Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. mars 2026.
Mál nr. S-7504/2025:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ergys Hamiti
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Peningaþvætti. Skilorð. Upptaka. Útivistardómur.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, peningaþvætti og brot gegn lögum um útlendinga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Dómur
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Mál þetta, sem dómtekið var 24. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 23. desember 2025, á hendur: „Ergys Hamiti, kt. […], ríkisborgara […], fyrir eftirtalin brot:
- Fíkniefnalagabrot, peningaþvætti og lögreglulagabrot með því að hafa, mánudaginn 14. júlí 2025, utandyra við Jafnasel í Reykjavík, óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að stöðva og hlaupið á brott undan lögreglu uns lögregla hljóp hann uppi og stöðvaði för hans stuttu síðar og haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 1,91 g af maríhúana og 4,36 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 26.000, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða og lagði hald á.
Mál nr. 007-2025-[…]
Telst brot þetta varða við 19. gr., sbr. 44. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa, á sama tíma og greinir í ákærulið 1, í íbúð að Klyfjaseli […] í Reykjavík, í félagi við þekktan aðila, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 257,70 g af maríhúana og 6,39 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 40.000, sem ákærði benti lögreglu á við leit og lagði hald á.
Mál nr. 007-2025-[…]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Útlendingalagabrot með því að hafa, dvalið í heimildarleysi hér á landi án vegabréfsáritunar og dvalarleyfis frá […] 2024, en ákærði fór huldu höfði hér á landi í kjölfar tilkynningar Útlendingastofnunar dags. […] 2025, þar sem ákærða var tilkynnt um hugsanlega brottvísun og endurkomubann, birt ákærða þann […]. s.m.
Mál nr. 007-2025-[…]
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 49. gr. og 50. gr., sbr. a. lið 1. mgr. 116. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
- Fíkniefnalagabrot og peningaþvætti með því að hafa, sunnudaginn 27. júlí 2025, utandyra við Hamraborg í Kópavogi, haft í vörslum sínum ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni samtals 30,38 g af maríhúana og 6,32 g af amfetamíni auk þess að hafa, um nokkurt skeið og allt til þess dags, tekið við, aflað sér og geymt ávinning af söludreifingu ótiltekins magns ólöglegra ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð kr. 90.000, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða og lagði hald á.
Mál nr. 007-2025-[…]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Jafnframt er krafist upptöku á samtals 289,99 g af maríhúana og 17,07 g af amfetamíni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. Einnig er krafist upptöku á tveimur farsímum (munir nr. […] og […]), sem hald var lagt á, með vísan til 7. mgr. 5. gr. sömu laga, en ætlað er að farsíminn hafi verið notaður við söludreifingu ólöglegra ávana- og fíkniefna. Loks er krafist upptöku á haldlögðu reiðufé samtals kr. 156.000 (munir nr. […], […] og […]) skv. 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. og 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en reiðuféð eru ætlaður ágóði af söludreifingu ólöglegra ávana- og fíkniefna.“
I
- Ákærði sótti ekki þing þegar málið var þingfest og hafði ekki boðað forföll þrátt fyrir lögmæta birtingu fyrirkalls en ákæra og fyrirkall, sem gefið var út á hendur honum […] 2026, var birt í Lögbirtingarblaði […]. sama mánaðar með heimild í 3. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar sem ekkert er vitað um dvalarstað hans. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkalli að þannig gæti farið um meðferð málsins. Um málsatvik er skírskotað til ákæru. Með vísan til þess lagaákvæðis þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans á brotum þeim sem greinir í ákæru enda fari sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Eru brotin rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru og hefur ákærði því unnið sér til refsingar.
II
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 15. janúar 2026, var ákærði með dómi héraðsdóms […] 2023 dæmdur í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, vegna vörslu ávana- og fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Með þeim brotum sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir rauf hann skilorð framangreinds dóms, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og verður dómurinn því dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi vegna allra brotanna. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og 77. gr. laga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundin eins og í dómsorði greinir.
- Með vísan til þeirra lagaákvæða er greinir í ákæru eru gerð upptæk samtals 289,99 g af maríhúana og 17,07 g af amfetamíni, tveir farsímar (munir nr. […] og […]), og 156.000 krónur í reiðufé (munir nr. […], […] og […]).
- Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Ergys Hamiti, sæti fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Upptæk eru gerð 289,99 g af maríhúana, 17,07 g af amfetamíni, tveir farsímar (munir nr. […] og […]) og 156.000 krónur (munir nr. […], […] og […]).
Sigríður Elsa Kjartansdóttir