Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-294/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)

gegn

Baldri Kolbeinssyni

(Snorri Sturluson lögmaður)

Húsbrot. Játningarmál.

Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir húsbrot og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 21. apríl 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 20. janúar 2026, á hendur Baldri Kolbeinssyni, kt. […], […] „fyrir húsbrot með því að hafa, föstudaginn 13. júní 2025, ruðst í heimildarleysi inn í hjólhýsi A, kt. […], að […] í Reykjavík.

    M: […] Telst háttsemi þessi varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

  2. Verjandi ákærða krefst fyrir hans hönd vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.

    Niðurstaða varðandi sekt ákærða o.fl.

  3. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
  4. Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

    Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði

  5. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 15. janúar 2026, á ákærði langan sakaferil að baki sem nær allt aftur til ársins 2007. Af nýrri dómum má nefna dóm Héraðsdóms Suðurlands frá […] 2021, þar sem ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í 10 mánuði fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga, en jafnframt var litið til þess að um rof á reynslulausn eldri dóms var að ræða. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2024 var ákærði dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar vegna brota gegn 217. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga og brota gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni. Með dómi Landsréttar […] 2025 var ákærði svo dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði vegna brota gegn 217. gr., 231. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga, en það brot sem hann er dæmdur fyrir í þessu máli framdi ákærði degi eftir uppkvaðningu þess dóms.
  6. Verður litið til sakaferils ákærða við ákvörðun refsingar hans í málinu, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
  7. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði.
  8. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan sakarkostnað leiddi ekki af máli þessu.
  9. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari.
  10. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Baldur Kolbeinsson, sæti fangelsi í tvo mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.1. mgr. 106. gr.217. gr.231. gr.244. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.