Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

326 dómar fundust

Lykilorð: Útlendingur

Landsréttur birt 23. maí 2026 kl. 9:27

406/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

L kærði úrskurð héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun hans um að X bæri að halda sig innan marka höfuðborgarsvæðisins og sæta tilkynningarskyldu með nánar tilgreindum hætti. Þar sem ákvörðunin var samkvæmt efni sínu fallin úr gildi áður en L kærði úrskurð héraðsdóms taldi Landsréttur hann ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að leyst yrði úr kæru hans. Var málinu því vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 18. maí 2026 kl. 9:01

392/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að felld yrði úr gildi ákvörðun L um að X yrði gert skylt að halda sig innan höfuðborgarsvæðisins og sinna reglulegri tilkynningarskyldu.

Landsréttur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

337/2025

A, B, C (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) og D (Rakel Jensdóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður, Gunnlaugur Úlfsson lögmaður, 4. prófmál)

Deilt var um gildi tveggja nánar tilgreindra úrskurða kærunefndar útlendingamála. Með þeim fyrri synjaði Útlendingastofnun A, B, C og D meðal annars um alþjóðlega vernd en í þeim síðari var kröfu um endurupptöku málsins hafnað. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var með vísan til forsendna í Landsrétti var ekki fallist á að fyrri úrskurðinn væri haldinn neinum slíkum annmörkum að efni til eða formi að ógildingu hans varðaði. Þá var ekki fallist á að síðari úrskurðurinn hefði verið haldinn annmarka. Var Í því sýkn af öllum kröfum A, B, C og D.

Landsréttur birt 10. apríl 2026 kl. 9:24

268/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þórður Már Jónsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 3. mgr. 19. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2026 kl. 13:19

E-3738/2025

A (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfu stefnanda, sem er EES-borgari, um ógildingu á úrskurði kærunefndar útlendingamála sem staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að honum væri vísað úr landi og skyldi sæta endurkomubanni í tíu ár. Meðferð málsins hjá stjórnvöldum var í samræmi við ákvæði útlendingalaga og stjórnsýslulaga og braut ákvörðunin ekki í bága við mannréttindi stefnanda.

Landsréttur birt 26. mars 2026 kl. 16:46

81/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður, Rakel Jensdóttir lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Útlendingamál

X var ákærður fyrir brot gegn f-lið 2. mgr. 116. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga með því að hafa skipulagt, flutt og aðstoðað ólögráða frænda sinn, A, ríkisborgara Palestínu, við að koma ólöglega til Íslands með nánar tilgreindum hætti. Í ákæru var því lýst að eini tilgangur X með ferðinni hafi verið að sækja um alþjóðlega vernd fyrir sig og A. Með vísan til framburðar ákærða sjálfs taldi Landsréttur sannað að X hefði aðstoðað A, sem þá var á sjöunda aldursári, við komuna til landsins. Einnig var talið sannað að um ólöglega komu í skilningi f-liðar 1. mgr. 116. gr. laganna hefði verið að ræða en ákærði hefði blekkt lögregluyfirvöld við komu til landsins. Að teknu tilliti til þess að dráttur hafði orðið á meðferð málsins, sem ekki væri umfangsmikið, var refsing X ákveðin þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2026

E-382/2025

A (Sveinn Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Mál þetta snerist um þær dómkröfur stefnanda að felldar yrðu úr gildi tvær ákvarðanir kærunefndar útlendingamála samkvæmt úrskurði frá 20. nóvember 2024 þar sem stefnanda sem er sænskur ríkisborari var vísað brott frá Íslandi og gert að sæta endurkomubanni í 10 ár. Ekki var fallist á að með ákvörðun um brottvísunina hefði verið brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga, hvorki að því er varðar form- né efnisreglur. Jafnframt var vísað til þess að ákvæði um brottvísun EES- eða EFTA-borgara væri heimil samkvæmt lögum um útlend­inga nr. 80/2016 og byggði á málefnalegum sjónarmiðum sem stjórnvöldum væri falið að meta út frá allsherjarreglu og almannaöryggi. Slíkt fyrirkomulag væri hvorki brot á 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrár7. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Varakröfu stefnanda um að endurkomubanni yrði markaður skemmri tími var vísað frá dómi án kröfu.

Landsréttur birt 26. febrúar 2026

153/2025

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen lögmaður) gegn A og B (Oddgeir Einarsson lögmaður)

A og dóttir hennar, B, höfðuðu mál gegn Í til ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem staðfestar voru ákvarðanir Útlendingastofnunar þess efnis að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir A og B um alþjóðlega vernd hér á landi og vísa þeim á brott frá landinu með endurkomubanni. Með hinum áfrýjaða dómi voru kröfur A og B teknar til greina. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga hafi verið skylt að taka umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar við þær aðstæður sem ákvæðið lýsti þótt umsækjandi nyti alþjóðlegrar verndar annars staðar. Þá hafi ákvæðið lagt þá skyldu á kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun að leggja mat á aðstæður hvers umsækjanda með tilliti til þess hvort þær væru sérstakar og hvort ástæða væri til að ætla að aðbúnaður í því ríki, þar sem honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd, teldist fullnægjandi til að mæta sérstökum þörfum hans að því leyti. Af úrskurði kærunefndar útlendingamála yrði helst ráðið að litið hafi verið svo á að tilgreind lýsing A á aðstæðum hennar hefði í raun ekki haft þýðingu í ljósi þess að hún gæti reitt sig á þá vernd sem hún hefði aðgang að í því ríki þar sem henni hafði verið veitt alþjóðleg vernd. Það fengi enn fremur stoð í því sem fram hefði komið af hálfu Í fyrir Landsrétti að ekki hefði verið lagt mat á trúverðugleika frásagnar A. Taldi rétturinn að framangreind forsenda í úrskurði kærunefndarinnar væri ótæk. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála borið að sjá til þess að málið væri nægilega upplýst áður en ákvörðun var tekin. Í því hafi meðal annars falist skylda til að afla og kynna sér gögn sem gætu haft þýðingu við mat á trúðverðugleika frásagnar A af aðstæðum hennar. Í því sambandi hafi almennar upplýsingar getað skipt máli. Þá hafi legið fyrir kærunefnd gögn á erlendri tungu sem lögð hafi verið fram af hálfu A en liggi ekki fyrir dómstólum í íslenskri þýðingu. Væri því óljóst hvort stjórnvöld hefðu kynnt sér efni þessara gagna til að geta metið að hvaða leyti þau gætu stutt málatilbúnað A. Vegna framangreindra annmarka á rannsókn málsins var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 8. janúar 2026

3/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli g-liðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 80/2016.

Landsréttur birt 16. desember 2025

82/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Eric Asamoah (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

E var sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar framvísað í blekkingarskyni við lögreglu breytifölsuðu vegabréfi frá Ghana. Við ákvörðun refsingar ákærða var litið til þess að ekki lægi fyrir að E hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Að því gættu og með vísan til 5. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og fastmótaðrar dómvenju var refsing E ákveðin fangelsi í 30 daga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. nóvember 2025

S-5958/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kristjan Spahiu (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefna-, lögreglu- og útlendingalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 70 daga skilorðsbundið til þriggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2025

E-27/2025

A, B og C (Hreiðar Eiríksson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefnendur kröfðust þess að ógiltur yrði með dómi úrskurður kærunefndar útlendingamála um að vísa frá umsóknum vegna fjölskyldusameiningar. Jafnframt var þess krafist að sá hluti ákvörðunar Útlendingastofnunar sem laut að því að brottvísa stefnendum frá Íslandi og ákveða þeim endurkomubann í tvö ár yrði ógiltur. Ekki þótti ástæða til þess að vísa málinu frá þótt kröfum í málinu hefði ekki jafnframt verið bein að Útlendingastofnun. Þá var fallist á að maki eins þeirra sem ákvörðunin beindist að gæti ekki talist aðili að málinu og var stefndi sýknaður af kröfum hans á grundvelli aðildarskorts. Stefndi var sýknaður með vísan til þess að kærunefnd hefði byggt niðurstöðu sína á lögum sem voru sett með stjórnskipulega réttum hætti og brutu ekki í bága við stjórnarskrá. Þá var ekki litið svo á að umræddar ákvarðanir hefðu verið haldnar slíkum annmörkum að efni eða formi að leiða ætti til ógildingar.

Landsréttur birt 17. nóvember 2025

784/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Í hinum kærða dómi var tilteknum ákærulið, þar sem X var gefið að sök peningaþvætti, vísað frá dómi þar sem að áliti dómsins hafi skort á að lýst væri nægilega verknaðarþáttum peningaþvættisbrots. Í úrskurði Landsréttur kom fram að ekki yrði talið að þeir ágallar hafi verið á umræddum hluta ákærunnar að X gæti ekki af henni ráðið hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um. X hafi því verið fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum gegn þeim. Þá hafi aðstoðarmanni dómara, sem kvað upp dóminn, verið af ákærunni einni fært að gera sér grein fyrir hvað X var sakaður um og hvernig telja mætti þá háttsemi refsiverða. Væri með ákærunni lagður fullnægjandi grundvöllur að þessum hluta málsins þannig að taka mætti hann til efnislegrar meðferðar. Felldi Landsréttur því úr gildi þann hluta hins kærða dóms að vísa lið II í ákæru frá dómi og lagði fyrir héraðsdóm að taka þann ákærulið til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

760/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að felld yrði úr gildi ákvörðun sóknaraðila um að varnaraðili skyldi halda sig innan marka höfuðborgarsvæðisins og sinna nánar tilgreindri tilkynningarskyldu.

Landsréttur birt 24. október 2025

727/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn) gegn X (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að felld yrði úr gildi ákvörðun sóknaraðila um að X yrði gert skylt að halda sig innan marka höfuðborgarsvæðisins í fjórar vikur og sinna daglegri tilkynningarskyldu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2025

E-4606/2022

A B (Davor Purusic lögmaður) gegn íslenska ríkinu Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefnendur kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun annars stefnandans um dvalaraleyfi og jafnframt að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála um brottvísun og endurkomubann hennar. Stefndu íslenska ríkið og Útlendingastofnun voru sýknaðir af öllum kröfum annars stefnandans vegna aðildarskorts hans að málinu og ekki var fallist á kröfur um ógildingu umræddra stjórnvaldsákvarðana í málum hins stefnandans. Til grundvallar sönnun um umdeild atvik var meðal annars lagður dómur í sakamáli þar sem stefnendur voru bæði fundin sek og dæmd til refsingar fyrir misnotkun skjals og fyrir brot gegn lögum um útlendinga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-504/2025

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður Kærunefndar útlendingamála þar sem synjað var umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að honum var þá einnig synjað um dvalarleyfi á grunni 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og vísað frá landinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

E-1545/2022

A (Albert Björn Lúðvígsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)

Málið var höfðað á árinu 2022 og krafist ógildingar á fjórum úrskurðum kærunefndar útlendingamála sem gengið höfðu á árunum 2021 og 2022. Fallist var á ógildingu eins þeirra með dómi héraðsdóms í desember 2022 en þann dóm ómerkti Landsréttur með úrskurði 8. mars 2024 og vísaði málinu heim til nýrrar meðferðar. Við meðferð málsins eftir endurupptöku þess í héraði var upplýst að á árinu 2023 höfðu gengið nýir úrskurðir kærunefndar útlendingamála um sambærilegar kröfur stefnanda og leyst var úr í þeim úrskurðum sem krafist er ógildingar á í þessu máli. Talið var að stefnandi hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af dómi um gildi þeirra eldri úrskurða sem dómkröfur málsins snúast um og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

E-1544/2022

A, B, C og D (Albert Björn Lúðvígsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)

Málið var höfðað á árinu 2022 og krafist ógildingar á þremur úrskurðum kærunefndar útlendingamála sem gengið höfðu á árunum 2021 og 2022. Fallist var á ógildingu eins þeirra með dómi héraðsdóms í desember 2022 en þann dóm ómerkti Landsréttur með úrskurði 8. mars 2024 og vísaði málinu heim til nýrrar meðferðar. Við meðferð málsins eftir endurupptöku þess í héraði var upplýst að á árinu 2023 höfðu gengið nýir úrskurðir kærunefndar útlendingamála um sambærilegar kröfur stefnenda og leyst var úr í þeim úrskurðum sem krafist er ógildingar á í þessu máli. Talið var að stefnendur hefðu ekki lengur lögvarða hagsmuni af dómi um gildi þeirra eldri úrskurða sem dómkröfur málsins snúast um og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.

Landsréttur birt 28. apríl 2025

322/2025

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður)

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 115. gr., sbr. 4. mgr. 105. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2025

E-3492/2024

A B (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Dómkröfum stefnenda um að felldir yrðu úr gildi úrskurðir kærunefndar útlendingamála vegna umsókna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi var hafnað. Vísað var frá dómi kröfum þeirra um að ákvarðanir Útlendingastofnunar sama efnis yrðu felldar úr gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2025

E-3838/2024

A, B og C (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefnenda um að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála. Í málinu reyndi m.a. á málsástæður um réttmætar væntingar og breytta stjórnsýsluframkvæmd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2025

E-3834/2024

A, B, C og D (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefnenda um að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála, sem og úrskurður nefndarinnar um synjun endurtekinnar umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd. Í málinu reyndi m.a. á málsástæður um réttmætar væntingar og breytta stjórnsýsluframkvæmd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2025

E-3833/2024

A, B, C og D (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnenda um að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála. Í málinu reyndi m.a. á málsástæður um réttmætar væntingar og breytta stjórnsýsluframkvæmd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2025

E-4043/2023

A, B og C og D (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af þeirri kröfu að fella skyldi úr gildi úrskurð kærunefndar útlendingamála

Landsréttur birt 3. apríl 2025

835/2024

Íslenska ríkið (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður) gegn A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)

Deilt var um gildi nánar tilgreinds úrskurðar kærunefndar útlendingamála þar sem kröfu A um að endurupptaka mál hans var hafnað. Í dómi Landsréttar var fallist á með Í að A bæri sjálfur ábyrgð á þeim töfum sem orðið hefðu á fullnustu þeirrar skyldu hans að yfirgefa landið. A hefði engin haldbær rök fært fram fyrir því að brotið hefði verið gegn málsmeðferðarreglum laga nr. 80/2016 um útlendinga, rannsóknarreglu, andmælarétti eða öðrum reglum stjórnsýsluréttar. Þá hefði hann ekki fært fram haldbær rök fyrir því að ákvörðun Útlendingastofnunar sem staðfest hefði verið með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefði byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik hefðu breyst svo verulega að skilyrði hefði staðið til þess að endurupptaka mál hans á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Var því lagt til grundvallar að síðara skilyrði 2. málsliðar 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 væri ekki uppfyllt þannig að skylt hefði verið að taka umsókn A um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Var Í því sýknað af kröfu A.

Hleð fleiri dómum…