Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 268/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Þórður Már Jónsson lögmaður)

Kærumál. Kæruheimild. Gæsluvarðhald. Útlendingur.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Ásmundur Helgason, Eyvindur G. Gunnarsson og Símon Sigvaldason kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 2. apríl 2026 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum samdægurs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2026 í málinu nr. R-[…]/2026 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 29. apríl 2026, klukkan 16.
  2. Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
  3. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann þóknunar til handa skipuðum verjanda sínum fyrir Landsrétti.

Niðurstaða

  1. Með hinum kærða úrskurði var varnaraðili úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum til miðvikudagsins 29. apríl 2026, klukkan 16.
  2. Samkvæmt 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 skal handtaka viðkomandi til að tryggja framkvæmd framsals hans, ef hann er ekki þegar í haldi, og úrskurða í gæsluvarðhald þar til framsal fer fram. Í 4. mgr. 19. gr. laganna segir að úrskurður um þvingunarráðstöfun skuli þó ekki gilda lengur en í fjórar vikur eftir að ákvörðun um framsal hefur verið endanlega staðfest með úrskurði. Héraðsdómur geti þó ákveðið, þegar sérstaklega stendur á, að þvingunarráðstöfunum skuli beitt um tiltekinn lengri tíma.
  3. Í 24. gr. laga nr. 13/1984, áður en þeim var breytt með lögum nr. 35/2025, kom fram að úrskurðir þeir sem kveðnir voru upp samkvæmt lögunum sættu kæru til Landsréttar samkvæmt almennum reglum laga um meðferð sakamála. Eftir gildistöku laga nr. 35/2025 er í 2. mgr. 18. gr. laga nr. 13/1984 kveðið á um að úrskurð héraðsdóms um lögmæti ákvörðunar um framsal sé unnt að kæra til Landsréttar samkvæmt lögum um meðferð sakamála að öðru leyti en því að kærufrestur sé einn sólarhringur. Í lögum nr. 13/1984 er ekki berum orðum vikið að kæruheimild til Landsréttar á öðrum úrskurðum héraðsdóms samkvæmt þeim lögum, svo sem á úrskurði um gæsluvarðhald samkvæmt 3. mgr. 19. gr. laganna.
  4. Í 3. gr. laga nr. 13/1984, eins og ákvæðinu var breytt með 2. gr. laga nr. 35/2025, kemur fram að sé annað ekki tekið fram í lögunum gildi ákvæði laga um meðferð sakamála eftir því sem við eigi. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 35/2025 segir að nýtt ákvæði um tengsl við lög um meðferð sakamála sé að finna í 3. gr. sem áður hafi verið kveðið á um í hinum ýmsu greinum laganna. Þessi breyting komi til með að taka af allan vafa um að við meðferð framsalsmála og afgreiðslu réttarbeiðna í sakamálum gildi lög um meðferð sakamála, eftir því sem við eigi og nema annað sé tekið fram.
  5. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 3. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar verður að skýra 3. gr. laga nr. 13/1984 svo að kæruheimild til Landsréttar sé til staðar á grundvelli l-liðar 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og að ákvæði síðarnefndu laganna gildi um meðferð kærumálsins fyrir Landsrétti.
  6. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
  7. Samkvæmt 1. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 3. mgr. 16. gr. laga nr. 13/1984, greiðist úr ríkissjóði þóknun skipaðs verjanda varnaraðila fyrir Landsrétti, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og greinir í úrskurðarorði.

Úrskurðarorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Þórðar Más Jónssonar lögmanns, 176.700 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. apríl 2026

Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 2. apríl 2026.

Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.

Varnaraðili er X, kt. […].

Dómkröfur

Þess er krafist að X, kt. […], sæti gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, til fimmtudagsins 30. apríl 2026, kl. 16:00.

Málsatvik

Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo: Með ákvörðun dómsmálaráðuneytisins samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, dags. 1. desember 2025, var fallist á beiðni úkraínskra yfirvalda, dags. 9. maí 2025, um framsal á X (varnaraðili), kt. […], til Úkraínu.

Með erindi frá dómsmálaráðuneytinu 3. desember sl. var þess óskað að ríkissaksóknari tæki málið til viðeigandi meðferðar á grundvelli 2. mgr. 17. og 19. gr. laga nr. 13/1984. Samdægurs fól ríkissaksóknari lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að birta ákvörðunina fyrir varnaraðila og kynna honum ákvæði 18. gr. laganna um rétt til endurskoðunar framsalsákvörðunar fyrir dómi. Varnaraðili krafðist úrskurðar héraðsdóms um hvort skilyrði laga fyrir framsali væru fyrir hendi.

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 27. mars sl. í máli nr. R-[…]/2025 var ákvörðun dómsmálaráðuneytisins staðfest. Varnaraðili kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar sem vísaði málinu frá með úrskurði þann 1. apríl sl. í máli nr. 254/2026. Þar með liggur fyrir endanlegur dómsúrskurður um framsal varnaraðila til Úkraínu.

Lagarök

Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: Kveðið er á um framkvæmd ákvörðunar um framsal í 19. gr. laga nr. 13/1984. Til að tryggja þá framkvæmd skal viðkomandi handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til framsal fer fram, þó ekki lengur en í fjórar vikur, sbr. 3. og 4. mgr. greinarinnar.

Samkvæmt framangreindu fól ríkissaksóknari lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að handtaka varnaraðila svo fljótt sem unnt er og krefjast þess fyrir héraðsdómi að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til í fjórar vikur á grundvelli 3. mgr., sbr. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984, sbr. einnig b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var varnaraðili handtekinn fyrr í dag. Farbann varnaraðila skv. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 10. mars sl. í máli nr. R-[…]/2026, rennur út 7. apríl nk. kl. 16:00.

Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra hefur verið falið að fara með stjórn og framkvæmd afhendingar hins eftirlýsta í samráði við dómsmálaráðuneytið.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 3. og 4. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er þess beiðst að krafan nái fram að ganga.

Niðurstaða

Eins og rakið er að framan tók dómsmálaráðherra ákvörðun skv. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 13/1984 þann 1. desember 2025 um að fallast á beiðni úkraínskra yfirvalda um framsal varnaraðila til Úkraínu vegna rannsóknar sakamáls þar í landi. Eftir birtingu ákvörðunarinnar krafist varnaraðili úrskurðar héraðsdóms um hvort skilyrði fyrir framsali væru fyrir hendi og með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 27. mars sl. var ákvörðun dómsmálaráðherra staðfest, sbr. mál nr. R-[…]/2026. Varnaraðili kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og með úrskurði réttarins 1. apríl sl. í máli nr. 254/2026 var málinu vísað frá Landsrétti án kröfu þar sem kærufrestur skv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 13/1984 var liðinn þegar kæran barst héraðsdómi.

Um framkvæmd ákvörðunar um framsal er nú fjallað í 19. gr. laga nr. 13/1984, eins og lögunum var breytt með lögum nr. 35/2025. Í frumvarpi til breytingarlaganna kemur fram að í 3. mgr. 19. gr. sé að finna efnislega breytingu frá 1. mgr. 18. gr. þágildandi laga, á þá leið að í stað þess að mælt sé fyrir um að það megi handtaka þann sem óskast framseldur er það gert að skyldu að handtaka viðkomandi, ef hann er ekki þegar í haldi, og úrskurða í gæsluvarðhald þar til framsal fer fram. Er samkvæmt þessu ekki lengur valkvætt hvort handtöku og gæsluvarðhaldi verði beitt þegar endanlegur úrskurður liggur fyrir um framsal. Í 4. mgr. 19. gr. laganna er þó kveðið á um að úrskurður um þvingunarráðstöfun skuli ekki gilda lengur en í fjórar vikur eftir að ákvörðun um framsal hefur verið endanlega staðfest með úrskurði.

Gögn málsins bera með sér lögregla hafði samband við verjanda varnaraðila fyrr í dag í því skyni að bjóða varnaraðila að gefa sig fram við lögreglu í þágu framfylgni framsalsbeiðninnar. Varnaraðili gaf sig svo fram við lögreglu kl. 18 í dag og var þá handtekinn.

Samkvæmt framanröktu eru skilyrði 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 uppfyllt til þess að úrskurða varnaraðila í gæsluvarðhald í því skyni að tryggja framkvæmd framsals hans til Úkraínu. Þannig liggur fyrir að ákvörðun ráðherra um framsal hefur verið staðfest með endanlegum úrskurði, en úrskurður héraðsdóms varð endanlegur 1. apríl sl. þegar Landsréttur vísaði kæru varnaraðila frá dómi. Í ljósi þess að kveðið er á um það í 4. mgr. 19. gr. að ekki skuli úrskurða lengur en í fjórar vikur eftir að ákvörðun um framsal hefur verið endanlega staðfest með úrskurði, verður þó miðað við að að gæsluvarðhald varnaraðila standi ekki lengur en til miðvikudagsins 29. apríl 2026, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Samkvæmt 3. mgr. 16. gr. laga nr. 13/1984, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008, greiðist úr ríkissjóði þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Þórðar Más Jónssonar lögmanns, 176.000 krónur, og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Guðrún Sesselja Arnardóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð

Varnaraðili, X, kt. […], skal sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 29. apríl 2026, kl. 16:00.

Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Þórðar Más Jónssonar lögmanns, 176.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 3. mgr. 67. gr.
Lög nr. 13/1984 Lög um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum 3. gr.3. mgr. 16. gr.17. gr.1. mgr. 17. gr.18. gr.2. mgr. 18. gr.19. gr.3. mgr. 19. gr.4. mgr. 19. gr.24. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 38. gr.1. mgr. 95. gr.1. mgr. 100. gr.1. mgr. 192. gr.
Lög nr. 35/2025 Lög um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984 (einföldun málsmeðferðar). 2. gr.3. gr.1. mgr. 18. gr.3. mgr. 19. gr.4. mgr. 19. gr.

Dómaskrá