Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2759 dómar fundust

Lykilorð: Skilorð

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 14:20

S-2489/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Svavari Sigurðssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og gert að sæta upptöku.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2026 kl. 12:07

S-748/2026

Héraðssaksóknari (Harpa Sólveig Björnsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Alfreð Þór Jóhannessyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás samkvæmt. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 14:52

S-2510/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Gunnari Frey Kristinssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð: Fangelsi. Ítrekun. Rán. Skilorð.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2026 kl. 14:57

S-7505/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ákærða sýknuð fyrir stórfelldar ærumeiðingar og umsáturseinelti, en sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða brotaþola miskabætur.

Landsréttur birt 28. maí 2026 kl. 16:17

515/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður) (Sigmundur Guðmundsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa birt færslu á Facebook-síðu sinni með hótun um að birta myndefni af A, barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu, á nánar tilgreindri vefsíðu og með því að hafa þann sama dag birt fimm kynferðislegar myndir af henni sem hafi sýnt nekt hennar, ásamt texta, á samskiptaforritinu Facebook. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki léki vafi á að allar myndirnar væru þess eðlis að falla undir 1. mgr. 199. gr. a. almennra hegningarlaga. Þá var einnig staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að í birtingu fyrstu myndarinnar, ásamt texta, hafi falist hótun um að birta nektarmynd af brotaþola á nánar tilgreindri vefsíðu og um heimfærslu brotsins til 2. mgr., sbr. 1. mgr. 199. gr. a almennra hegningarlaga. Með vísan til þessa en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu brotanna. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 800.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 16:53

S-127/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Líkamsárás. Skilorð.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi vegna líkamsárásar.

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:24

859/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Svavari Óla Ólafssyni (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var sakfelldur í héraði fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og S gerð refsing í einu lagi. Var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt voru gerð upptæk nánar tilgreind fíkniefni, fíknilyf og vopn. S áfrýjaði héraðsdómi í því skyni að fá refsinguna mildaða og bundna skilorði að öllu leyti. Með dómi Landsréttar var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-1318/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Heimi Erni Haraldssyni (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)

Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og dæmdur í tíu mánaða fangelsi, en þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. apríl 2026 kl. 14:10

S-1699/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Magnúsi Birni Haraldssyni
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. apríl 2026 kl. 5:46

S-2372/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ricardo Mario Villalobos (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2026 kl. 11:24

S-1148/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Marko Brlek
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2026 kl. 17:11

S-4277/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Roger Ray Phea (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2026 kl. 14:24

S-125/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Franko Zyla (Baldvin Már Kristjánsson lögmaður) og Serxho Zyla (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu, sem játuðu brot sitt, dæmdir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og gert að sæta upptöku á efnum og munum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2026 kl. 17:26

S-7486/2025

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari) gegn Ívari Heimissyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga og vopnalagabrot en sýknaður af broti gegn 2. mgr. 218. gr. sömu laga vegna neyðarvarnar. Var ákvörðun refsingar ákærða frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2026 kl. 9:20

S-1254/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Ágúst Ágústssyni
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 17:00

368/2025

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur samkvæmt ákærulið 1 fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa beitt fyrrverandi sambýliskonu sína og barnsmóður, A, ofbeldi á heimili hennar 24. maí 2016 með því að hrinda henni með þeim afleiðingum að hún hrasaði og lenti með vinstri öxl á dyrakarmi og hlaut við það nánar tilgreinda áverka. X var hins vegar sýknaður af sakargiftum samkvæmt ákærulið 2 þar sem honum var gefin að sök líkamsárs með því að hafa veist að A, á heimili hennar 1. júní 2016, með nánar tilgreindum hætti og jafnframt á sama tíma hótað henni lífláti. Fyrir Landsrétti krafðist ákæruvaldið þess að hinn áfrýjaði dómur yrði staðfestur um sakfellingu X samkvæmt ákærulið 1 og jafnframt að hann yrði sakfelldur fyrir greinda hótun í garð A samkvæmt ákærulið 2, sbr. 233. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af trúverðugum framburði A, sem fékk stoð í framburði vitnisins B, auk fyrirliggjandi læknisvottorðs var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X samkvæmt ákærulið 1. Þá taldi Landsréttur jafnframt, að virtum atvikum málsins, að hótun ákærða hefði verið til þess fallin að vekja ótta hjá A um líf sitt, heilbrigði eða velferð. Var X því einnig sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga, sbr. ákærulið 2. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að mikill dráttur hafði orðið á meðferð málsins sem X yrði ekki um kennt. Að því athuguðu þótti rétt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið í tvö ár. Þá var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um miskabætur A til handa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2026 kl. 15:46

S-4331/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn Mykola Hupalo
Lykilorð: Peningaþvætti. Skilorð.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði dæmdur í fimm mánaða skilorsðbundið fangelsi fyrir peningaþvætti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. mars 2026

S-3932/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Grímur Sigurðarson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll og tvær líkamsárásir og til að greiða brotaþola miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2026

S-7406/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Bojan Bugarski
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. febrúar 2026

S-275/2026

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Tomasz Marian Banaszczuk (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Helgi Birgisson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og umferðarlagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt var hann dæmdur til greiðslu 2.500.000 króna miskabóta.

Landsréttur birt 26. febrúar 2026

149/2025

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Steinu Árnadóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Ágúst Ólafsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var ákærð fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa á Landspítalanum, þar sem S starfaði sem hjúkrunarfræðingur, svipt A lífi með því að þröngva ofan í hana innihaldi úr tveimur flöskum af næringardrykk, en S hafi hellt drykknum upp í munn A á meðan henni var haldið að fyrirskipan S, þrátt fyrir að A gæfi til kynna að hún vildi ekki drykkinn, allt með þeim afleiðingum að drykkurinn hafnaði í loftvegi hennar, sem hindraði loftflæði um lungun og olli öndunarbilun svo að A kafnaði Var háttsemin í ákæru talin varða við 211. gr. sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn. Í dómi Landsréttar var framburður þriggja vitna að atvikinu metinn mun trúverðugri en framburður S og talið hafið yfir skynsamlegan vafa að umrætt sinn hefði S þröngvað næringardrykk ofan í A með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þá þótti miðað við gögn málsins og framburð vitna, og þrátt fyrir að mörk væru á því vægi sem skýrslu um útvíkkaða réttarkrufningu yrði gefið við sönnunarmat, hafið yfir skynsamlegan vafa að með háttsemi sinni hefði S svipt A lífi og þá með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þrátt fyrir að ýmis atriði sem S bæri ekki ábyrgð á hefðu stuðlað að því að atvikið gat átt sér stað og haft áhrif á rás atburða breyttu þau því ekki að ákæra málsins tæki til nánar tiltekinnar háttsemi S, er haft hefði nánar tilteknar afleiðingar, og teldust bæði háttsemin og afleiðingar hennar sannaðar. Ósannað þótti að S hefði haft ásetning til að svipta A lífi og var því brot hennar ekki fært undir 211. gr. hegningarlaga. Þá var ekki talið unnt að staðhæfa að í háttsemi S hefði falist vísvitandi stórfelld líkamsárás sem færð yrði undir 2. mgr. 218. gr. sömu laga. S var á hinn bóginn sakfelld fyrir brot gegn 215. gr. laganna, enda hefði hún sýnt af sér gáleysi með háttseminni. Þá var hún einnig sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012. Rúmt ár var liðið síðan hinn áfrýjaði dómur gekk í héraði og talsvert á fimmta ár síðan atvik gerðust. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var sú niðurstaða staðfest að fresta ákvörðun refsingar ákærðu skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að S bæri að greiða dánarbúi B 2.760.884 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. febrúar 2026

S-123/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Loventa-Sonia Chiroaica (Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skilorð. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakborningur, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 30 daga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. febrúar 2026

S-121/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Florin-Cristian Burcea (Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður, sem játaði brot sín, sakfelldur fyrir þjófnaði og dæmdur til að sæta skilorðsbundnu fangelsi í 45 daga. Skaðabótakröfu vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 18. febrúar 2026

33/2025

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Ívari Gísla Vignissyni (Björgvin Jónsson lögmaður) (Guðmundur Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var gefin að sök nauðgun með því að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við A án hennar samþykkis. Í ákæru var háttsemi hans talin varða við 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með héraðsdómi var X sýknaður en hann sakfelldur í Landsrétti. Fyrir Hæstarétti krafðist X ómerkingar hins áfrýjaða dóms og byggði meðal annars á því að sönnunarmat hans hefði ekki samrýmst reglum laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sakfelling hans hefði fyrst og fremst verið byggð á því að Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá X en sú úrlausn réttarins verið röng og forsendur dómsins afar óáreiðanlegar. Þá hefði ekki verið reynt að ganga úr skugga um áreiðanleika gagnanna við rannsókn lögreglu. Hæstiréttur taldi ekki efni til að fallast á ómerkingarkröfu X og vísaði einkum til þess að í hinum áfrýjaða dómi hefði verið fjallað með ítarlegum hætti um þessi sönnunargögn og um leið tekin afstaða til varna X þar að lútandi. Niðurstaða um sönnun hefði verið reist á heildarmati allra sönnunargagna málsins, þar á meðal framburði X og vitna. Auk þess hefðu ekki komið fram vísbendingar um uppruna samskiptagagnanna sem sköpuðu skynsamlegan vafa að þessu leyti. Um efnishlið málsins rakti Hæstiréttur að niðurstaða Landsréttar hefði verið reist á heildstæðu mati á öllum sönnunargögnum. Frásögn A hefði þar verið metin trúverðug auk þess sem hún hefði verið talin fá stuðning í framburði vitna en að fyrir hendi væru atriði sem drægju úr trúverðugleika framburðar X. Það mat yrði ekki endurmetið af Hæstarétt, sbr. 2. mgr. 225. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu X. Með hliðsjón af verulegum og óútskýrðum töfum á rannsókn lögreglu og í ljósi ungs aldurs X þótti mega staðfesta forsendur og niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu hans sem ákveðin var fangelsi í tvö ár en fullnusta 21 mánaðar bundin almennu skilorði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2026

S-7408/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2026

S-5205/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn Emil Kára Ólafssyni (Ólafur Garðarsson lögmaður) og Gísla Gíslasyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður bótakrefjanda) (Gunnlaugur Garðarsson lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir fjárdrátt í rekstri hlutafélags og dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2026

S-3974/2025

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jónasi Orra Matthíassyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Alexander Hafþórsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða brotaþola 500.000 krónur í miskabætur, auk vaxta og kostnaðar. Ákærði var sýknaður af kröfu um skaðabætur vegna fjártjóns.

Landsréttur birt 12. febrúar 2026

453/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Kristinssyni (Hilmar Magnússon lögmaður), Baldri Þór Sigurðarsyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Sigfúsi Bergmann Svavarssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður), Agurim Xixa (Almar Þór Möller lögmaður), Elsu Ruth Róbertsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og X (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2026

S-5830/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður), Y (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Gabríel Douane Boama (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X var sakfelldur fyrir tvö rán framin annars vegar í félagi við meðákærða Gabríel og hins vegar í félagi við meðákærða Y, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, aðra framda í félagi við meðákærða Gabríel, auk sérrefsilagabrota. Ákærði Gabríel var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og hlutdeild í ráni, framið í félagi við meðákærða X. Ákærði Y var sakfelldur fyrir rán framið í félagi með X. Var ákærði X dæmdur í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi, Gabríel var dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og Y var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærði X var jafnframt sviptur ökurétti í 18 mánuði og gert að sæta upptöku fíkniefna og vopna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2026

S-119/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn X (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða sakfelld fyrir líkamsárás og dæmd í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í eitt ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2026

S-5756/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Oskars Pocekajevs (Enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur og dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir stórfellt fíknefnabrot með því að hafa, ásamt öðrum manni, í sameiningu haft i vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 57 kannabisplöntur, 29.150 g af kannabisplöntum og 25.420 g af maríhúana og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit. Var málið dæmt sem útivistarmál.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2026

S-4356/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Páli Gísla Jónssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur og dæmdur til 15 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir stórfellt fíknefnabrot með því að hafa, ásamt öðrum manni, í sameiningu haft i vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 57 kannabisplöntur, 29.150 g af kannabisplöntum og 25.420 g af maríhúana og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit. Voru umrædd efni og haldlagðir munir gerðir upptækir. Hafnað var kröfu verjanda um að ákæru málsins yrði vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

S-5633/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Santino Gkermeni (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Hleð fleiri dómum…