Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Vopnalagabror
pX var ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot og vopnalagabrot með því að hafa farið inn á heimili brotaþola og inn í svefnherbergi þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu, og veist að honum og stungið hann endurtekið með hnífi í höfuð og líkama og haldið atlögunni áfram með hnífi og/eða kýlt með krepptum hnefum í búk hans eftir að brotaþoli náði að standa upp, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut um 1 cm sár á utanverðri hægri kinn, sem saumað var með þremur sporum, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl, sem saumuð voru alls með fimm sporum. Fyrir lá að ákærði fór grímuklæddur frá heimili sínu með hníf og eftirlíkingu af skammbyssu og hafði klæðst sokkum yfir skó sína. Jafnframt var talið sannað með framburði vitna að hann hafi haldið heim til brotaþola í þeim tilgangi að skaða hann vegna þeirrar sannfæringar ákærða að brotaþoli hefði misnotað barn hans. Með vísan til aðdragandans og þess að ákærði hafi endurtekið beitt hættulegu vopni í myrkvuðu herbergi gegn viðkvæmum líkamshlutum brotaþola var talið sannað að á verknaðarstundu hafi honum ekki getað dulist að háttsemi hans gæti valdið bana, en hann hafi látið sér afleiðingar háttseminnar í léttu rúmi liggja. Var hann því talinn hafa gerst sekur um tilraun til manndráps, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, húsbrot og vopnalagabrot. Með vísan til niðurstöðu geðrannsóknar var ákærði talinn sakhæfur og engar refsilækkunar ástæður fyrir hendi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um alvarlegt brot var að ræða sem beindist að lífi og heilsu brotaþola og að hættulegu vopni hefði verið beitt, auk þess sem ákærði hafi ekki sýnt iðrun. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 2.500.000 krónur.br/p