Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

37 dómar fundust

Lykilorð: Vopnalög

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. desember 2024

S-331/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigmundi Grönvold Gústafssyni og Kristbjörgu Önnu Kjartansdóttur (Stun Gun)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelld fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2024

S-4075/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Arnari Frey Karlssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Fíkniefna-, vopna- og umferðarlagabrot og þjófnaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2024

S-6685/2023

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Viktori Kristinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrota og vopnalagabrots.

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. apríl 2024

S-667/2023

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ágústi Arnari Sigurðssyni (Þórdís Ólöf Viðarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna, fíkniefnalagabrot sem og vopnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Jafnframt var ákærða gert að greiða sekt, hann sviptur ökurétti tímabundið og sæta upptöku á fíkniefnum og búnaði til ólögmætrar ræktunar og meðferðar fíkniefna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. mars 2024

S-41/2023

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn X (Reynir Þór Garðarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um hótanir og vopnalagabrot, með því að hafa dregið upp hníf og otað honum að brotaþola. Var ákærða gert að sæta fangesli í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggjar ára. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á hnífnum og hann dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2023

S-6050/2023

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Alexander Brynjari Róbertssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og og Hávarði Mána Hjörleifssyni (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu sakfelldir fyrir nokkur brot, ýmist framin saman eða í sitthvoru lagi, þar með talið rán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2023

S-1075/2023

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Alberti Loga Skúlasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Alexander Aroni Gilbertssyni (Atli Már Ingólfsson lögmaður), Alexander Mána Björnssyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður), Arnóri Kárasyni (Páll Kristjánsson lögmaður), Ástvaldi Ými Stefánssyni (Stefán Ragnarsson lögmaður), X (Magnús Jónsson lögmaður), Y (Guðbjarni Eggertsson lögmaður), Chibuzor Daníel Edeh (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Cristovao A. F. Da S. Martins (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), David Gabríel S. Glascorssyni (Bjarni Hauksson lögmaður), Einari Bjarka Einarssyni (Jón Þór Ólason lögmaður), Emil Árna Guðmundssyni (Snorri Sturluson lögmaður), Fannari Inga Ingvarssyni, Guido Javier Japke Varas (Elimar Hauksson lögmaður), Halldóri Loga Sigurðssyni (Ólafur V. Thordersen lögmaður), Y (Arnar Heimir Lárusson lögmaður), Helga Þór Baldurssyni (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður), Ingibergi Alex Elvarssyni (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður), John Petur Vágseið (Þórður Már Jónsson lögmaður), Matthias Gabriel S. Silva (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður), Mikael Alf Rodriguez Óttarssyni (Reynir Þór Garðarsson lögmaður), Reyni Þór H. Sigurjónssyni (Björgvin Jónsson lögmaður), Róberti Sindra Berglindarsyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Sigurgeiri Sæberg Elísabetarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) og Viktori Inga Stolzenwald Árnasyni (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður) (Oddgeir Einarsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir tilraun til manndráps, líkamsárás og hlutdeild í líkamsárás gegn þremur brotaþolum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. maí 2023

S-186/2023

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Guðjóni Ágústi Kristinssyni og X (enginn)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru fundnir sekir um þjófnað og vopnalagabrot, auk þess sem annar þeirra var auk þess fundinn sekur um hótanir og líkamsárás. Var öðrum gert að sæta fangelsi í 45 daga og hinum 60 daga, en fullnustu refsingu beggja var frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2023

S-920/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Hermanni Hjartarsyni Gustum
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum og vopnalögum. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 10. október 2022

S-481/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi) gegn Árni Logi Sigurbjörnsson (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt vopnalagabrot, m.a. með því að tryggja ekki á fullnægjandi hátt viðeigandi og áskilda geymslu mikils fjölda vopna, vopnahluta og skotfæra í hans eigu. Ákærða gert að sæta 10 mánaða skilorðsbundnu fangelsi. Kröfu um upptöku vopnanna hafnað, þar sem lagaheimild skorti.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 6. apríl 2022

S-448/2020

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Þór Sveinarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Ara Rúnarssyni, X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Hákoni Geirfinnssyni (Sigmundur Guðmundsson lögmaður), Z (Friðrik Smárason lögmaður), Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og og Aroni Vigni Erlendssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2022

S-603/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigursteini Sverri Hilmarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna-, vopna- og hegningarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. febrúar 2022

S-5635/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Benedikt Má Ingibjargarsyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, hegningar- og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2022

S-5979/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Fannari Pétri Stefánssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Fangelsisrefsing 105 dagar en fullnustu 60 daga frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Sviptur ökurétti ævilangt. Upptaka fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2022

S-5343/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Geir Þorsteinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðar- og hegningarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. nóvember 2021

S-450/2021

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir tilraun til ráns, þjófnað, vopnalagabrot og fíkniefna-, sviptingar- og hraðakstur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. ágúst 2021

S-3229/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Birni Heiðari Pálssyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga- og vopnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið í 2 ár. Þá voru fíkniefni og munir gerðir upptækir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. júní 2021

S-8451/2020

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Heiðari Þór Guðmundssyni (Ómar Örn Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, vörslur á vopni og ávana- og fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. maí 2021

S-8467/2020

Ákæruvaldið (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Inga Kristjánssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir þjófnað, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2021

S-236/2020

Ákæruvaldið (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir brot í nánu sambandi, hótanir, líkamsárás, fíkniefnalagabrot o.fl. Sýknað af ákæru um rán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2021

S-5314/2020

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hættu- og vopnalagabrot, auk fíkniefnalagabrots o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2020

S-6338/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ölmu Lind Smáradóttur (Ragnar Björgvinsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var sakfelld fyrir ýmis hegningarlagabrot, þjófnaður, fjársvik og hylming, og fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Hluti þeirra brota sem ákærða var sakfelld fyrir voru hegningarauki við fyrri dóm og ákærða því dæmdur hegningarauki í samræmi við 78. gr. laga nr. 19/1940. Ákærða rauf skilorð fyrri dóms með hluta af þeim brotum sem hún var sakfelld fyrir og var skilorðsrefsingin því tekin upp og ákærðu gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940. Þá var ákærðu gert að sæta upptöku á fíkniefnum og hníf sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2020

S-5100/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Erni Forberg (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir fíkniefna-, lyfja- og tollalagabrot og fyrir brot gegn vopnalögum. Ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. september 2020

S-4563/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Andra Vilhelm Guðmundssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði játaði sök og var dæmdur fyrir þjófnað, fíkniefna- og umferðarlagabrot auk vopnalagabrots. Ákærði var dæmdur í 4 mánaða fangelsi. Var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og sætti upptöku á fíkniefnum og hníf, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2020

S-7061/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur fyrir fjölda brota en sýknaður af refsikröfu vegna ósakhæfis.

Hæstiréttur birt 2. mars 2017

612/2016

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Andrius Kelpsa (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar-, vopna- og lögreglulögum með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis, ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu og haft í vörslum sínum fjaðrahníf. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í 75 daga auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Hæstiréttur birt 6. október 2011

308/2011

Ákæruvaldið gegn Stephan Hafsteini Magnússyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum amfetamín og maríhúana og sverð sem fundust við húsleit á heimili hans. Í málinu krafðist S þess að refsing hans yrði milduð vegna þess að við húsleitina hefði myndatökumaður frá tilgreindum vefmiðli verið í för með lögreglu og myndskeið er sýndi handtöku hans og húsleitina birst á opinberu svæði vefmiðilsins. Mættu kunnugir þekkja hann þó andlit hans hefði verið hulið. Í dómi Hæstaréttar sagði að hafi húsleit á heimili S og handtaka hans verið framkvæmd á óþarflega meiðandi hátt kynni slíkt að skapa honum rétt til miskabóta eða hafa í för með sér aðrar lögfylgjur en ekki væri til úrlausnar í málinu hvort svo hefði verið. Þessi atriði gætu á hinn bóginn engin áhrif haft á ákvörðun refsingar fyrir þau brot sem S væri sakfelldur fyrir. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.

Hæstiréttur birt 7. desember 2006

147/2006

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Lúðvík Eiríkssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

L var í félagi við annan mann sakfelldur fyrir framleiðslu á 110,8 gr. af amfetamíni, og vörslur á tilgreindu magni af vökvum og efnum sem tengdust framleiðslunni og innihéldu amfetamín, metamfetamín og efnið P-2-NP. Þá var L einnig sakfelldur fyrir vörslur á 64,18 gr. af amfetamíni, 193 amfetamíntöflum og loftskammbyssu á heimili sínu og 0,45 gr. af amfetamíni og 10,71 gr. af hassi í bifreið sinni. Talið var að ekki væri komin fram sönnun þess að L hafi ætlað það amfetamín sem hann var sakfelldur fyrir framleiðslu á og 64,18 gr. af því amfetamíni sem hann var sakfelldur fyrir vörslur á, að öllu leyti til sölu. Refsing L var ákveðin með hliðsjón af eindregnum brotavilja hans, alvarleika brotanna, játningu á sakargiftum að talsverðu leyti og aðstoð við lögreglu, sem og 1., 3. og 6. tölulið 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. L var dæmdur til 14 mánaða fangelsisvistar og til að sæta upptöku á loftskammbyssu, fíkniefnum, vökvum og efnum sem tengdust fíkniefnaframleiðslu og munum sem notaðir höfðu verið til ólögmætrar meðferðar fíkniefna.

Hæstiréttur birt 21. nóvember 2002

267/2002

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Sævari Erni Helgasyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var gefið að sök að hafa þrívegis gerst sekur um líkamsárás á hendur Z á árinu 2000, auk brots gegn vopnalögum. Var S sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ráðist að Z í júlí 2000, tekið hann kverkataki og hert að þar til hann hafi misst meðvitund og fallið í gólfið, en við það hlaut hann ýmsa áverka. Þá var hann og sakfelldur fyrir brot gegn sama ákvæði með því að hafa ráðist að Z í ágúst 2000 og beygt aftur fingur hans svo fingurinn tognaði. S var einnig fundinn sekur um brot gegn vopnalögum með því að hafa haft rafmagnsstuðbyssu í vörslum sínum. Var mótbára S um að byssan gæti ekki talist vopn í skilningi vopnalaga ekki tekin til greina og byssan gerð upptæk. Jafnframt var S sakfelldur fyrir að hafa ekið á Z svo hann kastaðist upp á vélarhlíf bifreiðar S og þaðan yfir bifreiðina og í götuna. Var niðurstaða héraðsdóms um 15 mánaða fangelsisvist S staðfest.