Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-43/2026:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Cai Xiao Hong

(enginn)

Ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 15. apríl 2026, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 5. janúar 2026 á hendur ákærða, Cai Xiao Hong, […] 1978 ríkisborgara […], með ókunnan dvalarstað, fyrir skjalafals og misnotkun skjals með því að hafa sunnudaginn 24. ágúst 2025, við innritun í innritunarsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, framvísað í blekkingarskyni, sem sínu vegabréfi, við starfsmann Airport Associates vegabréfi frá […] nr. […] á nafni A, fd. […], með gildistíma frá 18.02.2019 til 18.02.2029, með grunnfölsuðum komustimpli dags. 13.07.2025 merktum flugvellinum í Varsjá í Póllandi. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti ekki við þingfestingu máls þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls í Lögbirtingablaði 12. mars 2026 og boðaði ekki forföll. Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundvelli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm.

Samkvæmt síðast greindu og með hliðsjón af framburði ákærða hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum máls telst háttsemi ákærða samkvæmt ákæru sönnuð í skilningi 108. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 og þykir hún réttilega heimfærð til refsiákvæða samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Að því gættu og með hliðsjón af ríkjandi dómaframkvæmd þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 25. ágúst 2025 til 8. september sama ár, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Cai Xiao Hong, sæti fangelsi í 45 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 25. ágúst 2025 til 8. september 2025, að fullri dagatölu.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 76. gr.155. gr.1. mgr. 155. gr.1. mgr. 157. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 108. gr.1. mgr. 109. gr.1. mgr. 161. gr.