið bifreiðinni en neitaði því að hafa verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Kvaðst hann hafa verið á lyfjum vegna athyglisbrests sem hefðu ekki áhrif á aksturshæfni hans og lagði fyrir dóm gögn sem sýndu lyfjanotkun hans samkvæmt ávísun lækna. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar lögregla hafði afskipti af M framvísaði hann ekki vottorði læknis um að hann væri haldinn tilteknum sjúkdómi eða ástandi og þyrfti af þeim sökum að neyta þeirra efna sem í blóði hans kynnu að mælast, sem var forsenda þess að unnt væri að koma við læknisskoðun þar sem fram færi mat á því hvort M væri fær um að stjórna ökutæki örugglega, sbr. 8. mgr. 101. umferðarlaga nr. 77/2019. Þar sem ávana- og fíkniefni mældust í blóði M var hann óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega, sbr. 2. mgr. 50. gr. umferðalaga og varnir M um að saknæmisskilyrði hefðu skort voru taldar haldlausar. Í niðurstöðu héraðsdóms um ákvörðun viðurlaga, sem Landsréttur staðfesti, var horft til þess að M var nú í þriðja sinn gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna innan ítrekunartíma 71. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og með vísan til framangreinds, sakarefnis málsins, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga, var M gert að sæta 30 daga fangelsi, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 19. janúar 2024

93/2023

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Maríönnu Lind Mánadóttur (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa fjórum sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var miðað við að akstur M undir áhrifum ávana- og fíkniefna væri ítrekaður í annað sinn og henni gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing M ákveðin 60 daga fangelsi. Tók Landsréttur fram að með hliðsjón af ákvæði 78. gr. laga nr. 19/1940 væru ekki efni til þess að kveða á um áréttingu ævilangrar sviptingar ökuréttar.

Landsréttur birt 15. desember 2023

809/2022

Ákæruvaldið gegn Þorvaldi Ægi Þorvaldssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ítrekað ekið bifreið sinni undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli Þ og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Landsréttur birt 15. desember 2023

622/2022

Ákæruvaldið gegn Ingvari Ragnari Snæbjörnssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotinu gerðist I í þriðja sinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Í dómi Landsréttar kom fram að dómur um sekt og sviptingu ökuréttar fyrir ölvunarakstur sem kveðinn hefði verið upp 20. janúar 2017 hefði ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur og I gert að sæta 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 15. desember 2023

587/2022

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Erlu Bryndísi Valdemarsdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelld fyrir sex umferðarlagabrot með því að hafa á tilgreindu tímabili tvívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í fjögur skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að E hefði ekki áður sætt refsingu. Refsing E var ákveðin 1.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu. Þá var E svipt ökurétti í fjögur ár og níu mánuði.

Landsréttur birt 8. desember 2023

686/2022

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Huldari Rúnarssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Með brotunum rauf S skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að virtum sakaferli S og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Landsréttur birt 24. nóvember 2023

10/2023

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur með dómi héraðsdóms fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í tvígang, brot gegn valdstjórninni, fíkniefnalagabrot og tvö umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 10 mánuði sem bundið var skilorði til tveggja ára. Þá var X gert að greiða sekt til ríkissjóðs, hann sviptur ökurétti í þrjú ár og þrjá mánuði og gert að sæta upptöku fíkniefna. Loks var honum gert að greiða tveimur brotaþolum skaðabætur og málskostnað. Með áfrýjun héraðsdóms leitaði X annars vegar eftir endurskoðun á sakfellingu og ákvörðun refsingar fyrir nánar tiltekið umferðarlagabrot í 5. lið ákæru 7. apríl 2022 og hins vegar mildun refsingar sem ákveðin var með hinum áfrýjaða dómi. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt framburði vitnis um eftirför þess með bifreiðinni um tilgreinda götu, greinargóðri lýsingu þess á aðstæðum í götunni og við tilgreint hús, afskiptum þess af ákærða fyrir utan bifreiðina og átökum þeirra væri ekki unnt að álykta á annan veg en þann að X hefði ekið greindri bifreið, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni, um tilgreinda götu þar sem bifreiðin skall á kyrrstæðri bifreið og í kjölfarið farið af vettvangi. Fékk framburður vitnisins stoð í framburði afa X hjá lögreglu sem bar um að X hefði hringt og boðað komu sína heim til hans. Bar afi X að hann hefði séð að X væri kominn að húsinu á bifreið föður X. Staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu héraðsdóms að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og sló því föstu, sbr. 109. gr. sömu laga, að X hefði ekið bifreiðinni umrætt sinn og með því gerst sekur um þá háttsemi sem um gat í 5. lið ákæru 7. apríl 2022. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu X af þessum ákærulið. Samkvæmt þessu staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um refsingu X, sviptingu ökuréttar, upptöku fíkniefna, sakarkostnað, miskabætur og málskostnað brotaþola.

Hleð fleiri dómum…