Tveir ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Annar þeirra einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Einn ákærða sýknaður af hlutdeild í broti þeirra og ákærðu varðandi hlutdeild annarra fimm vísað frá dómi.
Ákærðu S, L og M var gefið að sök manndráp, frelsissvipting og rán með því að hafa í félagi svipt A lífi og beitt hann í aðdraganda þess margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi, sbr. ákærulið I, og tilraun til fjárkúgunar, sbr. ákærulið II. Þá var ákærða X gefið að sök peningaþvætti með því að hafa samþykkt, að beiðni L og M, að taka við millifærslu inn á bankareikning sinn af bankareikningi A, sbr. ákærulið III. Loks var ákærðu R gefin að sök hlutdeild í frelsissviptingu og ráni í ákærulið I, sbr. ákærulið IV. Með hinum áfrýjaða dómi voru S, L og M sakfelldir samkvæmt ákærulið I og var S einnig sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið II en L og M sýknaðir. Þá var X sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið III en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið. Loks var R sýknuð af sakargiftum samkvæmt ákærulið IV. Var ákærðu S og L gert að sæta fangelsi í 17 ár og M fangelsi í 14 ár. Loks var S, L og M gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Í dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að S, L og M hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem lýst væri í ákærulið I og staðfesti Landsréttur sakfellingu ákærðu fyrir manndráp, sbr. 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, frelsissviptingu og rán. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms varðandi ákærulið II. Að mati Landsréttar þótti ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði haft vitneskju um að upplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti og að hann hefði verið bær til að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu. Sýknaði Landsréttur því X samkvæmt ákærulið III. Loks taldi Landsréttur að þáttur R í aðdraganda frelsissviptingar A uppfyllti skilyrði til að teljast hlutdeild í frelsissviptingu A en ákæruvaldinu hefði aftur móti ekki tekist sönnun um það að ásetningur R hefði staðið til þess að A yrði beittur líkamlegu ofbeldi til að ná af honum fé. Var R því sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni samkvæmt ákærulið IV. Var refsing S og L ákveðin fangelsi í 16 ár, refsing M fangelsi í 12 ár auk þess sem þeim var gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Loks var R gert að sæta fangelsi í 6 mánuði sem bundið var skilorði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kleant Hysi (
Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sæta upptöku fjármuna.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (
Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
David Christian Scobie (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ergys Hamiti
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, peningaþvætti og brot gegn lögum um útlendinga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Hrafni Guðbergssyni (
Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í tveggja mánaða skilorsðbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn
Mykola Hupalo
Ákærði dæmdur í fimm mánaða skilorsðbundið fangelsi fyrir peningaþvætti.
Einstaklingur átti í viðskiptum við banka. Eftir að einstaklingurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot, þar á meðal peningaþvætti, sagði bankinn upp viðskiptasambandinu í mars 2024. Árið 2025 fór einstaklingurinn fram á að opnað yrði aftur fyrir bankaviðskipti, en hann þyrfti á bankareikningi að halda til að geta fengið greidd laun. Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Höfðaði einstaklingurinn þá mál þetta gegn bankanum og krafðist þess að honum yrði gert skylt að opna aftur fyrir bankaviðskiptin. Í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem einstaklingurinn lá undir rökstuddum grun um að hafa framið taldi dómurinn að fallast mætti á þann málatilbúnað bankans að synjun hans á beiðni einstaklingsins um stofnun nýs bankareiknings teldist eiga sér næga stoð í lögum nr. 140/2018, sbr. einnig ákvæði 3. mgr. 14. gr. laga nr. 5/2023.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)
gegn
Benone Stan (
Felicia Mariana Pralea lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Valborg Steingrímsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Okey Emmanuel Ojidelu (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur og dæmdur í 20 mánaða fangelsi, að frádreginni gæsluvarðhaldsvist, fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots og peningaþvætti. Upptaka fjármuna.
Ákæruvaldið (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Graciano Vicente Mendonca Abreu og Paulo André S. Santana Afonso (sjálfir)
Tveir menn sakfelldir fyrir þjófnað og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sýknuð af því að hafa neitað að gangast undir öndunarpróf og gefa blóðsýni og ákæru um þjófnað og peningaþvætti
Báðir ákærðu sakfelldir fyrir peningaþvætti og annar þeirra einnig fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni.
Ákærðu sakfelld fyrir brot á ávana- og fíkniefnalögum, peningaþvætti og barnaverndarlagabrot.
Héraðssaksóknari (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Patryk Uscio (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Guðmundi Kristni Jónssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ávana- og fíkniefnabrot, sem og peningaþvætti og var honum gert að sæta fangelsi í átta mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á efnum og munum, auk greiðslu sakarkostnaðar. Þá var kröfu ákærða um frávísun á hluta sakarefnis hafnað.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Guðjóni Agustin Cortés (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot og peningaþvætt og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefna og fjármunir.
P var sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 2. til 4. desember 2023 tekið við samtals 1.990.000 krónum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, en talið var að honum hefði ekki getað dulist eða hann í öllu falli látið sér það í léttu rúmi liggja að um hefði verið að ræða ávinning af sölu- og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum. Fjármunina var P með í vörslum sínum þegar hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 4. desember 2023. Var refsing P ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en í ljósi eðlis og alvarleika brotsins þóttu ekki efni til þess að binda hana skilorði. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku fjármunanna.
K var sakfelldur í héraði fyrir peningaþvætti, sbr. 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa á tímabilinu 6. mars 2024 til 11. sama mánaðar tekið við samtals 21.125 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu K vegna peningaþvættis og fallist á með héraðsdómi að framburður K um uppruna reiðufjárins væri í heild mjög ótrúverðugur. Þá taldi Landsréttur að ákæruvaldið hefði sýnt fram á með óyggjandi hætti að útilokað væri að reiðuféð sem fannst í vörslum K ætti sér lögmætan uppruna og að K hafi ekki getað dulist það eða í öllu falli látið sér það í léttu rúmi liggja. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um upptöku og sakarkostnað staðfest með vísan til forsendna. Var refsing K ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en í ljósi eðlis og alvarleika brotsins var ekki fallist á að hún yrði bundin skilorði.
M var gefið að sök peningaþvætti samkvæmt 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa á tímabilinu 16. til 19. maí 2024 tekið við samtals 4.920 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum sem M gat ekki dulist að væri ávinningur af refsiverðum brotum. Í dómi Landsréttar kom fram að M hefði ekki gefið trúverðugar skýringar á komu sinni hingað til lands og tilurð þeirra fjármuna sem hann hafði í fórum sér þegar lögregla hafði afskipti af honum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ekki var talið að gögn sem M hafði lagt fram gætu breytt því mati. Jafnframt var litið til þess að M hitti, sama dag og hann kom til landsins, mann sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en frásögn M um ástæðu fundarins og hvað þeim fór á milli var talin með nokkrum ólíkindum. Enn fremur var að teknu tilliti til tekna M talið afar ósennilegt að einstaklingur í hans stöðu hefði komið með framangreinda fjárhæð til landsins í þeim óljósa tilgangi sem M hafði greint frá. Taldi dómurinn sýnt fram á með óyggjandi hætti að útilokað væri að fjármunir sem M hafði í fórum sínum þegar hann var handtekinn væru til komnir með lögmætum hætti. Hafi þannig verið um að ræða ávinning af refsiverðum brotum sem M gat ekki dulist um. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu M og upptöku fyrrnefndra fjármuna staðfest og refsing hans ákveðin fangelsi í tvo mánuði.
M var sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, ásamt meðákærðu í héraði X, á tímabilinu 28. apríl til 1. maí 2023 tekið við samtals 28.180 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, en þeim hefði ekki getað dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum. Voru þau með reiðufé falið í farangri, 18.160 evrur hjá M og 10.020 evrur hjá X, þegar þau voru handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1. maí 2023. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að M hefði verið sakfelldur fyrir að taka við ávinningi af refsiverðum brotum sem ætlunin hefði verið að flytja úr landi. Hann hefði ekki áður sætt refsingu svo vitað væri en horfa yrði til 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing M ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um upptöku fjármunanna.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Genci Zylyftari
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.
Ákærðu J, P, Á, H, G, V, Th, TK og AÞ var meðal annars gefin að sök skipulögð brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot sem þau hafi sammælst um að fremja á árinu 2023 og fram til 11. apríl 2024. Hafi framkvæmd brotanna verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka, en þau hafi í félagi staðið að sölu og dreifingu fíkniefna hér á landi, meðvituð um tiltekna verkaskiptingu við geymslu, pökkun, sölu og dreifingu efnanna, meðal annars í fjórum nánar tilgreindum tilvikum 21. og 22. september 2023, sem varðaði vörslur ávana- og fíkniefna í sölu og dreifingarskyni á þremur stöðum í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að af 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála leiddi að einungis væri unnt að taka afstöðu til síðastnefndra fjögurra tilvika varðandi þennan hluta málsins. Af framsetningu ákæru leiddi að ekki væri unnt, svo sem gert var í hinum áfrýjaða dómi, að taka afstöðu til þess hvort ákærðu hefðu í öðrum tilvikum árið 2023 og fram til 11. apríl 2024 gerst sek um ávana- og fíkniefnalagabrot. Voru ákærðu J, P, G, V, og TK sakfelld samkvæmt þessum hluta ákærunnar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en auk þess taldi Landsréttur sannað að brotin hefðu verið framkvæmd sem liður í skipulagðri brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a almennra hegningarlaga. Ákærðu Á, H, Th og AÞ voru hins vegar sýknuð af þessum hluta ákærunnar. Auk framangreinds voru J, P, Á, D og G sakfelldir fyrir nánar tilgreind peningaþvættisbrot og fíkniefnalagabrot og J, G og H fyrir innflutning ávana- og fíkniefna sem liðar í skipulagðri brotastarfsemi. Þá voru Th og AÞ sakfelld fyrir nánar tilgreind fíkniefnalagabrot. Loks voru J, P, TK, H og D sakfelld fyrir nánar tilgreind vopnalagabrot.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X (enginn)
Í hinum kærða dómi var tilteknum ákærulið, þar sem X var gefið að sök peningaþvætti, vísað frá dómi þar sem að áliti dómsins hafi skort á að lýst væri nægilega verknaðarþáttum peningaþvættisbrots. Í úrskurði Landsréttur kom fram að ekki yrði talið að þeir ágallar hafi verið á umræddum hluta ákærunnar að X gæti ekki af henni ráðið hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um. X hafi því verið fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum gegn þeim. Þá hafi aðstoðarmanni dómara, sem kvað upp dóminn, verið af ákærunni einni fært að gera sér grein fyrir hvað X var sakaður um og hvernig telja mætti þá háttsemi refsiverða. Væri með ákærunni lagður fullnægjandi grundvöllur að þessum hluta málsins þannig að taka mætti hann til efnislegrar meðferðar. Felldi Landsréttur því úr gildi þann hluta hins kærða dóms að vísa lið II í ákæru frá dómi og lagði fyrir héraðsdóm að taka þann ákærulið til efnismeðferðar.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir peningaþvætti, og annar þeirra jafnframt fyrir gabb og þjófnað, og dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisvistunnar.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Svani Guðmundssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Hegningarauki. Skilorðsdómur dæmdur upp.
Ákæruvaldið (
Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
X var ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið við á tilteknu tímabili samtals 21.125 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Landsréttur taldi að ekki væri unnt að draga neinar ályktanir af ákæru um hvaða frumbrot lægi peningaþvættisbrotinu til grundvallar og vísaði málinu frá héraði þar sem ákæran uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hæstiréttur vísaði hins vegar til þess að í ákæru vegna brots gegn 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 væri ekki nauðsynlegt að tilgreina frumbrot og heldur ekki um hvaða tegund brots eða brota um væri að ræða. Væri það hlutverk ákæruvalds undir rekstri sakamáls að færa sönnur á að tiltekinn ávinningur stafaði af refsiverðu broti og nægði þar að sýna fram á með óyggjandi hætti að útilokað væri að ávinningur væri kominn til með lögmætum hætti svo og að öðrum skilyrðum fyrir refsiábyrgð væri fullnægt. Taldi Hæstiréttur að ekki væru þeir ágallar á ákæru í málinu að X gæti ekki af henni ráðið hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um. Þá væri dómurum fært af ákærunni einni að gera sér grein fyrir hvað X væri sakaður um og hvernig telja mætti þá háttsemi refsiverða. Með ákærunni hefði því verið lagður fullnægjandi grundvöllur að málinu svo taka mætti það til efnislegrar meðferðar. Var hinn kærði dómur því felldur úr gildi og málinu vísað aftur til Landsréttar.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Benedikt Torfa Ólafssyni Zoéga (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
X var sakfelldur fyrir fjárdrátt og peningaþvætti og dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið tvö ár.
Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Tómasi Dat Nguyen
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti og gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Þrír menn voru sakfelldir fyrir manndráp, rán og frelsissviptingu og einn þeirra þar að auki fyrir tilraun til fjárkúgunar. Var tveimur þeirra gert að sæta fangelsi í 17 ár, en þeim þriðja í 14 ár, þar sem þótti hafið yfir allan vafa að það sem olli andláti brotaþola voru þeir áverkar sem ákærðu veittu honum, þeir hafi staðið saman að því allir þrír að beita brotaþola ofbeldi ásamt því að skilja hann eftir varnarlausan og ennfremur að ákærðu hafi ekki geta dulist mögulegar afleiðingar brota þeirra en þeir látið sér það í léttu rúmi liggja. Þá var fjórði maðurinn fundinn sekur um peningaþvætti, en ákvörðun um refsingu hans var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Loks var kona sýknuð af ákæru af hlutdeild í áðurnefndri frelsissviptingu og ráni. Þá var þremur mönnum gert að greiða brotaþolum skaða- og miskbætur ásamt málskostnaði. Þá var ákærðu gert að greiða sakarkostnað.
Ákærða var sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði skilorðsbundið til þriggja ára.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hirti Davíðssyni (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Agli Rúnari Erlendssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður) og
Steingrími Árnasyni (
Eldjárn Árnason lögmaður)
Tveir menn sakfelldir sem aðalmenn í fjársvikum í tengslum við skráningu og rekstur vefsíðna á internetinu og fyrir eftirfarandi peningaþvætti með millifærslu og móttöku fjármuna.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Birki Mána Þorsteinssyni
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Armand Zeqollari (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Sakfellt fyrir peningaþvætti.
B var sakfelld fyrir skjalafals með því að hafa útbúið tilhæfulausar kröfur í kerfum Sjúkratrygginga sem urðu til þess að þrír einstaklingar fengu greiðslur frá stofnuninni. Einn þeirra er látinn en hinir tveir voru sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 264. gr. laga nr. 19/1940
R var sakfelld í héraði fyrir peningaþvætti, sbr. 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa á árunum 2017 til og með 2020 tekið við, nýtt, umbreytt og geymt ávinning af sölu og dreifingu á fíkniefnum, samtals að fjárhæð 7.076.248 krónur. Kröfu ákæruvaldsins um upptöku á tveimur töskum var aftur á móti hafnað. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu R vegna peningaþvættis að því viðbættu að sannað þótti að greiðsla að fjárhæð 190.000 krónur til R frá tilgreindu félagi þótti ekki eiga sér lögmæta skýringu. Þá var ekki fallist á að R hefði sýnt fram á að þeirra fjármuna sem framangreindar töskur voru keyptar fyrir hefði verið aflað með lögmætum hætti. Var því fallist á kröfu ákæruvaldsins um upptöku á töskunum. Sökum tafa við meðferð málsins þótti ekki koma til álita að þyngja refsingu ákærðu og var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um fimm mánaða skilorðsbundna fangelsisrefsingu staðfest.
[…]. Í endanlegri mynd er ákæran svohljóðandi „fyrir eftirtalin brot I (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
ákærða X fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum,
lögum um ávana-,
fíkniefni 1. Fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots,
með því að hafa föstudaginn 4. júní 2021 (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður),
sótt (
Snorri Sturluson lögmaður) og
þann (
Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Í málinu voru ákærðu X og Y sakfelldir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart A. Ákærði Y var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A á meðan á frelsissviptingunni stóð. X var auk þess sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Loks var Z sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, og kynferðislega áreitni á meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð.
Ákærðu sakfelld fyrir stórfelld skattalagabrot, brot á lögum um virðisaukaskatt, tekjuskatti, fyrir brot á bókhaldslögum og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Artur Wietocha
Ákærði sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna í söluskyni, fyrir brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum. og peningaþvætti
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Birki Þór Guðmundssyni (
Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og brot gegn lyfjalögum, sem og fyrir peningaþvætti, með því að hafa selt og afhent ótilgreindum fjölda einstaklinga ávana- og fíkniefni, fíknilyf og lyfseðilsskyld lyf án heimildar, sem og fyrir að hafa í vörslum sínum fíkniefni, fíknilyf og lyfseðilsskyld lyf. Var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnra frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefni, fíknilyf og lyfseðilsskyld lyf, auk muna og fjármuna er ákærði hafði aflað með háttsemi sinni.
Á og E voru ákærðir fyrir fjársvik tengd starfsemi trúfélagsins Z, sbr. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa, einkum frá 2017 til 2019 styrkt og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna íslenskra stjórnvalda að uppfyllt væru skilyrði til að skrá trúfélagið samkvæmt lögum nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Á þeim grundvelli hefði trúfélagið fengið greidd sóknargjöld úr ríkissjóði að fjárhæð samtals 84.727.320 krónur. Ákærðu var einnig gefið að sök peningaþvætti, sbr. 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga vegna meðferðar ávinnings af fjársvikabrotunum. Ákærðu kröfðust frávísunar, heimvísunar eða ómerkingar málsins vegna ágalla á ákæru og að samningu á dómi Landsréttar hafi verið áfátt. Hæstiréttur taldi enga þá formannmarka á málinu sem stæðu því í vegi að efnisdómur yrði lagður á það og staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Á og E en þó þannig að leggja yrði til grundvallar varðandi fjársvikabrotið að ákærðu hefðu styrkt og hagnýtt sér óljósa hugmynd viðkomandi starfsmanna ríkisins fremur en beinlínis ranga hugmynd þeirra. Ákærðu hafi þannig sameiginlega markvisst hagnýtt sér þá óvissu sem hafði skapast um starfsemi hins ákærða trúfélags Z og aflað því framlaga úr ríkissjóði sem það átti í reynd engan rétt á. Var staðfest niðurstaða Landsréttar um refsingu ákærðu. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um upptöku eigna ákærðu trúfélagsins Z og félaganna E ehf. og T LLC.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Silja Rán Arnarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Inga Sveinssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lindu Maríu Þórhallsdóttur (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Markúsi Darra Arnoddssyni (
Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Xhesi Hana
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og brot á ávana- og fíkniefnalögum.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Albi Ismaili
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og brot á ávana- og fíkniefnalögum.