Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 6. nóvember 2025.
Mál nr. S-503/2024:
Ákæruvaldið
(Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svavari Óla Ólafssyni
(Andrés Már Magnússon lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Skilorð. Skilorðsbundnir dómar. Vopnalagabrot. Vopnalög.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna, fíknilyfja og vopna.
Dómur
Mál þetta, sem var dómtekið 29. október sl., höfðaði lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, með ákæru dagsettri 20. nóvember 2024, á hendur Svavari Óla Ólafssyni, kt. […], […], […], fyrir eftirtalin brot á ávana- og fíkniefnalögum og vopnalögum:
I.
Með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 30. janúar 2024, verið með í vörslum sínum þegar lögreglan hafði afskipti af honum á heimili hans […], eftirtalin fíkniefni og fíknilyf, en lyfin hafði hann ekki fengið ávísað til sín af lækni: Amfetamín 40,24 grömm, Maríhúana 1,58 grömm, tóbaksblandað kannabisefni 0,71 grömm, Psilocybin 19,21 grömm, Concerta 3 stykki, Pregabalin Accord 1 stykki, Pregabalin Medical Walley 38 stykki og Lyrica 2 stykki.
Telst þetta varða við 2. gr. og 3. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14 gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
II.
Með því að hafa sömu nótt verið með í vörslum sínum á ofangreindu heimili sínu eftirgreind vopn sem ólöglegt er að vera með í vörslum sínum: Kylfu sem hafði verið teipuð með einhverskonar límbandi og tveir hnífar höfðu verið teipaðir við kylfuna, boga, byssusting, tvær örvar, 6 hnífa og hnúajárn.
Telst þetta varða við a lið, b lið, c lið, d lið , e lið og f lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á fíkniefnum sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 53.213, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að ofangreind vopn sem lögreglan lagði hald á í vörslum ákærða verði gerð upptæk til ríkissjóðs með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16/1998.“ Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar til handa verjanda hans. Við fyrirtöku málsins 29. október sl. breytti ákæruvaldið II. kafla ákæru á þann veg að í stað „6 hnífa“ komi „2 hnífa“. Þá var fallið frá upptökukröfu vegna hnífa nr. 626854- 626857 í munaskrá lögreglu. Ákærði hefur skýlaust játað sök og samþykkt upptökukröfu samkvæmt ákæru svo breyttri. Sannað er með játningu hans og öðrum gögnum málsins að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum eru gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Af sakaferli ákærða skiptir hér máli að þann 28. nóvember 2022 var ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir vörslur og sölu fíkniefna og peningaþvætti. Með þeim brotum sem hann er nú sakfelldur fyrir rauf hann skilorð þess dóms. Verður sá dómur því tekinn upp, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og refsing ákveðin í einu lagi, sbr. 77. gr. sömu laga. Er refsing ákærða ákveðin fangelsi í níu mánuði. Fullnustu sex mánaða refsingarinnar verður frestað og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Að kröfu ákæruvalds, og með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 eru gerð upptæk þau fíkniefni og vopn er í dómsorði greinir. Samkvæmt dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar sem er ekki annar en þóknun skipaðs verjanda ákærða, sem gætti hagsmuna hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Þykir þóknun verjandans hæfilega ákveðin eins og greinir í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Arnbjörg Sigurðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Svavar Óli Ólafsson, sæti fangelsi í níu mánuði en fresta skal fullnustu sex mánaða refsingarinnar og skal sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gerð eru upptæk 40,24 grömm af amfetamíni, 1,58 grömm af marijúana, 0,71 gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni, 19,21 gramm af psilocybin, 3 stykki Concerta, 1 stykki Pregabalin Accord, 38 stykki Pregabalin Medical Walley, 2 stykki Lyrica, kylfa með tveimur hnífum límdum við, bogi, byssustingur, tvær örvar, tveir hnífar (nr. 628658 og 626859 í munaskrá lögreglu) og hnúajárn. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Andrésar Más Magnússonar lögmanns, 234.360 krónur.