Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4.203 dómar fundust

Málaflokkur: Gæsluvarðhald og þvingunarráðstafanir

Flokkur:
Landsréttur birt 16. júní 2026 kl. 9:22

478/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að X yrði gert að sæta gæsluvarðhald. Í úrskurði Landsréttar kom fram að uppfyllt væru skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og að atvikum virtum stæði 3. mgr. sömu greinar því ekki í vegi að fallist yrði á kröfu L. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og krafa L tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 16:38

E-3533/2025

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnatöku sem stefnandi gekkst undir. Ekki var fallist á að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu þannig að rök stæðu til þess að fella niður eða lækka bætur til hans.

Landsréttur birt 19. maí 2026 kl. 13:16

395/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 18. maí 2026 kl. 9:01

392/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að felld yrði úr gildi ákvörðun L um að X yrði gert skylt að halda sig innan höfuðborgarsvæðisins og sinna reglulegri tilkynningarskyldu.

Landsréttur birt 13. maí 2026 kl. 16:21

390/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 6. maí 2026 kl. 9:18

367/2026

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, þó með þeim hætti að gæsluvarðhaldinu var markaður skemmri tími.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. maí 2026 kl. 15:41

E-5178/2025

A og B (Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna húsleitar á heimili stefnenda. Þau voru þó sjálf talin hafa stuðlað að aðgerðum lögreglu í málinu. Bætur til þeirra voru því lækkaðar og í tilviki B féll krafan niður vegna skuldajafnaðar við ógreiddan sakarkostnað.

Landsréttur birt 9. maí 2026 kl. 14:23

346/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (sjálfur)
Lykilorð: Kærumál. Nálgunarbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Landsréttur birt 4. maí 2026 kl. 10:03

349/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. maí 2026 kl. 12:55

S-43/2026

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Cai Xiao Hong (enginn)

Ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-42/2026

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Lin Wenliang (enginn)

Ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-41/2026

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Chen Jianping (enginn)

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Landsréttur birt 15. apríl 2026 kl. 14:08

287/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 15. apríl 2026 kl. 14:08

286/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 15. apríl 2026 kl. 14:08

285/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 10. apríl 2026 kl. 9:24

268/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þórður Már Jónsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum.

Landsréttur birt 15. apríl 2026 kl. 13:52

258/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 14. apríl 2026 kl. 15:33

254/2026

Ríkissaksóknari (Pétur Hrafn Hafstein aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þórður Már Jónsson lögmaður)

Með hinum kærða úrskurði var staðfest ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að framselja X til Úkraínu. X kærði úrskurð héraðsdóms þremur dögum eftir að hann var kveðinn upp. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum er kærufrestur einn sólarhringur. Í ljósi þess að kærufrestur var liðinn þegar kæra barst héraðsdómi var málinu vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 15:16

167/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

36/2025

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður), Y (Björn Jóhannesson lögmaður) og Z (Björgvin Jónsson lögmaður)

Með hinum áfrýjaða dómi var X sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins en Z og Y sakfelldar fyrir stórfelld skattalagabrot. Í úrskurði Landsréttar var rakið misræmi hvað varðaði texta verknaðarlýsingar og tölulegra þátta í ákærum og hinum áfrýjaða dómi, sem rekja mætti til þess að ófullgerð drög að ákæru voru send héraðsdómi í stað samrits ákæru. Fram kom að umtalsverðs misræmis gætti á milli lýsingar á sakargiftum í héraðsdómi og þeirrar ákæru er lægi fyrir í málinu, sem meðal annars birtist í niðurstöðukafla hins áfrýjaða dóms. Var talið að slíkir annmarkar væru á samningu dómsins, sbr. 2. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008, að ekki yrði hjá því komist að ómerkja hann og vísa málinu heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsálagningar að nýju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2026

S-3409/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jens Hjartarsyni (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð: Gæsluvarðhald.

Ákærði sakfelldur í samræmi við játningu hans fyrir ýmis brot framin í brotahrinu á árinu 2024, líkamsárás, eignaspjöll, umferðalagabrot, brot gegn valdstjórninni og brot gegn fíkniefnalögum.

Landsréttur birt 28. janúar 2026

68/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 28. janúar 2026

78/2026

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Rannveig Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Elías Kristjánsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun á meðan því stæði

Landsréttur birt 28. janúar 2026

70/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 23. janúar 2026

59/2026

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var ákvörðun L um að X skyldi í tólf mánuði sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að yrði fallist á kröfu L væri sú staða uppi að X sætti nálgunarbanni allt til 12. janúar 2027 sem fæli í sér að honum væri meðal annars bannað að koma á eða í námunda við heimili sitt þegar gæsluvarðhaldi hans lyki. Í ljósi ólíkra skilyrða fyrir beitingu nálgunarbanns annars vegar og brottvísunar af heimili hins vegar, og eins og stöðu málsins væri háttað, þætti ekki unnt að marka nálgunarbanni þann hámarkstíma sem 3. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili heimiluðu. Taldi rétturinn rétt að afmarka tímalengd nálgunarbannsins í samræmi við þann tíma þegar gæsluvarðhaldi X lyki.

Landsréttur birt 14. janúar 2026

32/2026

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu Á um að X yrði látinn sæta gæsluvarðhaldi. Með úrskurði Landsréttar var fallist á kröfu Á um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. janúar 2026

S-6686/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hedri Kastrioti (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í 10 mánuði.

Hleð fleiri dómum…