Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Baldri Kolbeinssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir húsbrot og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, húsbrot og vændiskaup. Ákærði dæmdur til að greiða miska- og skaðabætur.
pX var ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot og vopnalagabrot með því að hafa farið inn á heimili brotaþola og inn í svefnherbergi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu, og veist að honum og stungið hann endurtekið með hnífi í höfuð og líkama og haldið atlögunni áfram með hnífi og/eða kýlt með krepptum hnefum í búk hans eftir að brotaþoli náði að standa upp, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut um 1 cm sár á utanverðri hægri kinn, sem saumað var með þremur sporum, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl, sem saumuð voru alls með fimm sporum. Fyrir lá að ákærði fór grímuklæddur frá heimili sínu með hníf og eftirlíkingu af skammbyssu og hafði klæðst sokkum yfir skó sína. Jafnframt var talið sannað með framburði vitna að hann hafi haldið heim til brotaþola í þeim tilgangi að skaða hann vegna þeirrar sannfæringar ákærða að brotaþoli hefði misnotað barn hans. Með vísan til aðdragandans og þess að ákærði hafi endurtekið beitt hættulegu vopni í myrkvuðu herbergi gegn viðkvæmum líkamshlutum brotaþola var talið sannað að á verknaðarstundu hafi honum ekki getað dulist að háttsemi hans gæti valdið bana, en hann hafi látið sér afleiðingar háttseminnar í léttu rúmi liggja. Var hann því talinn hafa gerst sekur um tilraun til manndráps, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, húsbrot og vopnalagabrot. Með vísan til niðurstöðu geðrannsóknar var ákærði talinn sakhæfur og engar refsilækkunar ástæður fyrir hendi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um alvarlegt brot var að ræða sem beindist að lífi og heilsu brotaþola og að hættulegu vopni hefði verið beitt, auk þess sem ákærði hafi ekki sýnt iðrun. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 2.500.000 krónur.br/p
X var gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll með því að hafa valdið spjöllum á bifreið í eigu A, þar sem hún stóð á bifreiðastæði fyrir utan hús sem A bjó í, og að því búnu farið heimildarlaust inn í íbúð A í húsinu og ráðist að honum og stungið hann tvisvar með hnífi og þeir lent í átökum í kjölfar þess, allt með þeim afleiðingum að A hlaut nánar tilgreinda áverka. Með dómi héraðsdóms var X fundinn sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru og að hafa valdið þeim áverkum sem þar greindi. X var með vísan til niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns ekki talinn ósakhæfur og ekki var heldur talið að refsing gæti ekki borið árangur, sbr. 15. og 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefði farið fram rannsókn á brotnum hnífi sem lögregla haldlagði á vettvangi og að niðurstöður rannsóknarinnar leiddu að því líkur að X hefði handfjatlað hnífinn á einhverjum tímapunkti. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að árás hans var tilefnislaus og alvarleg og hættulegu vopni var beitt á brjóstkassa A en einnig til þess að X iðraðist mikið, hafði fengið viðeigandi úrræði og meðferð og komið lífi sínu á rétta braut. Með hliðsjón af þessu og með vísan til 1., 3., 6. og 8. töluliða 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í átta mánuði, skilorðsbundið í tvö ár. Loks var X gert að greiða A 800.000 krónur í miskabætur með nánar tilgreindum vöxtum og málskostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Danival Guðjóni Stefánssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.
Ákærði var sakfelldur fyrir húsbrot en ekki fallist á að hann hefði gerst sekur um kynferðislega áreitni.
J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Sörla Einarssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson)
Ákærði sakfelldur fyrir húsbrot og umferðarlagabrot en sýknað af ákæru um hótun. Ákærði dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í þrjá mánuði.
J var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið heimildarlaust inn um glugga á sumarhúsi og þar inni kveikt eld með þeim afleiðingum að sumarhúsið brann til grunna. Varðandi þá háttsemi J að brjóta útiljós við annað sumarhús í nágrenni við hitt taldist brotið fyrnt, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 81. gr. og 5. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í sex mánuði. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um bótaábyrgð J gagnvart einkaréttarkröfuhafa staðfest og honum gert að greiða TM tryggingum hf. 14.298.040 krónur.
J var ákærður með tveimur ákærum fyrir mörg auðgunarbrot framin á tímabilinu 30. júní 2020 til 19. ágúst 2022. Með dómi Landsréttar var tveimur ákæruliðum vegna húsbrota vísað frá héraðsdómi þar sem ekki lágu fyrir refsikröfur vegna þeirra. Að öðru leyti var staðfestur hinn áfrýjaði dómur með vísan til forsendna um sakfellingu ákærða samkvæmt einstökum ákæruliðum. Í dómi Landsréttar var rakið að meðferð málsins fyrir Landsrétti hefði tafist, fyrst vegna tafa á því að málsgögn væru send réttinum og síðan vegna atriða er vörðuðu ákærða sjálfan. Þrátt fyrir tafir á málinu og frávísun tveggja ákæruliða vegna húsbrota þóttu ekki næg efni til að hrófla við þeirri refsingu sem héraðsdómur ákvað. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur með vísan til forsendna um refsingu ákærða og sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hafsteini Ara Ágústssyni (
Páll Ágúst Ólafsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, fíkniefna- og umferðarlagabrot.
B var sakfelldur í héraði í samræmi við játningu fyrir tvö fíkniefnalagabrot og nokkur brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940. B var einnig gefið að sök húsbrot með því að hafa í þrjú skipti farið í heimildarleysi inn í tilgreind fjölbýlishús en hann bar því við að hann hefði leitað í þessi húsnæði vegna kulda, auk þess sem hann hafi verið slasaður og í slæmu ástandi. Í dómi héraðsdóms var komist að þeirri niðurstöðu að ekki yrði séð að B hafi verið í yfirvofandi hættu sem hafi verið bægt frá með þessari háttsemi. Önnur úrræði hafi staðið B til boða og aðstæður hans hafi ekki réttlætt að hann færi inn í húsnæði annarra einstaklinga til að leita sér skjóls. Var því ekki fallist á það að þessi háttsemi B hafi verið honum refsilaus með vísan til 13. gr. almennra hegningarlaga og var hann sakfelldur fyrir hana. Var B gert að sæta fangelsi í tólf mánuði. Með dómi Landsréttar var niðurstaða héraðsdóms staðfest. Við ákvörðun refsingar B var meðal annars litið til dráttar á meðferð málsins fyrir Landsrétti sem ekki var talið að honum yrði kennt um. Kom því ekki til álita að þyngja refsingu B. Þá var, með hliðsjón af sakaferli B og fjölda þeirra brota sem hann var sakfelldur fyrir, ekki talið unnt að binda refsingu hans skilorði. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Ákærði var fundinn sekur um hegningarlagabrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, auk líkamsárásar gegn öðrum einstaklingi og brot á vopnalögum. Var hann dæmdur í sex ára fangelsi og til greiðslu sakarkostnaðar málsins. Auk þess var hann var dæmdur til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður miskabætur og bætur vegna fjártjóns, auk vaxta, og gert að sæta upptöku á vopnum og skotfærum.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X og Y (sjálfur)
Sýknað af ákæru um húsbrot og brot gegn friðhelgi einkalífs.
Ákærði var fundinn sekur um húsbrot með því að hafa farið án leyfis inn í íbúðarhúsnæði í útleigu, fjarlægt þaðan húsmuni og komið fyrir í geymsluhúsnæði. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða gert að greiða brotaþolum hvorum um sig 300.000 kr. í miskabætur, en skaðabótakröfu brotaþola vegna fjártjóns var vísað frá dómi sökum vanreifunar.
Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll og dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Adam Piet (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
Sakfellt fyrir húsbrot og eignaspjöll. Sýknað af kröfu um miskabætur en öðrum bótakröfum vísað frá dómi vegna vanreifunar. 45 daga skilorðsbundið fangelsi,
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta að fangelsi í níu mánuði, jafnframt sekt. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
Vilhjálmi Jónassyni (
Skúli Sveinsson lögmaður)
V var ákærður fyrir umferðarlagabrot, húsbrot og líkamsárás með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis að nánar tilteknu húsi, ruðst þar inn um glugga og ráðist með ofbeldi að húsráðanda A með þeim afleiðingum að A hlaut þreifieymsli á nefi og tvö sár innan á vörum. Með vísan til fyrirliggjandi gagna, aðstæðna á vettvangi, framburðar V og tveggja vitna sem sáu V aka bifreiðinni umrætt sinn, taldi héraðs- dómur engan vafa leika á því að V hefði á þeim stað og tíma sem í ákæru greindi gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis. Þá var V talinn hafa gerst sekur um líkamsárás og húsbrot en í þeim efnum lagði héraðsdómur einkum til grundvallar framburð A sem fékk stoð í öðrum gögnum málsins. Brot V voru talin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru og hann dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum í þrjú ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
Ákæruvaldið (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóni Valgeiri Stefánssyni (
Leó Daðason lögmaður)
Sakfellt fyrir húsbrot og stórfelld eignaspjöll.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Þór Ármannssyni (
Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Einn ákærða sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, hættubrot, húsbrot og vopnalagabrot. Annar dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti, húsbroti og vopnalagabroti hans. Þriðji dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti og húsbroti.
U var ákærður fyrir þjófnaðarbrot, húsbrot, umferðar- og fíkniefnalagabrot, nytjastuld og skjalafals. Við meðferð málsins í héraði játaði U skýlaust brot sín og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu U. Með vísan til hins forsendna hins áfrýjaða dóms en að teknu tilliti til upplýsinga um breytta hagi U var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gunnari Pálssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði og umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningar- og sérrefsilagabrot, en refsing var ekki talin bera árangur sbr. 16. gr. almennra hegningarlaga og ákærða var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun.
Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þórunni Halldórsdóttur (
Hólmgeir Elías Flosason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Edgaras Kaskonas (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um húsbrot og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, jafnframt fésekt. Það var ákærði sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Sigurði Erni Sigurgeirssyni (
Ólafur Björnsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um húsbrot og brot gegn áfengislögum, með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn um ólæstar svaladyr á heimili brotaþola, en verið vísað þaðan á brott, og fyrir að hafa örskömmu síðar ruðst aftur og með sama hætti inn á heimilið í þeim tilgangi að fá húsráðanda með sér þaðan út, en verið vísað þaðan á brott öðru sinni. Ennfremur með því að hafa með framangreindri háttsemi verið með óspektir á almannafæri sökum ölvunar. Var ákærði gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Axel Smith Axelssyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, m.a. fyrir rán, húsbrot og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Vilhjálmi Jónassyni (
Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður)
Sakfellt fyrir, líkamsárás, húsbrot og ölvunarakstur
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og brot í nánu sambandi.
Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem G var sakfelldur fyrir brot gegn 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi við aðra spennt upp hlera á lúgu á hlið atvinnuhúsnæðis og í kjölfarið farið inn í húsnæðið í gegnum lúguna án leyfis umráðamanns, og fyrir brot gegn 19. gr., sbr. 44. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, með því að sinna ekki ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa húsnæðið. Var refsing G ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorkeli Diego Jónssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum, vopnalögum og lögreglulögum og dæmdur í tíu mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Benedikt Má Ingibjargarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í fangelsi í 7 mánuði fyrir fjársvik og rán, nytjastuld og umferðarlagabrot, húsbrot og þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Unnari Sigurði Hansen (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, húsbrot, nytjastuld og ýmis umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 2 ár og 4 mánuði.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X (Enginn)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka, auk þess að hafa fíkniefni í vörslum sínum.Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundins fangelsis, auk þess að sæta upptöku fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Baldri Kolbeinssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi og til að sæta upptöku ávana- og fíkniefna og lyfja. Til frádráttar dæmdri refsingu kom gæsluvarðhald ákærða.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Geir Karlssyni (
Stefán Karl Stefánsson lögmaður)
Ákærði m.a. sakfelldur fyrir fjölmörg auðgunarbrot og húsbrot.
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. rán, eignaspjöll, þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í 3 ár.
M var sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, brot gegn sóttvarnalögum, brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot gegn vopnalögum, skjalafals og umferðarlagabrot, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 14. apríl 2020, 5. apríl 2022 og 9. maí sama ár. Í fyrstnefnda málinu hafði dómur fallið í héraði 10. september 2020 en með úrskurði Endurupptökudóms 28. mars 2022 var héraðsdómur í málinu endurupptekinn. M sætti geðrannsókn til að meta sakhæfi hans og var niðurstaða dómkvadds matsmanns sú að M væri sakhæfur og refsing gæti borið árangur. Var M því gerð refsing. Við ákvörðun refsingar M var höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá var tekið tillit til 1., 5., 6. og 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laganna. Var refsing M ákveðin fangelsi í 12 mánuði en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt frá 17. mars 2022 til 16. júní 2022, auk þess sem gerð var upptæk útdraganleg kylfa.
Ákærði sakfelldur fyrir húsbrot.
Ákærði sakfelldur fyrir húsbrot og eignaspjöll og dæmdur til greiðslu skaðabóta. Játningarmál.
Ákærðu sakfelldir fyrir húsbrot í félagi. Einn ákærðu var einnig sakfelldur fyrir minniháttar líkamsárás og vopnalagabrot. Þá var einn ákærðu einnig sakfelldur fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Upptaka.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, stórfelldar ærumeiðingar og barnaverndarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Karen E. Ingvadóttur
Kona sakfelld fyrir húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.
A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aðalsteini Rúnari Björnssyni (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og húsbrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Bjarka R. Þórusyni
Maður sakfelldur fyrir húsbrot og líkamsárás.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Sakfellt fyrir húsbrot. Miskabætur