Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. maí 2026.
Mál nr. S-2222/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Kjartani Jóni Bjarnasyni
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. apríl 2026, á hendur Kjartani Jóni Bjarnasyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 8. október 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 0,94 ‰) um Bæjarháls í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. Apríl 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttinda með sátt Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 28. mars 2019 fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Þá var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjaness 9. nóvember 2023 gert að greiða fésekt og hann sviptur ökuréttindum fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. febrúar 2024 var ákærða gert að greiða fésekt og hann sviptur ökuréttindum ævilangt fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 20. mars 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti en dómurinn var hegningarauki við dóm Héraðsdóms Reykjaness frá 13. febrúar sama ár. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 16. október 2024, gert að greiða fésekt fyrir akstur sviptur ökurétti.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis og í þriðja sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 90 daga fangelsi.
Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Ákærði greiði 44.892 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi.
Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Kjartan Jón Bjarnason, sæti fangelsi í 90 daga.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.
Ákærði greiði 44.892 krónur í sakarkostnað.
Rut Hrafns Elvarsdóttir