Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-994/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jóhanni Páli Jóhannssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Játningarmál. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 15 mánaði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 8. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. febrúar 2026, á hendur Jóhanni Páli Jóhannssyni, kt. […], […], 101 Reykjavík,

I.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 31. október 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 2,20 ‰) um Súðarvog, Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 11. september 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 2,34 ‰) um Gnoðarvog við Glæsibæ í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 14. febrúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Það sem hefur þýðingu við úrlausn máls þessa er að með sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 16. júní 2010 og 1. júlí 2013, gekkst ákærði undir greiðslu fésektar og að sæta sviptingu ökuréttinda meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 30. nóvember 2015 gekkst ákærði undir greiðslu fésektar fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 12. október 2016 var ákærða gert að sæta fangelsi í 45 daga og sæta sviptingu ökuréttinda ævilangt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 30. nóvember sama ár var ákærði dæmdur í fangelsi í 15 daga, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum en dómurinn var hegningarauki við dóm Héraðsdóm Reykjavíkur frá 12. október sama ár. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 13. september 2017 var ákærða gert að sæta fangelsi í 105 daga, fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Þá var ákærða með dómi Landsréttar 23. júní 2021 gert að sæta fangelsi í 2 ár, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 30. júní 2021 var ákærða gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og sæta áréttingu ævilangrar ökuréttarsviptingar meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 29. desember 2023 gert að sæta fangelsi í 9 mánuði meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjöunda sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum.

Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 15 mánaða fangelsi.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 107.942 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Jóhann Páll Jóhannsson, sæti fangelsi í 15 mánuði.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 107.942 krónur í annan sakarkostnað.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 3. mgr. 49. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.