Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. október 2023.
Mál nr. S-1361/2023:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Unnari Sigurði Hansen
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Húsbrot. Nytjastuldur. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, húsbrot, nytjastuld og ýmis umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 2 ár og 4 mánuði.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 20. september sl., er höfðað með tveimur ákærum. Sú fyrri er útgefin af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 21. febrúar 2023, á hendur Unnari Sigurði Hansen, kt. […], […],
I.
Fyrir þjófnað með því að hafa, fimmtudaginn 22. júlí 2021, brotist inn í húsnæði að Thorvaldsenstræti 2 í Reykjavík, með því að spenna upp lás á dyrum og stolið þaðan verkfærum að óþekktu verðmæti.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Fyrir þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 28. júlí 2021, brotist inn í Austurbæjar Apótek við Ögurhvarf 3 í Kópavogi, með því að spenna upp lás á dyrum og stolið þaðan lyfjum að óþekktu verðmæti og skúffu úr búðarkassa sem í voru kr. 20.000,-.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Fyrir húsbrot með því að hafa, laugardaginn 11. september 2021, farið í heimildarleysi inn í verslun Stáliðjunnar að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi.
Telst háttsemi þessi varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
Fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 21. desember 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 90 ng/ml og kókaín 75 ng/ml) um Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,35 g af kókaíni og 0,81 g af maríhúana, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. sbr., 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
V.
Fyrir þjófnað með því að hafa, sunnudaginn 22. maí 2022, brotist inn í verslun Bakó Ísberg að Höfðabakka 9 í Reykjavík, með því að spenna upp glugga og stolið þar Acer fartölvu og Apple símahleðslutæki að óþekktu verðmæti.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VI.
Fyrir nytjastuld, umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 15. september 2022, heimildarlaust tekið bifreiðina […] við Bílamálun Sigursveins að Hyrjarhöfða í Reykjavík og ekið henni, föstudaginn 16. september 2022, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist amfetamín 130 ng/ml, búprenorfín 1,3 ng/ml og klónazepam 22 ng/ml) um Strandveg við Gufunes í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,96 g af amfetamíni, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. sbr., 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
VII.
Fyrir þjófnað með því að hafa, laugardaginn 17. september 2022, farið inn í fjóra strætisvagna við Hestháls í Reykjavík og stolið þaðan fartölvu, spjaldtölvum, fatnaði, sólgleraugum og heyrnatólum að óþekktu verðmæti, og brotið upp peningakassa í öllum fjórum strætisvögnunum og stolið úr þeim samtals kr. 2.288,-.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VIII.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 3. nóvember 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Skógarlind í Kópavogi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og fyrir að hafa notað farsíma án handfrjáls búnaðar við aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 57. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
IX.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 5. nóvember 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist amfetamín 200 ng/ml, O- desmetýltramadól 70 ng/ml, tramadól 305 ng/ml, búprenorfín 1,5 ng/ml, díazepam 62 ng/ml, nítrazepam 175 ng/ml og nordíazepam 105 ng/ml) um Reykjanesbraut við Grænásveg í Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Seinni ákæran er útgefin af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. apríl 2023 á hendur ákærða:
I.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 12. desember 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist amfetamín 900 ng/ml, tetrahýdrókannabínól 1,4 ng/ml, alprazólam 14 ng/ml, díazepam 380 ng/ml, nordíazepam 600 ng/ml, oxazepam 500 ng/ml og temazepam 45 ng/ml) um Hringbraut í Reykjanesbæ, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.
Telst háttsemi þessi varða 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
Fyrir þjófnað, skjalafals og umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 3. febrúar 2023, að […] í Reykjavík, stolið skráningarnúmerum af gráu bifreiðinni […] af tegundinni Mitsubishi Pajero og sett það í blekkingarskyni á rauðu bifreiðina […] af tegundinni Izuzu Trooper, og ekið henni þannig sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist amfetamín 235 ng/ml, búprenorfín 2,3 ng/ml, díazepam 290 ng/ml, nítrazepam 105 ng/ml, nordíazepam 610 ng/ml og temazepam 35 ng/ml) gegn rauðu umferðarljósi við Fjallkonuveg í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða 1. mgr. 7. gr., 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 1. mgr. 157. gr. og 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Fyrir þjófnað með því að hafa, miðvikudaginn 1. mars 2023, í versluninni Hagkaup í Kringlunni í Reykjavík, stolið tveimur snyrtivörum og vettlingum að söluverðmæti samtals 4.617 kr.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 2. mars 2023, ákærði á að baki töluverðan sakaferil sem nær aftur til ársins 1985 og hefur margítrekað verið gerð refsing fyrir sambærileg brot og hann er sakfelldur fyrir nú. Ákærði var síðast dæmdur í 3 ára fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness […] 2015 meðal annars fyrir þjófnað, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Ákærði lauk afplánun vegna dómsins […] 2021 og eru því ítrekunaráhrif vegna dómsins ekki fallin niður. Ofangreindur dómur var hegningarauki við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] sama ár en með þeim dómi var ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Þá gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt […] 2021 fyrir akstur sviptur ökuréttindum og eru brot ákærða samkvæmt ákæruliðum I-IV í ákæru dags. […] 2023 hegningarauki við þá sátt, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði hefur margítrekað verið dæmdur fyrir akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og verður tekið mið af því við ákvörðun refsingar en jafnframt verður tekið tillit til þess að refsing vegna þeirra brota getur ekki farið yfir tvö ár, sbr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Auðgunarbrot ákærða eru einnig margítrekuð og verður höfð hliðsjón af 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðun refsingar vegna þeirra. Aftur á móti hefur ákærði játað brot sín greiðlega fyrir dómi og verður það virt honum til refsimildunar sbr. 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár og 4 mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 150.660 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 1.144.566 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi. Birgitta Kristjánsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Unnar Sigurður Hansen, sæti fangelsi í 2 ár og 4 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökurétta ákærða.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 150.660 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 1.144.566 krónur í annan sakarkostnað.
Birgitta Kristjánsdóttir