Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Framleiðsla

Landsréttur birt 8. mars 2024

634/2023

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn X (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa ásamt meðákærða í héraði Y staðið að framleiðslu á 4.007,49 grömmum af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni og haft í vörslum sínum í sama skyni 50 millilítra af amfetamíni. Við ákvörðun refsingar var litið til 3., 6., 7. og 8. töluliðar 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að teknu tilliti til þess, mögulegrar rýrnunar á amfetamíninu og styrkleika þess, þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku.

Landsréttur birt 23. júní 2023

745/2022

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir settur saksóknari) gegn Guðlaugi Agnari Guðmundssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður), Guðjóni Sigurðssyni (Geir Gestsson lögmaður), Halldóri Margeiri Ólafssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Ólafi Ágústi Hraundal (Jón Magnússon lögmaður), Geir Elí Bjarnasyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) og X ehf. (Ólafur Garðarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

GAG, GS og HMÓ, voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi með því að hafa staðið saman að innflutningi á saltdreifara sem í voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva hingað til lands frá Hollandi í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum, móttekið tækið og fíkniefnin og haft í vörslum sínum á nánar tilgreindri jörð og í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila fjarlægt amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleitt allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni. Ætluðum þætti hvers ákærða var nánar lýst í ákærunni. Í dómi Landsréttar kom fram að sannað teldist að GAG, GS og HMÓ hefðu sammælst um stórfellt fíkniefnalagabrot með því að GAG og HMÓ hefðu í félagi við óþekkta erlenda aðila staðið saman að innflutningi saltdreifarans til landsins þar sem falinn var amfetamínvökvi. Þá hefði GS móttekið og varslað saltdreifarann á jörð sinni. GAG, GS og HMÓ hefðu, í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila, staðið saman að því að amfetamínvökvinn var fjarlægður úr saltdreifaranum og úr honum framleitt amfetamín í sölu- og dreifingarskyni. Að teknu tilliti til matsgerðar dómkvadds matsmanns þótti ekki óvarlegt að leggja til grundvallar að GAG, GS og HMÓ hefðu framleitt að minnsta kosti 80,2 kg af amfetamíni. Fram kom í dómi Landsréttar að um þaulskipulagt fíkniefnalagabrot hefði verið að ræða sem framið hefði verið í ávinningsskyni. Verknaðurinn hefði verið unninn í félagsskap allra ákærðu, auk tveggja erlendra einstaklinga og óþekkts Íslendings, þar sem hver hafði sitt hlutverk. Þótti sýnt að GAG, GS og HMÓ hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Voru þeir því sakfelldir og framangreind háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga. Jafnframt var GS, HMÓ, ÓÁH og GEB gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið saman að kannabisræktun í útihúsi á nánar tilgreindri jörð. Hefðu þeir sammælst um verkaskiptingu við uppsetningu, ræktun og þurrkun kannabisplantnanna í sölu- og dreifingarskyni og skipt á milli sín afrakstrinum en við leit hafði lögregla lagt hald á 6.110 g af kannabisplöntum, 16.265 g af maríjúana og 131 kannabisplöntu. Auk heimfærslu á háttsemi GS, HMÓ, ÓÁH og GEB til refsiákvæðis 173. gr. a almennra hegningarlaga var einnig ákært fyrir ætlaða skipulagða brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a sömu laga. Með dómi Landsréttar voru GS, HMÓ, ÓÁH og GEB sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a almennra hegningarlaga, en ekki þótti sýnt fram á að þeir hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um að taka þátt í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var ÓÁH enn fremur sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni nánar tilgreint magn ýmissa fíkniefna. Að lokum var HMÓ sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur var litið til 9. töluliðar sömu málsgreinar að því er varðaði ákvörðun refsingar GS. Refsing HMÓ og ÓÁH var ákveðin fangelsi í 10 ár, GAG og GS var gert að sæta fangelsi í 8 ár hvorum og GEB í 18 mánuði og var refsing hans bundin skilorði. Þá var fallist á kröfu um upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum og munum.

Landsréttur birt 26. febrúar 2021

493/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Bartlomiej Szelengiewicz (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Dawid Stanislaw Dolecki (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), Grzegorz Marcin Krzton (Steinbergur Finnbogason lögmaður), Jakub Pawel Rzasa (Kristján Stefánsson lögmaður), Jaroslava Davíðsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og Krzysztof Sieracki (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

B, D, G, JR, JD og K voru sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa dagana 27. til 29. febrúar 2020 í félagi haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni og jafnframt staðið að framleiðslu á samtals 1.896,50 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 34-66% styrkleika og samtals 1.071,15 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 1,7- 3,2% styrkleika. Var háttsemi þeirra talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en ekki var á það fallist að háttsemi þeirra teldist vera liður í skipulagðri brotastarfsemi í skipulögðum brotasamtökum í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var JR jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum samtals 5,58 g af marijúana og samtals 57,17 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á JR og á tveimur tilgreindum dvalarstöðum hans. Voru þau brot JR talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. B, D og K voru hins vegar sýknaðir af þeirri háttsemi að hafa losað skaðleg efni sem notuð voru við framleiðslu fíkniefnanna í umhverfið og valdið þannig yfirvofandi hættu á verulegu tjóni á umhverfinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot B, D, G, JR, JD og K var þaulskipulagt og framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þótt aðkoma þeirra að brotinu hefði verið með misjöfnum hætti. Litið var svo á að þau ættu sér ekki málsbætur. Einnig var við ákvörðun refsingar litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Refsing JR var ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði, refsing B, D og K fangelsi í þrjú ár hver og G og JD fangelsi í tvö ár og sex mánuði hvort. Til frádráttar refsingu B, D, JR, JD og K kom tilgreint gæsluvarðhald sem þau höfðu sætt, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur voru gerð upptæk ýmis tæki, búnaður og efni, sem lögregla hafði lagt hald á, sem og bifreið og reiðufé í eigu JD.

Hæstiréttur birt 7. desember 2006

147/2006

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Lúðvík Eiríkssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

L var í félagi við annan mann sakfelldur fyrir framleiðslu á 110,8 gr. af amfetamíni, og vörslur á tilgreindu magni af vökvum og efnum sem tengdust framleiðslunni og innihéldu amfetamín, metamfetamín og efnið P-2-NP. Þá var L einnig sakfelldur fyrir vörslur á 64,18 gr. af amfetamíni, 193 amfetamíntöflum og loftskammbyssu á heimili sínu og 0,45 gr. af amfetamíni og 10,71 gr. af hassi í bifreið sinni. Talið var að ekki væri komin fram sönnun þess að L hafi ætlað það amfetamín sem hann var sakfelldur fyrir framleiðslu á og 64,18 gr. af því amfetamíni sem hann var sakfelldur fyrir vörslur á, að öllu leyti til sölu. Refsing L var ákveðin með hliðsjón af eindregnum brotavilja hans, alvarleika brotanna, játningu á sakargiftum að talsverðu leyti og aðstoð við lögreglu, sem og 1., 3. og 6. tölulið 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. L var dæmdur til 14 mánaða fangelsisvistar og til að sæta upptöku á loftskammbyssu, fíkniefnum, vökvum og efnum sem tengdust fíkniefnaframleiðslu og munum sem notaðir höfðu verið til ólögmætrar meðferðar fíkniefna.