Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-603/2023:

Ákæruvaldið

(Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari)

gegn

Tómasi Helga Jónssyni

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ökuréttarsvipting. Rof á reynslulausn.

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið 22. janúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 24. nóvember 2023, á hendur Tómasi Helga Jónssyni, kt. […], […], […]: „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 10. júlí 2023, ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni sem tekið var í þágu rannsóknar málsins mældist tetrahýdrókannabínól 2,4 ng/ml), vestur Miðhúsabraut á Akureyri, þar sem lögregla stöðvaði akstur hans á gatnamótum Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis.

Teljast brot þessi varða 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., allt sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er þess krafist að honum verði gert að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.“ Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru er lýst. Brot ákærða eru réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Sakaferill ákærða er töluverður og nær aftur til ársins 1994. Hann hefur oftsinnis verið dæmdur fyrir samskonar brot og hann er hér sakfelldur fyrir. Árið 2016 hlaut ákærði dóm fyrir vörslur og sölu fíkniefna og akstur undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Refsing samkvæmt þeim dómi var 9 mánaða fangelsi og var ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Árið 2016 var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Árið 2017 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Var ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Ákærði hlaut annan dóm árið 2017 fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Var refsing ákveðin fangelsi í 6 mánuði og var ævilöng svipting ökuréttar enn áréttuð. Árið 2021 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 3 ár. Með þeim dómi var teknar upp 901 dags eftirstöðvar framangreindra fimm dóma og ákveðin refsing fyrir ný brot gegn umferðarlögum, ávana- og fíkniefna lögum og vopnalögum. Þann 26. apríl 2023 var ákærða veitt reynslulausn í tvö ár á 540 daga eftirstöðvum refsingar framangreinds dóms sem var uppkveðinn 17. ágúst 2021. Með broti því sem ákærði er nú sakfelldur fyrir hefur hann rofið skilyrði reynslulausnarinnar. Í 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 kemur fram að ef maður fremur nýtt brot eftir að hann hlýtur reynslulausn, og rannsókn hefst hjá lögreglu gegn honum sem sakborningi fyrir lok reynslutíma, þá ákveði dómstóll refsingu í einu lagi fyrir brot það sem er dæmt um og með hliðsjón af fangelsisrefsingu sem óafplánuð er samkvæmt reglum 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þannig að fangelsi samkvæmt eldri dómi er virt með sama hætti og skilorðsdómur. Í 60. gr. fyrrgreindra laga kemur fram að einkum komi til greina að láta skilorðsdóm haldast, ef hið nýja brot hefur ekki verið framið af ásettu ráði eða varði aðeins sektum. Eins og áður greinir hefur ákærði margsinnis hlotið dóm fyrir samskonar umferðarlagabrot, þ.e. ekið bifreið ítrekað sviptur ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Standa því ekki rök til annars að en að taka upp framangreindar eftirstöðvar fangelsisrefsingarinnar og dæma með í þessu máli, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. Refsing ákærða er nú ákveðin í einu lagi, sbr. 60. gr., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga og ákveðst að teknu tilliti til 5. tl. 1. mgr. 70. gr. sömu laga fangelsi í 2 ár og 2 mánuði. Með vísan til 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu, sbr. 235. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar að fjárhæð kr. 321.990, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Ingvar Þóroddsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Tómas Helgi Jónsson, sæti fangelsi í 2 ár og 2 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði 321.990 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 160.000 krónur og 33.815 krónur í ferðakostnað hans.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.1. mgr. 70. gr.77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.235. gr.
Lög nr. 15/2016 Lög um fullnustu refsinga 1. mgr. 82. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.3. mgr. 99. gr.101. gr.