Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

917 dómar fundust

Lykilorð: Ölvunarakstur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 14:23

S-2222/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Kjartani Jóni Bjarnasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 23. maí 2026 kl. 9:27

S-73/2025

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ölvunarakstur en ekki var talið sannað að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi eða brot gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. maí 2026 kl. 9:40

S-145/2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ágústi Rúnarssyni (Sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 13:41

S-1475/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Inga Berg Viktorssyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2026 kl. 10:55

S-1770/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Marcin Pawel Zielinski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-994/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni Páli Jóhannssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 15 mánaði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. maí 2026 kl. 12:55

S-1709/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Val Mássyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

S-610/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Janonis Jovydas
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 45 daga ásamt því að vera sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Vesturlands birt 5. mars 2026

S-267/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Hauki Atlasyni (Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur án ökurréttinda. Um var að ræða hegningarauka og ákærða ekki gerð frekari refsins en ævilöng ökuleyfissvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2026

S-7365/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Alf Clausen (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 90 daga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2026

S-5022/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sævari Þór Ingasyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2026

S-6674/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Helga Val Mássyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hylmingu og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, upptöku fíkniefna og sviptingu ökuréttinda í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2026

S-6389/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Mána Snæ Richter
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 6 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-590/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Valentin Pintilie (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2025

S-5009/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingólfi Þórði Skúlasyni (Unnsteinn Örn Elvarsson)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2025

S-5006/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Inga Kristinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. nóvember 2025

S-4235/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sigfúsi Atla Unnarssyni (Eva Hauksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. nóvember 2025

S-550/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Hauki Baldvinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2025

S-4219/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Bujakowski (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 11 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Austurlands birt 8. október 2025

S-144/2025

Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Þormari Thomassyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og almennum hegningarlögum. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði og skyldi tveggja mánaða hluti þeirrar refsingar falla niður að tveimur árum liðnum héldi ákærði almennt skilorð. Enn fremur var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á ávana- og fíkniefnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. september 2025

S-277/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Kjartani Þór Kristgeirssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, auk ölvunaraksturs í eitt framangreindra skipta. Voru brot ákærða ítrekuð og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem honum var gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. júlí 2025

E-6583/2024

A (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Þórarinn Sigurbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Stefnandi var talinn hafa, af vítaverðu gáleysi, skemmt bifreið sem hann hafði tryggt með kaskó-tryggingu hjá stefnda. Stefndi var því sýkn af þeirri kröfu stefnanda að bótaskylda stefnda vegna þess tjóns sem varð á bifreiðinni yrði viðurkennd.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. júlí 2025

S-656/2025

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Hilmari Skúlasyni D Ó M U R Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní 2025, höfðaði héraðssaksóknari með (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögreglulögum með því að hafa í tvö skipti ekið ógætilega, undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Dæmd fangelsisrefsing og ökuréttindasvipting.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2025

S-969/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Rúnarssyni (Orri Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 90 daga fangelsi vegna ítrekaðs ölvunaraksturs. Hins vegar var ekki fallist á kröfu um upptöku bifreiðar þar sem talið var sýnt fram á að verulegur vafi léki á því að hann væri eigandi hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. maí 2025

S-1426/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Agnesi Eir Magnúsdóttur (Björgvin Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Ölvunarakstur.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir ölvunarakstur og brot gegn barnaverndarlögum þar sem ung börn dómfelldu voru farþegar í bifreiðinni er aksturinn fór fram.

Héraðsdómur Suðurlands birt 31. mars 2025

S-573/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sebastian Slazyk (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt sem og sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2026 kl. 9:54

S-4786/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Böðvar Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Martins Kozlovskis (Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 9 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. mars 2025

S-1169/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Zilvinas Liaudanskis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Var dómurinn hegningarauki við fyrri dóm.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. mars 2025

S-1160/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Wesley Josephus J. A. Collard
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta tímabundinni sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. mars 2025

S-595/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Jóni Gústafi Magnússyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um rangar sakargiftir, ítrekaðan ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var að hluta frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða og gerð sekt og ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. mars 2025

S-828/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Dainis Jekabsons (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2025

S-825/2025

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Magnúsi Skúlasyni (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórinni, ölvunar- og sviptingarakstur og líkamsmeiðingar af gáleysi og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og ökuréttarsviptingar.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

715/2023

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn A (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, Jón Stefán Hjaltalín lögmaður, 1. prófmál)

A krafðist bóta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í umferðarslysi árið 2019 en hún var farþegi í bíl með ölvuðum ökumanni. Ágreiningur í málinu laut að því hvort A hefði sem farþegi í bifreið sýnt af sér háttsemi sem jafna mætti til stórkostlegs gáleysis í skilningi 2. mgr. 88. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987, svo að réttlætanlegt hefði verið að lækka bætur til hennar úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá S hf. Í dómi Landsréttar var talið að ekkert hefði komið fram í málinu um að A hefði séð ökumanninn neyta áfengis áður en hún tók far sér far með honum. Lagt var til grundvallar að A og ökumaðurinn hefðu eytt skömmum tíma saman um kvöldið og ökumaðurinn greint A frá því að hann væri edrú. Þá lá fyrir framburður vitnisins C sem einnig var farþegi í bifreiðinni um að ekki hefði verið unnt að greina á ökumanninum að hann hefði verið undir áhrifum áfengis. Var því ekki talið sannað að A hefði hlotið að vera ljóst þegar hún tók sér far með ökumanninum að hann væri undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega, en af gögnum málsins mátti ráða að önnur atvik urðu til þess að bifreiðin fór út af veginum. Var krafa A um óskertar bætur úr hendi S hf. því tekin til greina og niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2025

E-2289/2024

A (Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Stefnandi var farþegi í bifreið sem ölvaður maður ók þegar bifreiðin valt og stefnandi slasaðist. Bifreiðin var tryggð hjá stefnda sem greiddi stefnanda 1/3 hluta af bótakröfu hans vegna líkamstjóns, en stefndi taldi stefnanda vegna stórkostlegs gáleysis verða að bera 2/3 hluta tjóns síns sjálfur. Í ljósi atvika og með hliðsjón af dómaframkvæmd taldi dómurinn að stefnandi ætti ekki rétt á frekari bótum frá stefnda vegna slyssins og var stefndi því sýknaður af dómkröfum hans.

Hleð fleiri dómum…