Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-2489/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Svavari Sigurðssyni

(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Játningarmál. Kynferðisbrot. Skilorð. Upptaka.

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og gert að sæta upptöku.

Dómur

I

Ákæra

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 26. maí 2026, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 12. maí 2026, á hendur Svavari Sigurðssyni, kt. […], […], „fyrir kynferðisbrot með því að hafa, mánudaginn 6. maí 2024 á heimili sínu að […] í Reykjavík haft í vörslum sínum alls 7 ljósmyndir og 3 myndbönd sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, en ákærði geymdi myndefnið í HP tölvuturni (munanúmer […]), Samsung farsíma (munanúmer […]), Medion tölvu (munanúmer […]) og Samsung spjaldtölvu (munanúmer […]) sem haldlögð voru af lögreglu við húsleit. Telst háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

    M: 007-2023-[…]

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist með vísan til 1. og 3. tl. 69. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, að HP tölvuturn (munanúmer […]), Samsung farsími (munanúmer […]) […] og Samsung spjaldtölva (munanúmer […]) verði gerð upptæk.“

II

Málsmeðferð og dómkröfur

  1. Málið var þingfest 26. maí 2026 og játaði ákærði sök samkvæmt ákæru og féllst á upptökukröfu. Voru því skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu kröfur og greinir í ákæru eftir breytingu, en í þinghaldinu féll ákæruvaldið frá upptökukröfu að því er varðar Medion-tölvu (munanúmer […]). Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og komi til fangelsisrefsingar er þess krafist að hún verði skilorðsbundin að fullu. Þá krefst verjandi hæfilegrar málsvarnarþóknunar í samræmi við tímaskýrslu.
  2. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín, bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Með játningu ákærða, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

III

Ákvörðun refsingar

  1. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 11. maí 2026, hefur hann ekki áður sætt refsingu. Ákærða til málsbóta verður litið til skýlausrar játningar hans bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, sem og þess að hann á engan sakaferil að baki. Á hinn bóginn verður ekki litið fram hjá því að brot ákærða varðar vörslur á myndefni sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.
  2. Að framangreindu virtu, og með vísan til 1., 2., 5. og 9. tl. 1. mgr. 70. gr. og 9. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði.
  3. Samkvæmt greindri niðurstöðu og með vísan til lagaákvæða í ákæru er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins, eins og nánar greinir í dómsorði.

IV

Sakarkostnaður

  1. Vegna úrslita málsins, og með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008, verður ákærða gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, sem með hliðsjón af tímaskýrslu og viðmiðunarreglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir hæfilega ákveðin 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki hlaust annar kostnaður af meðferð málsins.
  2. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari.
  3. Guðrún Sesselja Arnardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Svavar Sigurðsson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á HP-tölvuturni (munanúmer […]), Samsung-farsíma (munanúmer […]) og Samsung-spjaldtölvu (munanúmer […]).

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 353.400 krónur.

Guðrún Sesselja Arnardóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.69. gr. a1. mgr. 70. gr.1. mgr. 74. gr.1. mgr. 210. gr. a
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.233. gr.1. mgr. 235. gr.