Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 26. mars 2026.
Mál nr. S-1254/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Ágúst Ágústssyni
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Líkamsárás. Skilorð.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.
Dómur
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Mál þetta, sem dómtekið var 24. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 23. desember 2025, á hendur; „Guðmundi Ágústi Ágústssyni, kt. […], […] Reykjavík, fyrir líkamsárás með því að hafa, fimmtudaginn 14. september 2023, innandyra á skemmtistaðnum […] við Bankastræti . […] í Reykjavík, veist með ofbeldi að A, kt. . […], og slegið hann í andlitið með krepptum hnefa, með þeim afleiðingum að hann hlaut bólgu og mar á efri vör og blóðnasir.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
M: 007-2023-. […] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
- Ákærði krefst þess að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa.
I
- Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu en sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
II
- Ákærði er fæddur í . […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 5. mars 2026, hefur ákærða nokkrum sinnum verði gerð sektarrefsing, aðallega vegna þjófnaðar. Þá var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár af þýskum dómstól . […] 2020 vegna m.a. þjófnaðar. Loks var ákærði með dómi héraðsdóms . […] 2024 dæmdur í 30 daga fangelsi vegna líkamsárásar sem talin var varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot það sem ákærði hefur nú verið sakfellur fyrir framdi hann áður en framangreindur dómur var kveðinn upp.
- Við ákvörðun refsingar ákærða er litið til þess, til refsimildunar, að ákærði hefur skýlaust játað háttsemi sína og hefur leitað sér aðstoðar vegna fíknivanda, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laga nr. 19/1940, en til þyngingar að brotið beindist að heilsu og velferð brotaþola sem hlaut áverka við árásina, sbr. 1. og 3. tölulið sama lagaákvæðis. Samkvæmt 60. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 78. gr. laganna, verður refsing ákærða samkvæmt framangreindum dómi frá . […] 2024 dæmd upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga, skilorðsbundin eins og í dómsorði greinir.
- Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins, 22.053 krónur samkvæmt framlögðu yfirliti ákæruvaldsins.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi.
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Guðmundur Ágúst Ágústsson, sæti fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 22.053 krónur í sakarkostað.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir