Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Gabb
Ákærðu voru sakfelldir fyrir peningaþvætti, og annar þeirra jafnframt fyrir gabb og þjófnað, og dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisvistunnar.
Með tveimur dómum héraðsdóms var MJ sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nokkur brot gegn valdstjórninni, að gabba lögreglu, tvær líkamsárásir og tilraun til manndráps samkvæmt samtals fjórum ákærum. MJ skaut báðum dómunum til Landsréttar og voru málin þar sameinuð. Með dómi Landsréttar var niðurstaða beggja héraðsdómanna um sakfellingu MJ staðfest. Ákvæði 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 voru ekki talin standa því í vegi að MJ yrði gerð refsing í málinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot MJ væru ófyrirleitin og margítrekuð. Með vísan til þessa og að teknu tilliti til 3. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. c, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og 1., 2., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga, var MJ gert að sæta fangelsi í átta ár en gæsluvarðhald sem hann hafði sætt skyldi dragast frá refsingunni. Þá var MJ gert að greiða brotaþolunum A og B tilgreindar miskabætur og að sæta upptöku á hnífsblaði með tilheyrandi svörtu handfangi.
M var sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, brot gegn sóttvarnalögum, brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot gegn vopnalögum, skjalafals og umferðarlagabrot, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 14. apríl 2020, 5. apríl 2022 og 9. maí sama ár. Í fyrstnefnda málinu hafði dómur fallið í héraði 10. september 2020 en með úrskurði Endurupptökudóms 28. mars 2022 var héraðsdómur í málinu endurupptekinn. M sætti geðrannsókn til að meta sakhæfi hans og var niðurstaða dómkvadds matsmanns sú að M væri sakhæfur og refsing gæti borið árangur. Var M því gerð refsing. Við ákvörðun refsingar M var höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá var tekið tillit til 1., 5., 6. og 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laganna. Var refsing M ákveðin fangelsi í 12 mánuði en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt frá 17. mars 2022 til 16. júní 2022, auk þess sem gerð var upptæk útdraganleg kylfa.
Ákærðu dæmdar í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til fjársvika og fyrir að hafa sviðsett umferðaslys og gabbað neyðarlið og lögreglu á vettvang.
Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir fulltrúi) gegn
Magnúsi Ólafssyni
Ákærði sakfelldur fyrir að gabba lögreglu.