Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. maí 2026.
Mál nr. S-1475/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Inga Berg Viktorssyni
(Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Játningarmál. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. mars 2026, á hendur Inga Berg Viktorssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 15. nóvember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökuréttindum, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist vínandamagn 1,57 ‰ og kókaín 175 ng/ ml) um Lágmúla í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 17. mars 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Það sem hefur þýðingu við úrlausn máls þessa er að með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2. febrúar 2016 gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttinda fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 21. mars 2019 var ákærða gert að greiða sekt og sæta sviptingu ökuréttinda fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi Héraðsdóms Norðurlands Vestra 30. apríl 2019 var ákærða gert að greiða sekt og sæta sviptingu ökuréttinda fyrir akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna en dómurinn var hegningarauki við áðurnefndan dóm frá Héraðsdóm Reykjaness 21. mars 2019. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 30. apríl 2021 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 3. maí 2023 gert að sæta fangelsi í 16 mánuði, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fimmta sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis og/ ávana- og fíkniefna og í þriðja sinn gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum.
Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.
Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Garðars Þorsteinssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 168.034 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Ingi Berg Viktorsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Garðars Þorsteinssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 168.034 krónur í annan sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir