Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1699/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Magnúsi Birni Haraldssyni

Fangelsi. Líkamsárás. Miskabætur. Skilorð.

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 20. apríl sl. var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2. apríl 2026, á hendur: „Magnúsi Birni Haraldssyni, kt. […], […], […] Reykjavík, fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 11. ágúst 2024, innandyra á skemmtistaðnum […] við […] í Reykjavík, veist með ofbeldi að A, kt. […], og slegið hann í andlitið með krepptum hnefa, með þeim afleiðingum að hann rotaðist og hlaut lítið sár á hægri kinn og roða yfir kinnbein, mar og eymsli yfir vinstri olnboga og mar yfir hægri hluta hægri framhandleggjar og úlnliðs fram á hönd litla fingurs megin.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    M: 007-2024-[…]

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa:

Af hálfu Ingu Lillý Brynjólfsdóttur, f.h. A, kt. […], er krafist miskabóta úr hendi ákærða […], að fjárhæð 1.000.000 kr. Krafist er vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af fyrrgreindri fjárhæð frá 11. ágúst 2024, en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að bótakrafa er birt til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.

I

  1. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en ákæra málsins og fyrirkall var birt fyrir honum þann 14. apríl 2026. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og telst hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

II

  1. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 31. mars 2026, var ákærði með dómi héraðsdóms […] 2007 dæmdur í 45 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár vegna líkamsárásar sem talin var varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var ákærði með dómi héraðdóms […] 2012 dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og lögum um ávana- og fíkniefni.

    Að öðru leyti kemur sakarferill ákærða ekki til skoðunar. Við ákvörðun refsingar ákærða er til refsiþyngingar litið til þess að árásin var tilefnislaus og beindist að heilsu og velferð brotaþola sem hlaut töluverða áverka við árásina, sbr. 1. og 3. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi 30 daga, skilorðsbundin eins og í dómsorði greinir.

  2. Af hálfu brotaþola er þess krafist að ákærða verði gert að greiða honum miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna, auka vaxta og dráttarvaxta. Ákærði hefur verið sakfelldur samkvæmt ákæru og hefur með háttsemi sinni bakað sér bótaábyrgð á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 gagnvart brotaþola. Er háttsemi ákærða til þess fallin að valda brotaþola miska. Þykir fjárhæð miskabóta hæfilega ákveðin, með hliðsjón af atvikum og dómafordæmum, 300.000 krónur, auk vaxta og dráttarvaxta eins og nánar greinir í dómsorði. Bótakrafa var fyrst birt fyrir ákærða við birtingu fyrirkalls 14. apríl sl. og verður upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag, sbr. 2. málsliður 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. Þá greiði ákærði brotaþola 200.000 krónur í málskostnað.
  3. Samkvæmt málsgögnum leiddi engan sakarkostnað af meðferð málsins.
  4. Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Magnús Björn Haraldsson, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði greiði A 300.000 krónur með vöxtum, samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 11. ágúst 2024, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá 14. apríl 2026 til greiðsludags og 200.000 krónur í málskostnað.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.173. gr. a1. mgr. 217. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 26. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.