Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

266 dómar fundust

Lykilorð: Nálgunarbann

Landsréttur birt 19. maí 2026 kl. 13:16

395/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 9. maí 2026 kl. 14:23

346/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (sjálfur)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 19. febrúar 2026

364/2025

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Jóni Gunnþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.

Landsréttur birt 23. janúar 2026

59/2026

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi í tólf mánuði sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að yrði fallist á kröfu L væri sú staða uppi að X sætti nálgunarbanni allt til 12. janúar 2027 sem fæli í sér að honum væri meðal annars bannað að koma á eða í námunda við heimili sitt þegar gæsluvarðhaldi hans lyki. Í ljósi ólíkra skilyrða fyrir beitingu nálgunarbanns annars vegar og brottvísunar af heimili hins vegar, og eins og stöðu málsins væri háttað, þætti ekki unnt að marka nálgunarbanni þann hámarkstíma sem 3. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili heimiluðu. Taldi rétturinn rétt að afmarka tímalengd nálgunarbannsins í samræmi við þann tíma þegar gæsluvarðhaldi X lyki.

Landsréttur birt 15. desember 2025

879/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 18. nóvember 2025

793/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2025

S-5103/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Heimi Erni Haraldssyni (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn nálgunarbanni og umsáturseinelti. Var honum gert að sæta fangelsi í 9 mánuði, skilorðsbundið að hluta til þriggja ára. Miskabætur.

Landsréttur birt 12. ágúst 2025

594/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 6. ágúst 2025

591/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms um staðfestingu ákvörðunar sóknaraðila um að varnaraðili skyldi sæta brottvísun af heimili og nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að brotaþola hefði hvorki verið tilnefndur réttargæslumaður við meðferð málsins hjá lögreglustjóra né skipaður réttargæslumaður við meðferð málsins í héraði svo sem skylt væri samkvæmt ákvæðum laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Vegna þessa annmarka væri óhjákvæmilegt að ómerkja hinn kærða úrskurð og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Landsréttur birt 23. júlí 2025

558/2025

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn X (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. júní 2025

S-279/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Ákærði játaði brot gegn friðhelgi einkalífs, umsáturseinelti og brot gegn nálgunarbanni. Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og miskabætur til handa brotaþola.

Landsréttur birt 3. júní 2025

412/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili í fjórar vikur á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 19. mars 2025

195/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 13. mars 2025

169/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem synjað var kröfu L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar var fallist á það með L að fyrir lægi að varnaraðili raskaði friði A í þeim mæli að fullnægt væru skilyrðum a- og b-liðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 85/2011 til að varnaraðila yrði gert að sæta nálgunarbanni gagnvart A. Þá var ekki talið að unnt væri að beita vægari úrræðum en nálgunarbanni til að vernda hagsmuni A. Var ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni staðfest en tími þess þó styttur í 4 mánuði.

Landsréttur birt 24. janúar 2025

57/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki væru efni til að marka ákvörðun L skemmri tíma á þeim grundvelli að rannsókn málsins væri ekki lokið og var því staðfest að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni í þrjá mánuði líkt og ákvörðun L kvað á um en með hinum kærða úrskurði hafði X verið gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni í einn mánuð.

Landsréttur birt 6. janúar 2025

12/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Svavar Daðason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili

Landsréttur birt 8. nóvember 2024

871/2024

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Hreiðar Eiríksson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunar á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 29. október 2024

841/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms með þeim hætti sem í úrskurðarorði greinir en X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 17. september 2024

726/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 17. september 2024

725/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 17. september 2024

724/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili..

Landsréttur birt 17. september 2024

722/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 13. júní 2024

493/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni gagnvart A á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. apríl 2024

S-5229/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Óskari Svani Barkarsyni (Jón Egilsson lögmaður)
Lykilorð: Hótanir. Nálgunarbann.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir og brot gegn nálgunarbanni.

Héraðsdómur Vesturlands birt 14. mars 2024

S-248/2022

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður brotaþola)

Sakfellt fyrir umsáturseinelti. Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Miskabætur

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. febrúar 2024

S-2503/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur til refsingar fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa veist að þáverandi sambýliskonu sinni á sumardvalarstað þeirra og sparkað í ökkla hennar með þeim afleiðingum að hún ökklabrotnaði og lá óvíg eftir.Þá var ákærði sakfelldur fyrir brot gegn nálgunarbanni.Refsing ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur.

Landsréttur birt 21. febrúar 2024

125/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að A hafi kært X til lögreglu vegna hótana og ógnandi hegðunar X í garð A. X neitaði hins vegar meintum brotum. Fyrir lá að engin vitni hafi orðið að þeim samskiptum sem voru tilefni kæru A í júní 2023 en í kæru í ágúst sama ár var vísað til samskipta X við samstarfsmann A. Gögn málsins báru hins vegar ekki með sér að skýrsla hefði verið tekin af umræddum samstarfsmanni A né öðrum sem kunna að hafa orðið vitni af þeim atvikum sem um ræðir. Að þessu gættu og að teknu tilliti til þess að X hafði ekki áður verið gert að sæta nálgunarbanni var ekki talið sýnt hefði verið fram á að skilyrðum 4. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili hefði verið fullnægt. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. desember 2023

S-5723/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfellur fyrir m.a. brot í nánu sambandi og brot gegn nálgunarbanni og dæmdur í 24 mánaða fangelsi skilorðbundið að hluta, til sviptingar ökuréttar og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 4. desember 2023

826/2023

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að móðir brotaþola hefði tilkynnt og leitað til lögreglu vegna ítrekaðs ónæðis, ógnandi og ofbeldisfullrar hegðunar og símaónæðis af hálfu X. Að virtum gögnum málsins taldi Landsréttur að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 85/2011 væri fullnægt til að X yrði gert að sæta nálgunarbanni gagnvart brotaþolum. Ekki var talið að unnt væri að beita vægari úrræðum en nálgunarbanni til að vernda hagsmuni brotaþola og var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og staðfest ákvörðun L um að X sæti nánar tilgreindu nálgunarbanni í sex mánuði.

Landsréttur birt 4. desember 2023

825/2023

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni gagnvart A. Í úrskurði Landsréttar kom fram að A hefði lýst því í skýrslutöku hjá lögreglu að hún hefði orðið fyrir miklu ónæði af hálfu X. Hann hefði ítrekað hringt í hana og sent henni sms skeyti og hótað henni lífláti og barsmíðum. Þá lægi fyrir að A hefði ítrekað leitað til lögreglu vegna ógnandi ofbeldisfullrar hegðunar og símaónæðis af hálfu X. Skilyrði a-liðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili voru talin uppfyllt og ekki var talið að unnt væri að beita vægari úrræðum en nálgunarbanni til að vernda hagsmuni A. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni í sex mánuði staðfest.

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

736/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 13. september 2023

641/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í forsendum hins kærða úrskurðar væri gerð grein fyrir þeim atvikum sem lægju að baki ákvörðun L um nálgunarbann og talið í ljós leitt að X hefði raskað friði brotaþola með því að hafa í nokkur skipti mætt óboðinn heim til hennar eða á heimili foreldra hennar þar sem hún hefði haldið til með börn sín og X. Hvað sem þessu liði og að teknu tilliti til þess að X hefði ekki áður verið gert að sæta nálgunarbanni þótti að öllum atvikum virtum varhugavert að líta svo á að sýnt hefði verið fram á að fullnægt væri skilyrðum 4. og 6. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Var ákvörðun L því felld úr gildi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. júlí 2023

S-1271/2023

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Magnús Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Hótanir. Nálgunarbann.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir brot gegn nálgunarbanni, brot í nánu sambandi, hótanir og kynferðisbrot.

Landsréttur birt 20. júlí 2023

541/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili með þeirri breytingu að nálgunarbanninu var markaður skemmri tími.

Landsréttur birt 27. júní 2023

475/2023

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

L krafðist þess að X yrði gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni í 12 mánuði. Með úrskurði Landsréttar var ákvörðun L staðfest þó þannig að tímalengd þess var stytt í 6 mánuði frá birtingu ákvörðunarinnar.

Hleð fleiri dómum…