E var sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar framvísað í blekkingarskyni við lögreglu breytifölsuðu vegabréfi frá Ghana. Við ákvörðun refsingar ákærða var litið til þess að ekki lægi fyrir að E hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Að því gættu og með vísan til 5. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og fastmótaðrar dómvenju var refsing E ákveðin fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason saksóknari)
gegn
Ahmed Hassan Ahmed (
Sveinn Guðmundsson lögmaður)
A var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa við vegabréfabás í Flugstöð Leifs Eiríkssonar framvísað í blekkingarskyni sænsku kennivottorði á nafni annars manns. A, sem er ríkisborgari Sómalíu, hefur verið veitt alþjóðleg vernd hér á landi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Rakin voru tvö skilyrði 1. mgr. 32. gr. sömu laga fyrir því að umsækjanda um alþjóðlega vernd verði ekki refsað fyrir brot hafi hann annars vegar komið beint frá landssvæði þar sem hann hafi haft ástæðu til að óttast um líf sitt eða frelsi eða að hann gæti sætt ofsóknum og hins vegar gefið sig fram við yfirvöld eins fljótt og unnt er. Þar sem A hafði dvalið 4 mánuði í Grikklandi áður en kom hingað til lands og framvísaði kennivottorði annars manns á leið úr landi daginn eftir komu til landsins en ekki við komu til landsins var hvorugu skilyrði 32. gr. laga nr. 80/2016 fullnægt. Við ákvörðun refsingar var hins vegar litið til þess að A játaði háttsemi sína, var samstarfsfús við rannsókn málsins og hefur verið veitt dvalarleyfi og alþjóðleg vernd hér á landi og var ákvörðun refsingar frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins.
Ákærði sakfelldur fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi og fölsuðu ökuskírteinipersónuskilríkum með þeim afleiðingum á ákærða var kleift að dvelja og starfa hérlendis á grundvelli atvinnuleyfis sem veitt var á forsendum hins falsaða vegabréfs.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Mamuka Kurtsikidze
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals, broti gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og útlendingalögum með því að hafa framvísað grunnfölsuðu vegabréfi. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, voru 30 dagar refsingarinnar frestað fullnustu til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Bekari Berdelidze
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals, broti gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og útlendingalögum með því að hafa framvísað grunnfölsuðu vegabréfi. Var honum gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, voru 30 dagar refsingarinnar frestað fullnustu til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgars (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Zbigniew Ryszard Lipka
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals og akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gauthier Eleka Likoy (
Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að framvísa vegabréfi annars manns í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ara Rúnarssyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
A var sakfelldur fyrir rán og stórfellda líkamsárás með því að hafa í félagi við annan mann veist að manni með nánar tilgreindu ofbeldi og haft af honum lausafjármuni og reiðufé. Þá var A jafnframt sakfelldur fyrir gripdeild með því að hafa tekið vegabréf í eigu annarra og haft á brott með sér. Refsing A var ákveðin sem hegningarauki við eldri dóma, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var meðal annars litið til þess að um samverknað var að ræða sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að A gerðist einnig sekur um stórfellda líkamsárás. Refsing A var því ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kelmend Arifaj Kujtime Arifaj (
Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Ákærðu sakfelld fyrir skjalafals.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Vladislav Oglinda
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals og brot gegn lögum um útlendinga. Dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
N var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í þrjú tilgreind skipti framvísað í blekkingaskyni breytifölsuðu bresku vegabréfi á nafni A og í eitt skipti lagt fram til Þjóðskrár í blekkingaskyni starfssamning á nafni A. Þá var N sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í eitt skipti framvísað í blekkingaskyni fölsuðu bresku ökuskírteini á nafni A og debetkorti ánöfnuðu á sama aðila. Loks var N sakfelldur fyrir brot gegn tilgreindum ákvæðum laga nr. 80/2016 um útlendinga og laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga með því að hafa á tilgreindum tímabilum dvalið í heimildarleysi á Íslandi, án áritana og dvalarleyfis, og starfað hér á landi án heimildar á persónuauðkennum A. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að N hafði gengist við brotum sínum og ekkert lægi fyrir um að hann hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Á hinn bóginn var litið til þess að ríkir einstaklings- og almannahagsmunir væru bundnir við það að einstaklingar notuðu rétt persónuauðkenni, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing N ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt kom til frádráttar refsingunni.
S, ríkisborgari í Srí Lanka, var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað við lögreglu þýsku bráðabirgðavegabréfi sem reyndist breytifalsað að hluta. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að S hafði játað skýlaust brot sitt og ekkert lægi fyrir um að hann hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Var refsing S ákveðin fangelsi í 30 daga en gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt kom til frádráttar refsingunni.
A, sómalískur ríkisborgari, var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað við lögreglu í blekkingarskyni vegabréfi í eigu annars manns. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að A hafði játað skýlaust brot sitt og ekkert lægi fyrir um að hann hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga en gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt kom til frádráttar refsingunni.
H, íraskur ríkisborgari, var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa framvísað við tollgæslu í blekkingarskyni ítölsku vegabréfi með nafni annars manns sem reynist vera falsað að hluta. H játaði brot sitt en krafðist þess að sér yrði ekki gerð refsing með vísan til 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna. Talið var að þótt samningurinn hefði ekki lagagildi hér á landi væri við ákvörðun refsingar unnt að taka tillit til hans í ljósi þeirrar meginreglu að leitast skuli við að skýra lög til samræmis við þjóðréttarskuldbindingar ríkisins. Yrði ekki vefengt eftir gögnum málsins að H kynni að teljast flóttamaður í skilningi samningsins, en beiðni hans um hæli væri til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Yrði að virða vafa um þetta honum í hag. Þá gæti ekki skipt máli þótt H hefði ekki ferðast hingað til lands beint þaðan sem lífi hans eða heilsu var ógnað enda hefði hann ekki gert teljandi hlé á för sinni. Loks væri þess að gæta að höfð voru afskipti af H þegar við komu til landsins og skipti því ekki máli þótt hann hefði ekki sjálfur gefið sig tafarlaust fram við stjórnvöld, en hann hefði borið fram ástæður fyrir ólöglegri komu sinni þegar eftir handtöku. Að þessu virtu var H ekki gerð refsing í málinu.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Yasar Ashouri (
Björgvin Jónsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Í samræmi við játningu S, afgansks ríkisborgara, var hann sakfelldur fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa við vegabréfaskoðun við komu til landsins framvísað fölsuðu vegabréfi. Við ákvörðun refsingar, sem var ákveðin 30 daga fangelsi, var litið til þess að ákærði gekkst við brotinu og að ekkert lægi fyrir um að hann hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Með hliðsjón af aldri ákærða og dómvenju þóttu á hinn bóginn ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
C, sem kvaðst vera 25 ára nígerískur ríkisborgari, játaði að hafa við komu til Íslands haft meðferðis falsað breskt vegabréf og að hafa framvísað því við innritun á farfuglaheimili. Var hann dæmdur til 30 daga óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Í samræmi við játningu C, 56 ára ríkisborgara Singapúr, var hann sakfelldur fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga.
Í samræmi við játningu C, 18 ára kínversks ríkisborgara, var hún sakfelld fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Í samræmi við játningu Y, 22 ára kínversks ríkisborgara, var hann sakfelldur fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Í samræmi við játningu S, 20 ára kínversks ríkisborgara, var hún sakfelld fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Í samræmi við játningu L, 28 ára kínversks ríkisborgara, var hann sakfelldur fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Í samræmi við játningu L, 25 ára kínversks ríkisborgara, var hún sakfelld fyrir skjalafals samkvæmt 1. mgr. 155. almennra hegningarlaga með því að hafa við vegabréfaskoðun framvísað fölsuðu vegabréfi og þannig komið til landsins án gildra ferðaskilríkja og án vegabréfsáritunar. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Þegar eðli brotsins var virt, hversu alvarlegt það var og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga voru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.