Landsréttur
Úrskurður þriðjudaginn 28. apríl 2026.
Mál nr. 343/2026:
Ákæruvaldið
(Anna Barbara Andradóttir saksóknari)
gegn
X
(Sveinn Guðmundsson lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Útdráttur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Ásgerður Ragnarsdóttir, Eiríkur Jónsson og Jón Höskuldsson kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 26. apríl 2026 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2026 í málinu nr. R-[…]/2026 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 15. október 2026 klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
- Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
- Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Niðurstaða
- Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl 2026
Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 22. apríl 2026. Sóknaraðili er Ríkissaksóknari. Varnaraðili er X, kt. […].
Dómkröfur
Ríkissaksóknari krefst þess að X, kt. […], sæti áframhaldandi gæzluvarðhaldi til fimmtudagsins 15. október 2026, kl. 16:00. Dómfelldi krefst þess að kröfunni verði hafnað.
Málsatvik
Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo: "Ákæruvaldið hefur til meðferðar stórfellt fíkniefnalagabrot varnaraðila og ætlaðra samverkamanna hans. Málið hófst hjá lögreglu þann 17. september sl. eftir að Tollgæsla á […] hafði samband við lögreglu vegna leitar í bifreiðinni […], sem komið hafði með […], þar sem grunur væri um að töluvert magn af fíkniefnum væru falin. Tekin var ákvörðun um að elta bifreiðina sem keyrði til Reykjavíkur þann 19. september s.l. Lögregla fylgdist með þegar Y hitti Z á planinu við […] í Hafnarfirði og fylgdi honum því næst að iðnaðarbili við […] í Hafnarfirði, sem Z er með aðgang að, þar sem þau fóru með bifreiðina […] inn í iðnaðarbilið. Lögregla fylgdist með þeim ræða saman um efnin sem vera ættu í bifreiðinni og voru þau að undirbúa að fjarlægja efnin. Lögregla sá svo þar sem þriðji aðili, varnaraðili X kom að, fór inn í iðnaðarbilið, kom svo út skömmu síðar og sótti kassa, sem í var ný ryksuga, í bifreið sína, sem hann svo afhenti Y og Z. Í kjölfarið fór X aftur í bifreið sína og virtist vera að fylgjast með umferð í kringum iðnaðarbilið á meðan Z og Y unnu að því að fjarlægja efnin úr leynihólfum í bifreiðinni. Skömmu síðar réðist lögregla til inngöngu, en X hafði þá náð að hringja í Z og gera honum viðvart um komu lögreglu sbr. framburð Z í skýrslutöku 24. september og hlustun lögreglu. Lögregla haldlagði samtals 14.952,33 grömm af ketamíni og 4.999,46 grömm af MDMA kristöllum, samtals verðmæti efnanna m.v. smásöluverð á Íslandi er talið vera u.þ.b. 374 milljóna króna en um er að ræða mjög hrein efni, skv. matsgerð rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði er styrkur ketamíns 87% sem samsvarar 100% af ketamínklóríði og styrkur MDMA 83% sem samsvarar 99% af MDMAklóríði. Varnaraðili greindi frá því í skýrslutöku þann 19. september að kannaðist ekki við atvik máls og neitaði hann sök en varnaraðili kvaðst hafa fengið símtal frá Z sem hafi beðið sig um að lána sér ryksugu sem hann hafi mætt með á verkstæði hans. Hann sagðist þekkja Z en ekkert kannast við Y. Í skýrslutöku þann 24. september s.l. var borið undir varnaraðila að samkvæmt símtalaskrá í síma hans sæist að hann hafi átt 5 sekúnda símtal við Z rétt áður en lögregla réðist til inngöngu í iðnaðarbilið, en hann neitaði fyrir það. Samkvæmt hlustun lögreglu mun Z hafa hrópað til Y í kjölfar símtalsins frá varnaraðila "Police, put it back, Put it back. Kærði hefur áfram neitað sök í málinu Að mati lögreglu er framburður kærða með nokkrum ólíkindablæ, þá liggur jafnframt fyrir að samskonar ryksuga og kærði kom með, var til staðar í iðnaðarbilinu. Jafnframt liggur fyrir að íblöndunarefni ásamt smellulásapokum og grammavog fundust falin í ryksugu við húsleit í sameiginlegu rými varnaraðila og Z að […]. Þá liggur jafnframt fyrir að varnaraðili og Z hafa verið missaga um efni umrædds símtals. Þá liggur fyrir að varnaraðili leitaði að leiðinni frá […] í […], þar sem hann var þá staddur skv. farsímagögnum og mynd af leiðinni úr síma varnaraðila fannst í síma Y, þannig að lögregla telur ljóst að hann hafi haft hlutverk við innflutning efnanna og hafi verið fullkunnugt um fíkniefni þau sem fundust í bifreiðinni þrátt fyrir framburð um annað. Jafnframt liggur fyrir að kvittun fyrir greiðslu á tæplega 30.000 evrum gegnum Revolut app sem varnaraðili sendi Z, var áframsend af hálfu Z til þess aðila sem skv. framburði Z hafi verið hans tengiliður vegna innflutnings fíkniefnanna. Því telur lögregla ljóst að varnaraðili hafi ekki aðeins aðstoðað Z við innflutninginn, heldur jafnframt komið að fjármögnun hans. Nánar vísast til meðfylgjandi málsgagna. Varnaraðila hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 20. september 2025, nú síðast með úrskurði héraðsdóms Reykjaness í máli nr. 907/2026 frá 26. mars sl. Fyrri úrskurðir héraðsdóms hafa verið staðfestir með úrskurðum Landsréttar í málum nr. 729/2025, 808/2025, 876/2025, 19/2026, 104/2026, 183/2026. Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur varnaraðila dags. 11. desember 2025. Mál S-[…]/2025 var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjaness 8. janúar sl. Aðalmeðferð máls S-[…]/2025 fór fram dagana 25 og 27. febrúar og 2. mars og var dómur kveðinn upp 30. apríl sl. þar sem varnaraðili var sakfelldur og gert að sæta fangelsi í 7 ár. Með yfirlýsingu dags. 13. apríl sl. lýsti varnaraðili því yfir að hann óskaði eftir því að framangreindum dómi yrði áfrýjað til Landsréttar."
Lagarök
Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: "Varnaraðili hefur verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, í félagi við aðra, staðið fyrir innflutningi á miklu magni fíkniefna til landsins, í sölu- og dreifingarskyni sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hið meinta brot varnaraðila þykir mjög alvarlegt og þá er sérstaklega lagt til grundvallar kröfu um gæsluvarðhald að um mikið magn hættulegra fíkniefna er að ræða. Með tilliti til almannahagsmuna þykir nauðsynlegt að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar en telja verður að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og varnaraðili, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Er um þetta m.a. vísað til úrskurða Landsréttar í málum nr. 287/2020, 201/2023, 570/2023, 664/2023, 692/2023, 800/2024 og 801/2024 þar sem í öllum tilfellum er um mun minna magn efna að ræða en í tilfelli varnaraðila. Þá er jafnframt vísað til fyrri úrskurða Landsréttar í málum nr. 729/2025, 808/2025, 876/2025, 19/2026, 104/2026, 183/2026, er varða varnaraðila sjálfan og atvik þessa máls, en sóknaraðili telur öll sömu rök eiga við nú og þá. Í ljósi áfrýjunaryfirlýsingu varnaraðila er farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald, en talið er nauðsynlegt að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum þar til endanlegur dómur liggur fyrir. Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er fram sett." Af hálfu dómfellda er gerð krafa um að kröfu ríkissaksóknara verði hafnað. Ekkert liggi fyrir um að valda myndi ólgu ef dómfelldi gengi laus á meðan beðið væri niðurstöðu Landsréttar. Af hálfu dómfellda er vísað til dóms Landsréttar í máli nr. 871/2019. Dómfelldi hafi ekki brotaferil á Íslandi. Dómfelldi hafi litla eða enga tengingu við Ísland.
Niðurstaða
Með ákæru 11. 12. 2025 var dómfelldi og tveir aðrir einstaklingar ákærðir fyrir brot gegn 173. gr. a laga nr. 19/1940 með því að hafa í félagi staðið að nánar greindum innflutningi fíkniefna. Með dómi héraðsdóms 30. 3. 2026 var dómfelldi sakfelldur og gert að sæta fangelsi í sjö ár. Dómfelldi hefur lýst yfir áfrýjun. Með hliðsjón af framanrituðu og því sem fram er komið í málinu verður að leggja til grundvallar að dómfelldi sé undir sterkum grun um háttsemi er fangelsisrefsing liggur við. Uppfyllt eru almenn skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með dómi 30. 3. 2026 voru dómfelldi og tveir aðrir einstaklingar sakfelldir fyrir að hafa í félagi flutt til Íslands rúmlega 14,9 kg af ketamíni með 87% styrkleika og tæplega 5 kg af MDMA kristöllum með 83% styrkleika og hafi efnin verið ætluð til söludreifingar. Þegar á framanritað er horft og dómaframkvæmd, svo sem dóma Landsréttar í málum nr. 201/2023, 570/2023 og 692/2023, þykir það magn fíkniefna sem dómfelldi hefur verið sakfelldur fyrir að hafa flutt til landsins, gera það að verkum að telja verður almannahagsmuni í skilningi 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 kalla á að orðið verði við kröfu ríkissaksóknara og verður það gert. Af hálfu ríkissaksóknara gerir kröfuna Anna Barbara Andradóttir saksóknari en Leó Daðason lögmaður gætir hagsmuna dómfellda.
Úrskurðarorð
Dómfelldi, X, kt. […], sæti áframhaldandi gæzluvarðhaldi, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 15. október 2026, kl. 16:00.